blaðið - 29.07.2005, Blaðsíða 4

blaðið - 29.07.2005, Blaðsíða 4
www.tv.is 4 I INNLENDAR FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 2005 blaöiö Friðrik lak rannsóknar- skýrslu ekki ífjölmiðla Reiður og mun leita réttar síns hjá lögmönnum Skýrsla sérskipaðrar rannsókn- arnefndar um flugslysið í Skerja- firði 7. ágúst árið 2000 var send íjölmiðlum í gær, einum degi fyrr en áætlað var. Með skýrsl- unni fylgdi bréf frá Sigurði Líndal, formanni nefndarinnar, þar sem ástæður þessa eru rakt- ar. í bréfinu segir meðal annars að blaðamannafundi sem halda átti í dag vegna málsins sé aflýst. „Vandamönnum þeirra sem létust var send skýrslan fyrir hádegi i gær og þeir beðnir um að fara með hana sem trúnaðarmál þar til íúndurinn yrði haldinn“, segir í bréfinu. Þar er ennfremur rakið að í kvöldfréttum Stöðvar 2 i gær hafi verið greint frá innihaldi skýrslunnar. Um það segir Sigurður. „Ljóst virðist því að einhver vandamanna - og er varla öðrum að dreifa en Friðriki Þór Guðmundssyni - hefúr brotið trúnað og látið Stöð 2 í té framangreindar upplýsingar”. Mjög alvarlegar ásakanir 1 samtali við Blaðið í gær sagðist Friðrik, sem er faðir eins þeirra sem lést í slysinu, furða sig á þessum fuflyrðingum Sigurðar. „Þessi leki er ekki frá mér kominn og ljóst að fjöldi aðila veit um innihald skýrslunnar. Það eru ýmsir aðrir en ég sem hafa hagsmuni af því aðláta einhvern leka fara út og langar mig að benda sérstaklega á hinn ákafa fögnuð Rannsóknar- nefndar Flugslysa um umsögn skýrslunar" segir Friðrik. Hann bendir ennfremur á að þetta séu mjög alvarlegur áburður af hendi Sigurðar. „Ég fúrða mig á þessum vinnubrögðum og velti því fyrir mér hvort ekki sé ástæða til að draga í efa ályktunarhæfni mannsins. Ég er hoppandi reiður og mun ráðfæra mig við lögffæðinga nema afsökunar- beiðni komi frá Sigurði áður en ég næ því. Hann er að ásaka mig um mjög alvarlegt trúnað- arbrot og hann lýgur gegn betri vitund” segir Friðrik að lokum. Töívunám í viðurkenndum skóla Ómissandi námskeið þar sem krakkarnir læra á stafræna Ijósmyndavél og Ijðsmyndavinnslu með PhotoShop. Vikunámskeið á morgnana eða eftir hádegi I ágúst. Verð 11.900. m TÖLVU- OG VERKFRÆÐIMÓNUSTAN Tðlvusumarskóllnn Sími 520 9000 • www.tv.is Skýrsla umflugslysið í Skerjafirði Flugvélin hefði ekki átt að hafa lofthæfiskírteini Flugmálastjórn hefði hvorki átt að skrá flugvélina TF-GTI né heldur gefa út lofhæfiskírteini henni til handa sakir óljósrar sögu hennar og ófullkominna gagna sem fylgdu henni. Þetta er meðal niðurstaðna rannsóknarnefndar sem samgöngu- ráðherra skipaði til að fara yfir til- drög flugslyssins í Skerjafirði um verslunarmannahelgina árið 2000. Tekið undir með Rannsókn- arnefnd Fiugslysa Forsaga málsins er að 7. ágúst árið 2000 fórst flugvélin TF-GTI í Skerja- firði og með henni flugmaðurinn og 5 farþegar en þeir voru að koma af Þjóðhátíð í Eyjum. Rannsóknar- nefnd flugslysa (RF) rannsakaði tildrög slyssins en feður tveggja farþega sem létust í slysinu töldu rannsókn nefndarinnar, og skýrslu hennar, ekki fullnægjandi og fengu því tvo breska flugslysarannsak- endur til að fara yfir málið. Þeir skiluðu skýrslu sem RF gerði síðar athugasemd við. Að lokum ákvað samgönguráðherra að skipa nefnd Slegist um lóðir í Kópavogi Bæjarráð Kópavogs