blaðið - 29.07.2005, Síða 38

blaðið - 29.07.2005, Síða 38
38 IFÓLK FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2005 blaöió BEÐIÐ EFTIR STRÆTÓ Smáborgarinn fór einu sinni til út- landa. Þetta var skemmtileg ferð og að venju fylgdist smáborgarinn ekkert mjög mikið með fréttum frá klakanum þá daga sem hann var staddur ytra. En eins og geng- ur og gerist tekur allt gott enda og haldið var heim á leið. Grámygla hversdagsins tók við og smáborg- arinn þurfti að halda til vinnu, daginn eftir að hann kom heim. Haldið var út í sudda og þoku að morgni dæmigerðs haustdags í Reykjavík - nú skyldi taka strætó. Smáborgarinn var búinn að sitja nokkra stund í biðskýli í Breið- holtinu án þess að vagninn léti sjá sig þegar gömul, góðleg kona stoppaði hinu megin við götuna og horfði á hann með furðusvip. Að lokum rölti hún að strætóskýl- inu, þar sem smáborgarinn sat með fýlusvip, kaldur og blautur - og hugsaði strætóbílstjóranum þegjandi þörfina. Hún ávarpaði hann kurteislega og hafði þær fréttir að færa að strætóbílstjórar hefðu staðið í harðvítugri kjara- deilu um hríð, og henni hefði lok- ið með ákvörðun um eins dags verkfall. Það verkfall hafði hafist einmitt þennan morgun og því útlit fyrir að smáborgarinn þyrfti að bíða ansi lengi eftir vagninum sínum. Smáborgarinn þakkaði gömlu konunni fyrir og hringdi á leigubíl. Ómögulegt kerfi Þessi saga rifjast reglulega upp fyrir smáborgaranum þegar frétt- ir berast af almenningssamgöng- um á höfuðborgarsvæðinu. Sagan sem sögð hefur verið ótal sinnum sem dæmi um að ekki sé hægt að treysta á þetta kerfi sem fáir nota, fæstir skilja og nánast eng- inn er sáttur við. Smáborgarinn hefur líka í gegnum tíðina verið ákaflega duglegur við að segja söguna af því að versta almanna- samgöngukerfi í veröldinni sé í Noregi - og að þaðan höfum við einmitt ráðið okkur sérfræðinga á sínum tíma til að skipuleggja al- menningssamgöngur í okkar ást- sælu höfuðborg. Honum var sögð sú saga fyrir löngu síðan en aldrei almennilega athugað sannleiks- gildi hennar, enda er sannleikur- inn yfirleitt til ama þegar að góðri sögu kemur. Nýja kerfið ennþá verra... Undanfarið hefur Smáborgar- inn rætt ítrekað um Strætó. Það er nefnilega nýlega búið að taka upp nýtt leiðakerfi á höfuðborgarsvæðinu - kerfi með nýjum fínum stofnleiðum og sér- stökum akbrautum bara fyrir hina stóru gulu bíla. Smáborgar- inn hefur heyrt ótal einstaklinga fara ófögrum orðum um þetta nýja kerfi - það virki enganveg- inn og að enginn leið sé að skilja það. Síðan sé allt of langt á milli biðskýla, og honum sýnist sem svo að kerfið hafi sérstaklega ver- ið hannað með það í huga að hafa biðskýli og stoppistöðvar sem allra allra lengst frá öllu gömlu fólki í borginni - svona rétt eins og til að tryggja þessum hópi aukna hreyfingu. Smáborgaranum sýnist að allir séu sammála um að nýja kerfið sé óskaplega vont og illa ígrund- að. Hann minnist þess hinsvegar ekki að nokkur maður hafi nokk- urntíman talað um hversu gott gamla kerfið var... og veltir því fyr- ir sér hverju við höfum þá tapað? SUD; talnábraut < c. >u Doku - 19. gáta 1 6 3 9 2 5 4 3 4 7 3 1 2 7 4 4 6 7 8 3 8 5 7 8 4 6 1 Lausn á 19. gátu verður að finna i blaðinu á þriðjudag. Su Doku - ausn á 8. gátu 1 7 8 6 5 9 4 3 2 3 9 6 4 « 2 5 7 1 5 2 4 3 7 1 9 8 6 7 4 3 2 9 6 8 1 5 6 8 2 7 1 5 3 9 4 9 1 5 8 J 4 2 6 7 4 5 9 1 Jl 3 Jl 2 8 8 3 1 5 7 6 4 9 2 7 9 4 8 1 3 Leiðbeiningar Su Doku gengur út á að raða tölunum frá 1-9 lárétt, lóðrétt og í þar til gerð box sem innihalda 9 reiti. