blaðið - 29.07.2005, Qupperneq 20
20 I SAMSKIPTI KYNJANNA
FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 2005 blaðið
Hvemig vekurðu
áhuga hins kynsins?
- byggðu grunninn rétt ogþú gætir haldið velli
Fyrstu kynni leggja jafnan línurnar
fyrir áframhaldandi samskipti og þá er
oft að duga eða drepast. Auðvelt er að
missa marks ef vindhöggin eru slegin
og því mikilvægt að haga hlutum þann-
ig að til fyrirmyndar sé. Mannfólkið
er mun flóknara fyrirbæri en það sem
sést í flestum bíómyndum og því ekki
hægt að ætlast til að hlutirnir gangi
eins auðveldlega fyrir sig - fólk þarf að
leggja sig fram og sniðganga alla mikil-
mennskustæla eða berserksgang. Það
kann aldrei góðri lukku að stýra að
ganga of hart fram til leiks eða láta eins
og þú getir náð þér í hvern/hverja sem
er án þess að hafa fyrir því.
1. Brostu.
Fallegt bros er smitandi og það gerir við-
komandi aðgengilegri í samskiptum.
Brosið lýsir upp andhtið og dregur fólk
að þér eins og segul.
2. Hrósaðu viðkomandi.
Daðraðu með hrósyrðum, en skemmti-
legt hrós kemur öllum skemmtilega
á óvart og fólki finnst það öruggara.
Mikilvægt er þó að hrósið sé einlægt og
ósvikið svo að ekki sé verið að smjaðra.
Ef þú getur ekki fundið neitt til að
hrósa manneskjunni ættirðu e.t.v. að
endurskoða af hverju þú ert að þessu...
Ef þér er hrósað er ætíð best að svara
,,'I'akk fyrir!“
3. Augngotur.
Gjóaðu augunum beint í augu viðkom-
andi í 2-4 sekúndur í senn og líttu svo ró-
lega undan. Þó má auðvitað ekki stara.
4. Hlustaðu.
Þú ert með tvö eyru og einn munn og
því áttu að hlusta tvöfalt meira en þú tal-
ar. Það að geta hlustað gaumgæfilega er
sannkölluð list og ekki öllum gefið, en
sá sem er að segja fir á metur það mikils.
Allir vilja að á þá sé hlustað.
5. Stígðu fyrsta skrefið.
Færðu þig nær manneskjunni og heds-
aðu á kurteisislegan hátt.
6. Settu þig í gestgjafahlutverk.
Breyttu framkomu þinni á þann
hátt að þú sért ekki aðgerðarlaus að
bíða eftir einhverju. Vertu örugg/ur
með því að setja þig í stellingar gest-
gjafa í stað aðkomugests.
7. Notaðu leikmuni.
Aldrei fara að heiman án þess að
vera með skemmtilega og forvitni-
lega „leikmuni", en slíkt dót er ávís-
un á samræður hvers konar. Það
gerir samræðurnar uppörvandi sem
verður til þess að aðrir koma og tala
við þig. Dæmi: Hundur, börn, óvenjuleg-
ir skartgripir, gott ilmvatn, íurðulegt
bindi, hattur, spennandi bók eða bolur
með furðulegri áletrun.
8. Skemmtu þér.
Glettni og gamansemi er mikið atriði ef
þú vilt laða að þér fólk. Vertu léttlynd/
ur og blátt áfram en þannig kemur í ljós
ákveðið varnarleysi sem getur heillað.
9. Byrjaðu samræðurnar.
Best er að byrja með því að segja bara
„halló.“ Flestar af þeim línum sem not-
aðar eru geta verið varhugaverðar og
fallið illa i kramið hjá viðkomandi.
Nauðsynlegt er að fara létt í þetta og
vera hógvær. Talaðu t.d. um það sem er
umhorfs, spurðu spurninga, biddu um
hjálp eða komdu með yfirlýsingu.
10. Daður snýst um fallega
og flotta framkomu.
Daður skilur lítið eftir ef þú ert ekki
með sjálfstraust og óhræddu/ur við að
taka áhættur. Vertu jákvæður og áhuga-
samur-þaðvirkar!
halldora@vbl.is
Hvor aðilinn keyrir lpegar haldið er út á
land, hún eða hanm
Ágústa Þórisdóttir: Birgir Dagbjörnsson:
Yfirleitt hann, en ég geri þaö nú stundum. Þg geri það nú reyndar, annars er þetta
erfið spurning.
Hrefna Björk Sverrisdóttir:
Ég keyri alltaf þegar við förum út á land
þar sem ég er í raun betri ökumaður og
öruggari yfirhöfuð.
Ólöf Gunnarsdóttir:
Hann keyrir þegar farið er út á land.
Annars þýðir það nú ekki að hann sé betri
bílstjóri, þetta er bara af gömlum vana.
Svo keyri ég hérna í bænum.
Sigurlaug Traustadóttir:
Hann að sjálfsögðu. Maður er að keyra út
á land og vill auðvitað bara njóta þess að
vera f fríi.
Svanþór Laxdal:
Ég keyri - ekkert annað í boði!
... eins og náttúran ætlaði!