blaðið - 23.08.2005, Page 14

blaðið - 23.08.2005, Page 14
blaði Útgáfufélag: Ár og dagur ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson. Ritstjóri: Karl Garðarsson. FLUGIÐ TIL KEFLAVIKUR Aðdragandi sveitarstjórnakosninga á næsta ári ætlar ljóslega að vera í lengra lagi. Ekki síst á það við um Reykjavíkurborg þar sem við blasir margra mánaða fjörbrot R-listans, en raun- ar má segja að kosningabaráttan um borgina hafi hafist þegar sjálf- stæðismenn kynntu fjölbreyttar og frumlegar hugmyndir sínar um framtíð borgarinnar. Þó þar hafi ekki verið um eiginlegar tillögur að ræða er ljóst að borgarbúar eru meira en tilbúnir til þess að gera skipu- lagsmál að kosningamáli málanna næsta vor. Miðað við umræðuna í nágrannabyggðum borgarinnar virðist áhuginn ekki vera minni þar. Guð láti gott á vita, því skipulagsmál höfuðborgarsvæðis- ins þola ekki frekari bið til úrlausnar. Hitt er svo annað mál hvort „fagfólkinu1 er treystandi til þess að bæta úr, því það er ekki síst fyrir tilverknað þess sem í ógöngur er komið.“ Stóra jarðsprengjusvæðið i þessari umræðu er Vatnsmýrin og hvað skuli gera við hana. Ljóst má telja að Reykjavíkurflugvöllur verður þar ekki öllu lengur en það vefst enn sem áður fyrir mönn- um hvert skuli flytja miðstöð innanlandsflugs. f því samhengi hafa heyrst hugmyndir um lagningu flugvallar á Álftanesi, í Hvassa- hrauni eða jafnvel úti á Skerjafirði. Hugmyndir af þvi taginu lýsa stórhug og framkvæmdagleði en tæpast aðhaldssemi eða raunsæi. Suður á Miðnesheiði liggur gríðarleg fjárfesting í aðalflugvelli fslands, en fyrir liggur að fslendingar munu taka aukinn þátt í rekstri hans á kom- andi árum og munu vísast axla kostnaðinn allan áður en yfir lýkur. Þar reyndist unnt án mikillar fyrirhafnar að aðgreina millilandaflugið eftir því hvort það er utan eða innan Schengen-svæðisins og vandséð að ekki mætti koma innanlandsfluginu þar fyrir á sama hátt. Sú samgöngubót, sem breikkun Reykjanesbrautar og lýsing hennar er, gerir þann kost enn augljósari og ákjósanlegri. Svo er bara að vona að það verði ekki „fagfólk- ið“ eitt, sem fær að ráða því hvernig Vatnsmýrinni verður ráðstafað. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur. Aðalsími: 510 3700. Símbréf áfréttadeild: 510.3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711. Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur. 14 I ÁLIT ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 2005 blaöið Ólýðræðislegir fléttulistar Hvað er málið með þessa svoköll- uðu fléttulista? Vinstri-grænir eru vístvoðalega hrifn- ir af því að beita þessari aðferða- fræði við að raða a Guömundsson framboðslista sína ................ í einhverju mis- skildu jafnréttisskyni og hafa t.a.m. lýst því yfir að þeir ætli að nota hana fyrir næstu borgarstjórnakosningar. Félagsmenn í Vinstrihreyfingunni - grænu framboði eiga þannig að fá að kjósa í sætin en síðan mun flokks- forystan taka sig til og krukka í framboðslistanum og handstýra niðurröðuninni þannig að konur og karlar séu til skiptis á listanum óháð því hvar fólk lenti á honum fyrir til- stilli hins almenna félagsmanns. Nú síðast var ég svo að heyra að Samband ungra framsóknarmanna vilji að þessari aðferðafræði verði beitt sem víðast af hálfu Framsókn- arflokksins í kosningunum í vor þannig að „ungir frambjóðendur skipi annað hvert sæti.