blaðið

Ulloq

blaðið - 29.07.2005, Qupperneq 2

blaðið - 29.07.2005, Qupperneq 2
2 I INNLENDAR FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 2005 blaöÍA Mjög sáttur við verðið - segir Geir H. Haarde fjár- málaráðherra, en hann vill nota hluta andvirðis Sím- ans til þess að grynnkafrek- ar á skuldum ríkisins. „Ég er mjög sáttur við verðið," seg- ir Geir H. Haarde, fjármálaráðherra, um söluverð Símans. „Auðvitað voru ágiskanir um bæði hærra og lægra verð, en markaðurinn ræður verðinu og það er ekkert fyrirtæki verðmætara heldur en einhver vill borga fyrir það.“ Geir segir það sitt fyrsta verkefni að gæta þess að andvirði Símans hafi ekki óheppileg efnahagsáhrif hér og kyndi hagkerfið frekar. „Til lengri tíma þarf hins vegar að taka ákvörðun um það hvað skuli gera með þennan söluhagnað. En það er ekki minnsti vafi á því að það er skynsamlegt að nota tækifærið til þess að halda áfram að grynnka á skuldum ríkisins, það kemur öllum til góða.“ Geir telur einnig koma til greina að nota hluta greiðslunnar til þess að fara í fjárfestingarverkefni til að byggja upp innviði eða umgjörð í þjóðfélaginu. ■ Austurver Opið alla daga ársins til kl. 24 Mán.-fös. kl. 8-24 Helgar og alm. frídaga 10-24 JL-húsið Mán.-fös. kl. 9-21 Helgar 10-21 Kringlan 1. hæð Mán.-mið. kl. 10-18:30, fim. 10-21, fös. 10-19, lau. 10-18, sun. 13-17 ^Lyf&heilsa ‘Bidúuy & Sw Ttyqqvaqötu S, 101 Rey^iavl^ S. 511 2272 ÁMUKtCX sotnríj Opið lengur Einkavæðing Símans: Bakkabræður hrepptu Símann á 66,7 milljarða Landssíminn verður seldur eignar- haldsfélaginu Skiptum, en það átti hæsta tilboðið í 98,8% hlut ríkisins í fyrirtækinu, alls 66,7 milljarðakróna. Það eru Bakkabræðurnir Lýður og Ág- úst Guðmundssynir, sem leiða Skipti með 45% hlut, en Kaupþing banki á 30% í því, fjórir lífeyrissjóðir eiga sam- tals 21% og MP Fjárfestingarbanki og Skúli Þorvaldsson 2% hvor. „Þetta hafa verið spennandi dagar og mest var spennan auðvitað þegar umslögin voru opnuð. Við verðlögð- um okkar tilboð eins og við töldum rétt verð vera fyrir fyrirtækið og betur gátum við ekki gert,“ sagði Er- lendur Hjaltason, forstjóri Exista, í samtali við Blaðið eftir að ljóst var að Skipti höfðu hreppt hnossið. Margir höfðu á sínum tíma sýnt Símanum áhuga og var tólf hópum fjárfesta boðið að gera tilboð, en á endanum bárust aðeins þrjú kauptil- boð og öll þeirra íslensk. Auk Skipta bauð sitt hvor hópurinn undir for- ystu Burðaráss og Atorku í Símann, en þau boð voru talsvert lægri, Burð- arás með 60 milljarða slétta og Nýja símafélagið með um 54,7 milljarða króna. Aðrir Þarna munar talsverðu en Erlend- ur telur Skipti ekki hafa seilst of langt í verði. „Fyrirtækið er í mjög góðu standi, staðan á markaði og tæknilega er afar góð og þar sjáum við mikil sóknarfæri. Heildarmettun markaðaðsins er mikil, en notkunin mun vafalaust aukast. Eins eru menn að horfa á frekari miðlun afþreying- arefnis á komandi árum og þar eru miklir vaxtarmöguleikar." Hann vill hins vegar ekki mikið segja um hvað Skipti hyggist fyrir með Símann á næstunni annað en að þeir líti á kaupin sem langtímafjár- festingu. „Við erum ekki komnir að rekstri fyrirtækisins enn, þannig að það væri ekki rétt af mér að fara að tjá mig um næstu skref. Fyrst viljum við ganga frá kaupunum og fara yfir stöðuna með stjórnendum og starfs- mönnum fyrirtækisins.” Hlutur fjárfestingarfélagisins Ex- ista í Skiptum nemur 45%, en í sölu- skilmálum einkavæðingarnefndar var tiltekið að ekkert félag mætti eiga stærri hlut. Auk Exista á KB-banki 30% hlut, Lífeyrissjóður verslunar- manna og Gildi - lífeyrissjóður með 8,25% hlut hvor, Sameinaði lífeyris- sjóðurinn og Samvinnulífeyrissjóð- urinn með 2,25% hvor og MP-fjárfest- ingabanki og félag á vegum Skúla Þorvaldssonar 2% hvort. Kaupin eru fjármögnuð að mestu með eigin fé en einnig lánsfé sem KB banki sér um að útvega. Skrifað verður undir kaupsamning í Þjóðmenningarhúsinu á föstudag eftir viku en hlutabréf og fé skipta um eigendur að lokinni athugun Samkeppniseftirlits. Fyrirhugað er að skrá félagið á hlutabréfamarkað fyrir árslok 2007, en um leið verður hlutur Kaupþings banka boðinn al- menningi og fagfjárfestum til kaups. O Heiðsklrt (5 Léttskýjað ^ Skýjað (Alskýjað Rigning, lítilshðttar ý/ý Rigning Súld sfc 'f' Snjókoma if. Slydda Snjóél • Amsterdam Barcelona Berlín Chicago Frankfurt Hamborg Helsinki Kaupmannahöfn London Madrid Mallorka Montreal New York Orlando Osló Parfs Stokkhólmur Þórshöfn Vín Algarve Dublin Glasgow 19 29 31 20 30 25 20 20 18 24 31 19 24 26 17 20 19 13 33 21 14 14 €f 12° 13* 13* €f €f, 12°r 12* ©-► 10° 014< €H 0 12° Veðurhorfur í dag kl: 18.00 Veðursíminn 902 0600 Byggt á upplýsJngum frá Veðurstofu íslands 12* m 13°^ €f // / // 10° Á morgun 16° 10< 'V, //

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.