blaðið - 20.07.2005, Blaðsíða 30
30 I FÓLK
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 2005 I blaðiö
SMÁborcrarinn
JEPPAÆÐI
Það er ömurlegt að fylgjast með
íslendingum í umferðinni. íslend-
ingar eru svo einstaklingssinnað-
ir og nýríkir að hvern dag koma
fleiri bílar á göturnar. Og í hverri
bifreið eru vart fleiri en bílstjór-
inn. Við hver gatnamót bætist
stanslaust í raðirnar þar sem ein-
staklingssinnaðir íslendingarnir
geta ekki með nokkru móti tekið
sig saman um akstursferðir til og
frá vinnu. Það er þeim um megn
að deila.
Það er erfitt að finna nokkurn í s-
lending sem ekki á bíl. Allir þurfa
sinn bíl og þar sem hjón búa með
börn yfir sautján ára aldri má sjá
að bílastæðaskipulag fyrri tíma
er brostið. í eldri hverfum borg-
arinnar svo sem eins og vestur í
bæ eða í hlíðunum er álíka erfitt
að finna bílastæði eftir klukkan
sex á kvöldin og það er við Kringl-
una á útsölutíma. Hver fjölskyldu-
meðlimur þarf að eiga bíl og það
hvarflar ekki að nokkrum manni
að samnýta bifreiðar heimilisins
til aksturs í vinnu eða skóla.
Þegar keyrt er framhjá strætis-
vagnaskýlum borgarinnar, þess-
um upplýstu dönsku auglýsinga-
skiltum, er varla að sjá nokkra
hræðu. Gulir vagnarnir aka um
borgina hálftómir og sitja fastir
við umferðarraðir einstaklings-
sinnuðu borgaranna sem fylla
göturnar á annatímum. Jafnvel
á nóttunni er meiri umferð á göt-
um borgarinnar en var hér fyrir
nokkrum árum, áður en ríkidóm-
urinn hvolfdist af fullum þunga
yfir landann.
Og kostnaðurinn er gríðarleg-
ur. Fyrir utan síhækkandibensín-
verðið, tryggingar og afborganir
af bifreiðinni sjálfri bætist við
aukinn kostnaður við viðhald
vega sem tætast upp undan jeppa-
þráhyggjunni. Nú er enginn mað-
ur með mönnum nema hann eigi
jeppa, helst upphækkaðan. Sumir
aka jafnvel um á krómfelguðum
Hummerum, innanbæjar!
Það er ekki nokkur glóra í
þessu jeppaæði sem virðist jafn-
gilda einhverskonar sjálforðu-
veitingu í lífsgæðakapphlaupinu
stóra. Jepparnir auka ekki bara
kostnað, auka ekki bara mengun
heldur auka þeir einnig til muna
slysahættu. Slys á fólki og jafnvel
dauðsföll eru algengari þar sem
jeppar eiga hlut í árekstrum. Auð-
vitað er hættan meiri fyrir þann
sem ekur um á fólksbíl og það er
svo sem í takt við einstaklingseðli
nýriku þjóðarinnar. „Betra þeir
en ég.“ Eg fæ mér jeppa. Og sit svo
fastur - í umferðinni.
SU DOKU talnaþraut
Su Doku -12. gáta
5 6
4 2 9
3 7 6 8
4 6 7
8 5 2
1 3 9
5 8 3 2
9 7 1
6 7
Su Doki - lausn við 11. íátu
4 2 7 9 8 3 5 6 1
9 5 T 7 6 2 3 8 4
6 3 iJL 4 5 1 2 9 7
8 7 4 2 3 9 1 5 6
5 6 2 8 1 7 4 3 9
1 9 z 4 ! 6 7 i 2 8
1 9 6 2 4 >] 7 5
2 1 4 5 6 7 8 9 1 3
71 8 LL T1 9 lL 6^ 4 ! 2
Leiðbeiningar
Su Doku gengur út á að raða
tölunum frá 1-9 lárétt, lóðrétt og
í þar til gerð box sem innihalda 9
reiti. Sama talan má ekki koma fyrir
tvisvar í hverri línu og innan hvers
box. Allar gátur er hægt að ráða út
frá þeim tölum sem gefnar eru upp
í upphafi. Leitað er að talnapörum
Lausn á 12.
gátu verður að
finna i
blaðinu á
morgun.
