blaðið - 29.07.2005, Blaðsíða 28
28 I MEWNIWG
FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 2005 biaðÍA
Funi i
Sigurjónssafni
Á sumartónleikum Listasafns Sigur-
jóns Ólafssonar þriðjudagskvöldið
2. ágúst flytur dúóið Funi, þau Bára
Grímsdóttir söng- og kvæðakona og
kjöltuhörpuleikari og Chris Foster
söngvari og gítarleikari íslensk þjóð-
lög - þar með talin kvæðalög - og
ensk þjóðlög, öll í útsetningu þeirra
sjálfra.
Bára Grímsdóttir söngkona og
tónskáld hefur um langt árabil ver-
ið fly tjandi íslenskra þjóð- og kvæða-
laga. Hún ólst upp við kveðskap og
söng foreldra sinna og afa og ömmu
í Grímstungu í Vatnsdal. Þegar fjöl-
skyldan flutti suður til Reykjavíkur
gerðust foreldrar hennar félagar í
Kvæðamannafélaginu Iðunni og
fór Bára jafnan með þeim á fundi
og í sumarferðir félagsins. Bára
hefur sérstakan áhuga á rímum og
kvæðalögum en hefur einnig kynnt
sér hinn fjölbreytilega þjóðlagaarf
liðinna alda, bæði veraldlegan og
trúarlegan. Hún hefur sungið með
Sigurði Rúnari Jónssyni og Njáli Sig-
urðssyni og þjóðlagahópnum Emblu
og hafa þau komið fram á tónleikum
á Islandi og víða í Evrópu og Norður
Ameríku.
Chris Foster ólst upp í Somerset
á suðvestur Englandi. Þar heyrði
hann fyrst ensk þjóðlög sungin og
leikin og þar hóf hann tónlistarfer-
il sinn. Hann hefur í þrjá áratugi
komið fram á tónleikum víða á Bret-
landseyjum, Evrópu og Norður Am-
eríku og skapað sér sess sem frábær
flytjandi enskrar þjóðlagatónlistar.
Á undanförnum árum hefur hann
verið eftirsóttur sem undirleikari
í upptökum hjá ýmsum tónlistar-
mönnum.
Síðastliðin 4 ár hafa Bára og Chris
komið fram saman á ýmsum hátíð-
um, tónleikum og í útvarpi á íslandi,
Englandi, Skotlandi, Irlandi og í
Bandaríkjunum. I júní 2004 gáfu
þau út geisladiskinn Funi og hafa
fengið mikið lof fyrir hann.
Tónleikarnir hefjast klukkan
20:30.
Dönsk og frönsk
orgeltónlist í Hallgrímskirkju
Um verslunarmannahelgina verður
danski orgelleikarinn Anne Kirstine
Mathiesen gestur tónleikaraðarinnar
Sumarkvöld við orgelið í Haligríms-
kirkju. Hún leikur laugardaginn 30. júh'
kl. 12 og sunnudaginn 30. júlí kl. 20.
Axme Kirstine Mathiesen er organisti
Sct. Nicolai kirkju í Koge, sunnan Kaup-
mannahafnar en á undanförnum árum
hefur hún líka vakið athygli sem góður
orgelleikari á tónleikaferðum víða um
Norðurlönd og í Þýskalandi, auk þess
að vera eftirsótt sem undirleikari með
kórum og einsöngvurum. Þá hefur
hún tekið þátt í kynningum á gömlum
dönskum orgelum, bæði í kirkjum og
hallarkapellum.
Fyrsta verkið er Tokkata eftir Buxte-
hude, en hann er sennilega þekktasta
tónskáld Dana. Eftir Leif Kayser flytur
Anne Kóraltilbrigði og Tokkötu byggða
á stefi Maríubænarinnar Ave Maria.
Nýjustu dönsku verkin eru tveir orgel-
kóralar eftir Bo Gronbech dómorgan-
ista í Helsingjaeyri. Inn á milli dönsku
verkanna flytur hún Prelúdíu og fúgu í
g-moll eftir Johann Sebastian Bach, Pre-
lúdíu og fúgu í a-moll eftir sænska tón-
skáldið Emil Sjögren og fyrri hlutanum
lýkur með Salamanca sem svissneska
tónslcáldið Guy Bovet samdi árið 1986.
Á síðari hluta tónleikanna flytur Anne
Kirstine hina vinsælu 5. orgelsinfóníu
Charles-Marie Widors. Sinfónían er í
fimm þáttum og er sá síðasti, Tokkata,
meðal vinsælustu orgelverka allra tíma.
Á laugardagstónleikunum fá tónleika-
gestir að heyra sýnishorn af efhisskrá
Anne Kirstine Mathiesen orgelleikari leikur
á tónleikum í Hallgrímskirkju um helgina.
sunnudagsins, það er Tokkötu Buxtehu-
des, Kóraltilbrigði eftir Kayser, Prdúdíu
og fúgu eftir Sjögren og Salamanca sem
Guy Bovet samdi yfir þjóðlög ffá borg-
inni Salamanca á Spáni.
alvöru fjallahjól
26" Dekk
Kvenstell: 16" & 18'
Karlstell: 16", 18" &
Sram ESP 3.0 21 gír, Framdempari, ÞÆGILEGUR HNAKKUR
Dempari í sæti, Stillanlegt hátt stýrl, Fyrsti gír extra léttur,
Götudekk, Álstell, ál gjarðir o.fl.
Einmg til án framdempara kr.29.900
FJALLAHJOLABUÐIN FAXAFENI 7
S: 5200 200 MÁN - FÖS. KL-Ó-18. LAU. KL. 10-16 WWW.gop.ÍS
Kvartett Dorthe
Höjland á Jómfrúnni
Á nfundu tónleikum sumartónleika-
raðar veitingahússins Jómfrúarinn-
ar við Lækjargötu, laugardaginn 30.
júlí, kemur fram kvartett danska
saxófónleikarans Dorthe Höjland.
Auk hennar skipa kvartettinn þeir
Jacob Hojland á píanó, Andreas Drei-
er á bassa og Soren Olsen á tromm-
ur. Kvartettinn mun flytja jazzstand-
arda í bland við eigin tónsmíðar
Dorthe Höjland. Tónleikarnir hefj-
ast kl. 16 og standa til kl. 18. Leikið
verður utandyra á Jómfrúartorginu
ef veður leyfir, en annars inni á Jóm-
frúnni. Aðgangur er ókeypis.
ÁRBÆJARSAFN
OPIÐ ALLfl DAGA í SUMAR FRÁ10 -17
Nánari upplýsingar á vefslóðinni www.minjasafnreykjavikur.is
"0~
TE & KAFFI
- í Dillonshúsi
Minjasaín Reykjavíkur
ÁRBÆJARSAFN