“ Ekki fylgdi þó sögunni hvort það ætti að vera aðeins í þeim tilfellum þar sem upp- stillingarnefndir röðuðu á framboðs- lista eða líka þar sem prófkjör færu fram. Það verður þó að líta svo á að átt sé við bæði tilfellin í Ijósi þess að hvatt er til þess að þetta verði gert sem víðast. Auðvitað ráða einstakir stjórn- málaflokkar því hvernig þeir haga þessum málum hjá sér en menn hljóta engu að síður að gera sér grein fyrir því hversu ólýðræðisleg þessi vinnubrögð eru. Hvernig verið er með þessu að setja upp girðingar og hindranir á frelsi fólks til að velja þá aðila á framboðslista sem það vill að skipi þetta eða hitt sætið. Um þetta hefur vissulega verið fjallað oft áður og m.a. verið tekin dæmi um það hvernig t.d. kynjakvótar í þessum 99........................ Hvernig veríð er með þessu að setja upp girðingar og hindranir á frelsi fólks til að velja þá aðila á framboðslista sem það vill að skipi þetta eða hitt sætið. efnum geta leitt til alveg fáránlegrar niðurröðunar á framboðslista út frá lýðræðislegum sjónarhóli. Þannig geti það hæglega gerst að karlmaður lendi t.d. í öðru sæti list- ans þrátt fyrir að hann hafi hlotið margfalt færri atkvæði en konan sem lendir í þriðja sætinu svo dæmi sé tekið. Eða öfugt. M.ö.o. þýðir það einfaldlega að sá sem lendir t.a.m. í öðru sætinu er mjög ólíklegur til að hafa til þess lýðræðislegt umboð frá meðlimum viðkomandi flokks - sem allajafna ætti að vera það eina sem skipti máli ef lýðræðið væri haft að leiðarljósi. Samfylkingin hefur reyndar sleg- ið öll met í þessum efnum með því t.a.m. að halda prófkjör í Reykjavík fyrir síðustu alþingiskosningar og troðið svo eftir á ýmsum aðilum í sæti ofarlega á framboðlistunum sem ekki höfðu tekið þátt í próf- kjörinu. Fyrir sömu kosningar gagn- rýndu ýmsir á vinstrivængnum það hástöfum að konum hefði fækkað í efstu sætum á sumum framboðslist- umSjálfstæðisflokksins.Sérstaklega var rætt um þetta í Reykjavíkurkjör- dæmunum. Var forysta flokksins hvött til þess að taka sig til og breyta þeirri uppröðun á listunum sem hafði verið niðurstaða opinna próf- kjöra. Sem betur fer datt forystu Sjálf- stæðisflokksins ekki í hug að taka upp á svo ólýðræðislegum vinnu- brögðum og á hún hrós skilið fyrir það. Þetta er í raun sambærilegt við það að eftir alþingiskosningar yrði tekið upp á því að breyta því hverj- ir hefðu verið kosnir á þing svo það fengist einhver uppröðun sem ein- hverjum aðilum þóknaðist, hvort sem það væri að þingsætum væri skipt upp til helminga eftir kyni fólks eða eitthvað annað. Maður spyr sig eðlilega að því hvers vegna verið sé að halda próf- kjör á annað borð ef það á ekki að virða niðurstöðuna og þar með vilja fólksins sem tekur þátt í þeim? Hjörtur]. Guðmundsson Sagnfrœðinemi Rope Yoga er ólíkt öðrum æfingakerfum eins og t.d hlaupum og þolfimi sem reyna mikiö á liði og stoðkerfi, sérstaklega fyrir þá sem eru eldri og þyngri. Roþe Yoga er einstaklega góð og heilþrigð leið til bættrar heilsu. Hreyfingamar eru framkvæmdar í láréttri stöðu og krafturinn í kviðnum er nýttur til að framkvæma þær. Skráning í afgreiðslu Veggsport 577 5555. Eftir sumarsæluna er kominn tími til að koma kroppnum aftur í rétt horf. Ný átaksnámskeið heflast 5. september. Mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga klukkan 6:30, 7:30, 11:00, 12:00 og 17:00 Markmið námskeiðs: Úr fitu í vöðva, aukið þol og vaxandi styrkurl Skráning hjá þjálfurum: Sigga Dóra - 692 3062 / Hjördís - 663 9537 C,kvns&C Jfciisnrrtkt Golfhermir Vorum að bæta við St. Andrews og Druids Glen í safnið. \ V \ ' ; * a’V' ■ \ * Við erum byrjuð