Lausn á 11. gátu
og reynt að koma þeirri þriðju fyrir.
Tökum dæmi ef talan 7 er í efsta
boxinu vinstra megin og því neðsta
líka, ætti ekki að vera erfitt að átta
sig á hvar 7 á að vera í miðju-boxinu.
Ef möguleikarnir eru tveir er ágætt
að skrá þá hjá sér og halda áfram.
Söngvarinn Robbie Williams segist
sjá eftir öllum húðflúr sem hann er
með á líkama sínum, en þau eru all-
mörg. Segir söngvarinn að gott væri
að geta haft hreinan líkama aftur
og getað bara þurrkað húðflúr öll
út, en honum finnist samt mjög
gaman að hafa verið með þau.
Segist Robbie vera að hugleiða
skurðaðgerð til að fjarlægja
þau.
Annars er það að frétta af Rob
bie að hann sló í gegn á Live
8 tónleikunum í London, og
söng þar fjögur lög: Feel,
Angels, Let me entertain you
og We will rock you. Mikið
stuð var á áhorfendum þeg-
ar hann kom fram, og greini-
legt að hann er mjög vinsæll
í heimalandi sínu, Bretlandi.
Robbie
séreftir
húðflúrunum
Ashton
bregst illa við
Ashton Kutcher er orðinn mjög
frægur fyrir að hrekkja fræga fólk-
ið í þáttunum “Punk'd” en hann er
sjálfur greinilega ekki mjög hrifinn
af því þegar papparazzi ljósmynd-
arar taka myndir af honum, því
það sást í Ashton vera að skamma
ljósmyndara sem var að njósna um
hann. Kutcher sá tvo ljósmyndara
fyrir utan heimili sitt, og varð hann
víst mjög reiður og reif skyrtu ann-
ars þeirra í sundur, meðan að hinn
náði mynd af atvikinu. Ljósmynd-
ararnir segja Kutcher hafa grínast
með að hann væri klikkaður áður
en hann hellti sér yfir ljósmyndar-
ann og reif skyrtu hans. Málið verð-
ur ekki kært og hafa upplýsingarfull-
trúar Ashton ekkert að segja um það.
Aðrar stjörnur hafa líka brugðist illa
við papparazzi ljósmyndurum, þar
á meðal Britney Spears, Nicole Kid-
man, Cameron Diaz, Reese Withers-
poon og Jennifer Garner.
Madonna
byrjuð i
hestamennsku
Madonna virðist byrjuð í hesta-
mennsku, en hún pantaði nýlega
klukkutíma kennslu hjá Stag Lodge
Stables, í Richmond Park, í Lundún-
um. Haft er eftir heimildarmanni
að Madonna hafi viljað fara huldu
höfði og því greip hún til þess ráðs
að leigja allan staðinn fyrir sig eina.
Söngkonan varð mjög hrifin af hest-
um eftir þennan tíma, reyndar svo
að hún fékk lánaða tvo hesta frá fyr-
irtækinu til að vera með á heimili
sínu í sveitinni í Englandi. Heimild-
armaður segir að Madonna hafi ver-
ið mjög áhugasöm um ýmsa hluti
sem tengjast hestamennskunni,
eins og hjálma, hnakka, tauma og
fleira.
HVAÐ SEGJA
STJÖRNURNAR?
Steingeit
(22. desember-19. janúar)
$ 1 dag færðu viðurkenningu fjrir alla þína
vinnu. Það fer ekki hátt og kemur ur óvæntri átt
en hún kemur.
V Það eru allir undrandi yfir árangri þínum
og ert vel kominn að öllu hrósinu.
Vatnsberi
(20. janúar-18. febrúar)
$ Haltu þér á réttri braut, sama hve mjög þú
vilt fara af henni. Ef þú ert ekki einbeitt/ur þá gæti
svo farið að þú hafir ekki lokið neinu í lok aags.
V Þú hefur aldrei verið öguð/agaður en nú
þarf það að breytast, eins leiðinlega og það hljóm-
ar. Annars muntu eyða deginum til einskis.