úthlutaði í gær lóðum í landi Vatnsenda, Þinga- hverfi. Gífurleg eftirspurn var eftir þessum lóðum og má sem dæmi nefna að daginn sem umsóknar- frestur rann út voru biðraðir út á götu allan daginn. Alls sóttu yfir 2000 manns um þær lóðir sem í boði voru. Nokkur nöfn vekja at- hygli á listanum yfir þá sem bæjar- ráð gefur kost á lóðum í hverfinu. Dætur ráðamanna Dætur bæði forseta Islands og for- sætisráðherra Islands fengu sitt- hvora einbýlishúsalóðina. Þá gefur bæjarráð feðgunum Stefáni Jóns- syni og Jóni Stefánssyni kost á lóð- um hlið við hlið en þeir eru einmitt faðir og bróðir Ómars Stefánssonar bæjarfulltrúa, sem vék þó af fundi meðan ákveðið var um þær lóðir. óháðra aðila til að fara yfir málið í heild sinni. Skýrsla þeirrar nefndar liggur nú fyrir og staðfestir niðurstaða henn- ar í grófum dráttum upphaflega niðurstðu RF, um að eldsneytisskort- ur og þreyta flugmanns hafi valdið slysinu. Ábyrgð flugmálayfirvalda mikil Samkvæmt skýrslunni var hinsveg- ar fjölmörgu ábótavant í flugrekstri Leiguflugs ísleifs Ottesen ehf. sem átti flugvélina sem fórst. Samkvæmt skýrsl- unnihefðiflug- málayfir- völdum átt að vera þetta ljóst og því hefði flugvél- in í raun ekki átt að hafa leyfi til að fljúga. Friðrik Þór Guðmundsson, fað- ir eins þeirra sem lést í slysinu, og einn þeirra sem hve harðast hefur gagnrýnt rannsókn málsins, vildi lítið tjá sig um innihald skýrslunnar þegar Blaðið ræddi við hann í gær. „Eg og aðrir aðstandendur ætl- um ekki að tjá okkur efnislega um skýrsluna fyrr en við erum búnir að fara yfir hana og ígrunda með ráð- gjöfum, enda tökum við hlutverk okkar al- varlega", sagði Friðrik. ■ tvöfaldur pottur lotto.ls Fjölskyldur bæj- arfulltrúanna voru þó fleiri til þess að fá lóðirnar en Ester Gunnsteinsdóttir dóttir Gunnsteins Sigurðssonar bæjarfull- trúa fékk einbýlishúsalóð. Snorri Magnús- son fyrrverandi bæj- arfulltrúi. Þá fékk Viggó Einar Hilmarsson sína lóð en hann sat lengi vel í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna. Stjórnmálamenn Valþór Hlöðversson, fyrrverandi bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, var einn þeirra sem fékk lóð. Það gerðu einnig Guðni Aðalsteinsson, fyrrverandi formaður ungra sjálf- stæðismanna í Kópavogi, Tryggvi Felixson, varamaður Samfylking- arinnar í bæjarstjórn, Jón Þorgrím- ur Stefánsson, fyrrverandi bæjar- ritari, Ágúst Þór Bragason, sonur Braga Mikaelssonar sem er fyrrver- andi bæjarfulltrúi, og bræðurnir Magnús Snorri og Birgir Örn Ragn- arssynir en faðir þeirra er Ragnar Frægir Fræga fólkið lætur sig ekki vanta í nýja hverfinu en meðal annarra er sjálfur Afi, Örn Árnason. Feðgarn- ir Arnór og Eiður Smári Guðjohn- sen verða ekki langt í burtu frá hon- um og á milli þeirra Everestfarinn Hallgrímur Magnússon. í næstu götu við þá verður handboltakapp- inn Ólafur Stefánsson og kempan Brynjar Kvaran ekki langt undan. Birgir Leifur Hafþórsson golfari var einnig einn þeirra heppnu sem fá lóðir í þessu vinsæla hverfi. ■ Eimskip í útrás Kaupa annað flutninga- fyrirtæki í Færeyjum Eimskip hefur keypt markaðs- leiðandi fyrirtæki í landflutn- ingum í Færeyjum. Fyrirtæk- ið, sem heitir P/F Heri Thomsen er með um 30 flutningabíla í sinni þjón- ustu, en rekur einnig þrjú flutninga- skip. I fyrra tók fyrirtækið í notkun nýtt