að bóka Hvort beijast samtök verslun- ar og þjónustu fyrtr hag versl- unareigenda eða neytenda? Það er að vissu leyti aðdáunar- vert að gefast ekki upp í baráttu fyrir málstað sinn. Að sjálfsögðu spillir ekki að málstaður- inn sé góður. Það verður því miður ekki sagt um mál- stað Samtaka verslunar og þjónustu sem nú eina ferðina enn hamast á nauðsyn þess að hefja sölu á áfengi í almennum verslunum. I pistli frá samtökunum í lok síðustu viku seg- ir:: „Sífellt verður augljósara að tími er kominn til að heimila sölu á létt- víni og bjór í matvöruverslunum og sérverslunum. ÁTVR er löngu horfið frá því markmiði sem lög- in setja henni um að sporna gegn misnotkun áfengis. Þá er ljóst að ÁTVR stendur ekki undir kröfum neytenda um úrval léttvíns sem í boði er líkt og þær verslanir sem eru í samkeppni myndu gera...“ Er þetta rétt? Hjá ÁTVR er hægt að fá keyptar nánast allar vínteg- undir sem framleiddar eru og er mikið álitamál hvort víða finnist verslanir erlendis með meira en tvö þúsund tegundir á boðstólum. Þá má ætla að með breyttu fyrir- komulagi hækkaði áfengi í verði. Þar veldur einfaldlega stærðarhag- kvæmni. Ástæðan fyrir því að verð á áfengi er hátt hér á landi er ekki álagning ÁTVR heldur skattlagn- ing ríkisins. Verslunareigendur hafa sagt mér að þeir myndu aldr- ei geta haft eins lága álagningu og ÁTVR nema þá með því að hafa eingöngu í boði vinsælustu tegund- irnar. Þetta er mergurinn málsins. Á allra smæstu útsölustöðum ÁTVR á landsbyggðinni eru að lágmarki 8o tegundir áfengis. Halda menn að svo yrði áfram eftir að ÁTVR yrði lögð niður? Ahugamenn um sölu á áfengi í matvöruverslunum hafa flestir vilj- að setja einhver skilyrði fyrir leyfi til að versla með áfengi. Þetta þýðir að einvörðungu stærri keðjurnar hefðu tök á að sinna verkefninu. Einokun stórverslana tæki við af ÁTVR ef þessi háttur yrði hafður á. En hvað yrði unnið með því? Jú, það vinnst eitt með því. Umbjóðendur Samtaka verslunar og þjónustu hefðu komist yfir á fengsæl mið. En mér er spurn: Líta Samtök versl- unar og þjónustu ekki á það sem sitt hlutverk að bæta hag neytenda, það er að segja viðskiptavinanna? Ef það er nú svo að úrval minnkaði og verðið hækkaði, væri þá ekki und- arlegt að berjast fyrir fyrirkomu- lagi sem hefði slíkt i för með sér? Og varðandi áfengisstefnuna, þá get ég tekið undir með SVÞ að ÁTVR hefur í seinni tíð stundum farið út á ystu nöf í áróðursmennsku fyrir sinni vöru og hef ég gagnrýnt það. ÁTVR á að sinna viðskiptavinum sínum vel og bjóða uppá góða þjón- ustu en þessi stofnun á ekki að keppa að þvi að koma eins miklu áfengi niður í þjóðina eins og framast kost- ur er. Henni er fengið sitt hlutverk til að þess að reka ábyrga áfengis- stefnu. Þegar hún ekki rís undir því hlutverki sínu á að benda henni á það, ekki hvetja til þess að hlaupið verði frá þessu ætlunarverki eins og Samtök verslunar og þjónustu gera. Samtök verslunar og þjónustu telja sig án efa vera að tala fyrir framför- um og framtíð; einokun heyri fortíð- inni til. Staðreyndin er sú að nánast alls staðar í heiminum breytast nú viðhorfin ört bæði varðandi sölu á áfengi og tóbaki og reglum sem gilda í samfélaginu um neyslu þess- ara efna. í þeirri umræðu þykir það ekki bera vott um afturhaldssemi að vilja sýna varfærni og ábyrgð. Þvert á móti þykja slík viðhorf vísa inn í framtíðina. Ögmundur Jónasson, alþingismaður - www.ogmundur.is Ögmundur Jónasson

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.