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í hverri línu og innan hvers Lausn á 18. gátu box. Allar gátur er hægt að ráða út frá þeim tölum sem gefnar eru upp í upphafi. Leitað er að talnapörum og reynt að koma þeirri þriðju fyrir. Tökum dæmi ef talan 7 er i efsta boxinu vinstra megin og því neðsta líka, ætti ekki að vera erfitt að átta sig á hvar 7 á að vera í miðju- boxinu. Ef möguleikarnir eru tveir er ágætt að skrá þá hjá sér og halda J-Lo spurð um Ben& Jennifer Lopez birtist nýlega í við- tali við tímaritið Elle, og var spurð hvað henni fyndist um að Ben Affleck, fyrrverandi unnusti henn- ar, og kona hans, Jennifer Garner, ættu von á barni, og þá svaraði hún: „Ég vona að þau séu ánægð. Þú veist, þetta er fallegur hlutur. Engin sár- indi.“ Lopez hætti með Affleck á síðasta ári, fjórum mánuðum áður en hún giftist latinó söngvaranum Marc Anthony. Affleck og Garner giftu sig í síðasta mánuði og hafa staðfest að þau eigi von á sínu fyrsta barni. Elle baðst síðar afsökunar á að hafa tekið þetta umræðuefni upp, og J-Lo svaraði: „Já þið gerðuð mig þunglynda." Tom & Nic nágrannar Nicole Kidman hefur nú flutt í sama hverfi og Tom Cruise býr í. Eftir að hafa verið skilin í fjögur ár geta þau nú labbað í heimsókn til hvors annars. Tom hefur búið í húsi sínu í Beverly Hills í þrjú ár, en um leið og Nicole sá að eign var þar til sölu keypti hún hana. Ástæðan fyrir þessu er aðallega sögð vera sú að börn þeirra, Connor og Isabella, geti farið á milli eins og þau vilja. “ Hún var eyðilögð eftir skilnaðinn en hún er mjög náin Tom og þau vita að það er mjög sniðugt að búa í ná- grenni við hvort annað útaf börn- unum.”, segir heimildarmaður. Nicole ætlar að taka það rólega og hætta í leiklistinni í nokkurn tíma, og segir: „Þið munuð ekki sjá mig í langan tíma. Gæti ver- ið eitt til tvö ár. Ég ætla ekki að segja ykkur frí-áætlun mína, en það verður nokkur tími áð- ur en ég sný aftur í kvikmynda- leik“. Jessica var með átröskun Jessica Alba, sem að þekkt er úr þátt- unum Dark Angels, hefur nú skýrt frá því að hún hafi átt við átröskun að stríða. Einnig hefur hún viður- kennt að hafa átt við þráhyggju, taugaáföll og svefnleysi að stríða. Jessica hætti í skóla þegar hún var að- eins tólf ára gömul því að henni leið svo illa. “ Ég hætti að fara í venjuleg- an skóla í sjöunda bekk. Ég var með stóra drauma. Ég var mjög einbeitt á unga aldri. Ég hataði skólann. Ég átti enga vini. Allir í fjölskyldunni minni eru í yfirþyngd og mig lang- aði í heilbrigðara líf, svo ég byrjaði að elda fyrir sjálfan mig þegar að ég var tólf ára.”, segir hún. Vanda- málið varð verra eftir að hún tók upp myndina Dark Angel árið 2002, því að þá hætti hún að borða og var með þriggja tíma æfingaáætlun. „Fullt af stelpum eru með át- röskun og ég fékk það líka. Ég fékk algjöra þráhyggju gagnvart þessu.” Þegar Jess gerði sér grein fyrir því að hún var orðin mjög grönn ákvað hún að gera eitthvað í málinu. Að- spurð um útlit sitt sagði hún: „Ég sé mig aldrei sem fallega konu og hef aldrei nýtt mér fegurð til að komast áfram í bransanum.” HVAÐ SEGJA STJÖRNURNAR? ©Steingeit (22. desember-19. janúar) $ Ekki gefast upp þó hlutirnir sýnist vonlaus- ir. öryggi þitt felst í pví að halda þínu striki, sama hvað gerist og það mun rætast úr öllu fljótlega. V Dagurinn í dag hentar til útiveru. Fáðu vin