og fullkomið 2.000 fermetra vöruhús i Runavík. Greinilegt er að Eimskip hugar mjög að Færeyjum um þessar mundir hvað útrás varð- ar, því fyrir tæpu ári keypti fyrirtæk- ið stærsta skipafélagi Færeyja, Faroe Ship. í tilkynningu frá Eimskip í gær segir að kaup Eimskips á Heri Thomsen séu liður í heildarupp- byggingu Eimskips á flutninga- þjónustu í Færeyjum með sambæri- legum hætti og Eimskip hefur gert á fslandi. Landflutningar hafa auk- ist verulega í Færeyjum á síðustu kaupunum eflast landflutningar í árum, rétt eins og á Islandi og með Færeyjum enn frekar. T*pt ár er síöan Eimskip keypti stærsta flutningafyrirtaeki Fœreyja blaíMUHDI Sex mátiaða uppgjör Össurar hf. Hagnaður nam tæpum 300 milljón- um króna Hagnaður Össurar hf á fyrri hluta ársins nam tæpum 300 milljónum króna, sem er um 20% meiri hagnað- ur en á sama tíma í fyrra. I tilkynn- ingu frá fýrirtækinu kemur fram að sala á öðrum (jórðungi ársins hafi verið sú mesta í sögu fyrirtæk- isins. Salan nam 35,4 milljónum Bandaríkjadala (2,3 milljörðum íslenskra króna) samanborið við 31,8 milljónir á fyrra ári. Þar segir ennfremur að góðan árangur megi rekja til þess að vel gekk á öllum markaðssvæðum en miklu munar um að einkar góður vöxtur var í sölu stoðtækja á Bandaríkjamarkaði. Kaupa bandarískt stoð- tækjafyrirtæki 1 gær undirritaði Össur hf. samning um kaup á öllu hlutafé í fyrirtæk- inu Royce Medical Holding, Inc, að aflokinni áreiðanleikakönnun á félögunum. Royce hefur árum saman verið einn af fremstu fram- leiðendum í stuðningstækjum í Bandaríkjunum. Heildar kaupverð nemur um 14 milljörðum króna. Gert er ráð fyrir að gengið verði endanlega frá kaupunum í ágúst, en fyrirvari er um samþykki frá banda- rískum samkeppnisyfirvöldum. Að sögn Jóns Sigurðssonar, forstjóra Össurar, eru kaupin mikilvægur áfangi í enn frekari sókn inn á stuðningstækjamarkað- inn. „I sameiningu verða Össur og Royce öflugri og verða í forystu á sviði stuðningstækja á Bandaríkja- markaði. Össur hefur um árabil verið forystufyrirtæki í hönnun og framleiðslu á stoðtækjum og ætlar sér nú að ná sama árangri á markaðnum fyrir stuðningstæki.“ ■ Fleiri skila framtali Tæplega 5000 fleiri skiluðu skatt- framtali í ár miðað við í fyrra. Þá hækkaði gjaldstofn tekjuskatts og út- svars um 9% og nam 526,8 mifljörð- um króna en að meðaltali hækkaði gjaldstofninn um 7% á hvern ein- stakling. Samanlögð álagning tekju- skatts og útsvars nemur 145,2 millj- örðum króna og hækkar um 12,3% frá fyrra ári.ÁIagðir tekjuskattar til ríkissjóðs skiptast í almennan og sérstakan tekjuskatt annars vegar og fjármagnstekjuskatt hins vegar en útsvarið er tekjustofn sveitarfélaga. Actavis gengur frá Amide- samningi Islenska lyíjafyrirtækið Actavis Group hefur gengið frá samningi um kaup á bandaríska samheita- lyfjafyrirtækinu Amide Pharmac- euticals sem var fyrir kaupin óskráð fjölskyldufyrirtæki f New Jersey. Tilkynnt var um kaupin fyrir nokláu en nú hafa samkeppnisyf- irvöld f Bandaríkjunum úrskurðað um þau og því hefur Actavis öðlast öll réttindi til að ganga frá þeim. Eins og áður hefur verið getið nam kaupverð Amide 500 milljónum dala en til viðbótar koma allt að 100 milljónir dala sem eru skilyrtar og háðar góðri afkomu félagsins. ■

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.