©Fiskar
(19. febrúar-20. mars)
$ Þú ert í lausu lofti og því hentar vel að finna
lærimeistara. Það þarf ekki að segja þér hvað á að
gera heldur örva þig til að finna pína eigin leið í
öngþveitinu.
Þú skilur ekki af hverju hlutirnir eru eins og
þeir eru en það er sama hve mikið þú hugsar um
pað, þú getur ekki leyst það. Rómantík er aularfull
og þu getur ekki stjórnaö henni.
o
Hrútur
(21. mars-19. apríl)
$ Ferill þinn mun taka stórt stökk fljótlega.
Það verður tímabundið ástand, en einungis ef þú
vilt það. Þú stjórnar ferðinni.
V Hættu að velta bér upp úr hvað öðrum
frnnst um þig. Þú ert frábær og pú veist það.
Naut
(20. apríl-20. maí)
$ Einstaklingur mun storka þeim hugmynd-
um sem þú hefur um fyrirtækið. Þú munt ekki
skipta um skoðun en þú ert þakklát/ur fyrir skoð-
anaskiptin.
V Fylgstu með fólki sem segir þér hvernig
hlutirnir eru, kannski hefiir það á réttu að standa.
Þér líður vel en nýjar hugmyndir geta víkkað sjón-
deúdarhringinn.
mjm Tvíburar
• (21. raaí-21,júní)......................
$ Það er ekkert eins skýrt og það var fyrir
nokkrum dögum. Grafðu djúpt og lestu í samræð-
ur sem þú átt við samstarfsaðila.
V Rómantíkin er ruglingsleg þessa dagana.
Hvernig væri að fresta ákvörðunum þar til and-
rúmslortið hreinsast. Það skaðar engan að bíða
aðeins.
©Krabbí
(22. júní-22. júlí)
$ Þér líður sem þú sért önnu persóna í vinn-
unni, sem er ólíkt þér. Haltu því svona í nokkra
daga og árangurinn mun koma þér á óvart.
V Það eru engin vandamál þannig að þú skalt
ekki skapa nein. Stundum virka hlutirnir dramat-
ískari en þeir eru. Slakaðu á og ekki hafa áhyggjur.
©
Ljón
(23. júlí- 22. ágúst)
$ Boð þitt um hjálp kemur timanlega, svo
tímanlcga að þú munt heilla rétta cinstaklinginn.
Heppnin er með þér, eins og venjulega.
V Þú veist hvað þú vilt en ástvinur þinn er
eitthvað óviss. Leyfðu honum að átta sig á þvi. Það
er ómögulegt að vera alltaf samstiga. vertu þolin-
móð/ur.
Meyja
(23. ágúst-22. september)
$ Það er góður tími til að vera virk/ur og sköp-
unarvinnan verður einstaklega upplífgandi og
ánægjuleg. Fólki mun finnast mikið til um fram-
lag þitt.
V Astin fmnst á óvæntum stöðum. Daðraðu
með sjálfsöryggi og skemmtu þér með aðdáend-
um þfnum.
Vog
(23. september-23. október)
$ Samkennd þin er mikil en gæti veriðjafnvel
of mikil við smna viðskiptavini og samstarisfélaga.
Það getur skapað vandamál með mörk. Reyndu að
virða þin eigin mörk.
V Nokkur gömul vandamál líta dagsins ljós á
nýjan leik. Leystu úr þeim í eitt skipti iyrir öll og
gleymdu þeim.
Sporðdreki
(24. október-21. nóvember)
$ Viðræður munu ganga vel I dag sérstaklcga
ef þú getur lokið þeim í dag. Það mim rætast úr
öllu sem þú skrifar undir i dag.
V Hlustaðu á metnaðargjarnt innsæi þitt og
settu áætlanir þinar í gang. Aorir munu hjálpa til.
Bogmaður
(22. nóvember-21. desember)
$ Peningar og aðrir snertanlegir hlutir eru
ofarlega í huga þinum um þessar mundir og þú
hefur nvjar hugmyndir um skapandi notkunar-
möguleika. Deildu hugmyndum pinum og sjáðu
hvað gerist.
V Taktu spilarann með þér og farðu i göngu-
túr. Þú hefur margt að hugsa um og timinn flýgur.
Dagurinn í dag er hentugur fyrir romantik.