með í göngutúr. FersKt loft og sólskin gerir alltaf kraftaverk. ©Vatnsberi (20. janúar-18. febrúar) $ Það verður ákveðin sérviska í viðskiptun- um í dag. Hún verður ekki mikil en það er aidrei að vita nema hún stækki með tímanum. V Ekki vera hrædd/ur við að sýna bínar skrýtnu hliðar. Það er það sem gerir þig að þeirri manneskju sem þú ert. , Fiskar (19. febrúar-20. mars) $ Það er allt í rólegheitunum þessa dagana. Finndu snilldina sem heltekur fyrirtækið sem þú vinnur hjá og ýttu undir hana á þinn einstaka hátt. V Ekkihaldaafturafþérþegarþúertaðsegja hvað þú vilt. Jafnvel þótt þú vudir ao hægt væri að lesa hug þinn þá er það ekki hægt. Þú þarft því að lesa hug þinn þá er Sað ékki hægt. ] segja slcyTt hvað þao er sem þú vilt. ®Hrútur (21. mars-19.apríl) $ 1 dag er dagurinn þar sem sem þú uppskerð fyrir alla vinnuna sem þú hefiir sinnt sérstaldega vel. Það verður ánægjulegt. V Þú ert því sem næst fullkomin/n í öllu sem þú tekur þér fyrir hendur í dag. Bættu skap og líð- an allra þeirra sem verða á vegi þínum í dag. o Naut (20. apríl-20. maí) $ Fjárhagslegur frami þinn hefst í dag. Ef þú einblínir á fjármál þá geturðu tekið forystuna í þeim efnum fljótlega. V Einn helsti kostur þinn er hollustan og brátt mun reyna á hana í sambandinu. Makinn verður þakklátur að þú tekur hans málstað,þótt hann tjái pað ekki. I Tvíburar (21. maí-21.júní) $ Drekktu í þig allar þær upplýsingar sem þú r og komdu þeun áleiois til peirra sem á þurfa V Orð særa og því. skaltu eæta að því hvað þú segir í dag. Stundum er bara ekki rétti tíminn. Krabbi (22. júní-22. júlí) $ Þú ert í réttu hugarástandi til að taka á móti þessari frábæru hugmynd þegar hún kemur. Vertu viðbúin/n því þú þarft að bregðast fljótt við. ^ Ef þér finnst gaman að skipta þér af þá ættirðu frekar að láta fara lítið fyrir þér. Auðvitað veistu hvað er best að gera en þúþarft að leyfa aðil- anum að komast að því sjálfum. © Ljón (23. júlí- 22. ágúst) isýnaþai ur þú ert með sjáJfa/n þig og stoðu þlna. Fólk mun vera sérstaldega viðkváemt. 4P Skoðaðu vel vandamálin í einkalifinu. Svör- in gætu verið vandasamari en virðist í fyrstu. Meyja (23. ágúst-22. september) Talaðu oft og snemma. Hugmyndum þfn- miklu máli, sér- 0 $ Talaðu ott og snemma. hugn um verður vel tekið og þær skipta mí staklega ef þú vinnur rétt úr þeun. V Notaðu öll þau tækifæri sem þú færð í dag til að ögra þér, sérstaklega ef það er eitthvað sem þú hræðist. Reynslan er besti kennarinn. ©Vog (23. september-23. október) $ Samvinna er mikilvæg núna og afköstin verða þeim mun meiri. Sérstaklega þar sem það ert þú sem heldur þessu öllu saman. V Það er löngu kominn tími til að þú fáir smá list og fegurð í lífpitt. Farðu og sæktu það. Sporðdreki (24. október-21. nóvember) $ Háttvísi hentar þér ekki í dag oe þú mátt búast við að þér lendi saman við einhvern. En svo lengi sem þú veist af því geturðu forðast stóra árekstra. V Ástin er erfið og það er meira en að segja það að opna sig fyrir annarri manneskju. En það er samt eitthvað sem þú verður að gera annars ferðu á mis við lífið sjálft. ©Bogmaður (22. nóvember-21. desember) $ Því fleira fólk sem þú kætir því betur ertu sett/ur í lok dags. Hvort sem það eru viðskiptavin- ir eða samstartsfélagar. Þá ertu rétt manneskja á réttum stað. V Samskiptahæfileikar þínir eru kröftudr. Nýttu þá og sendu tölvupóst, hringdu eða talaou vio einnvern

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.