blaðið - 23.08.2005, Side 16

blaðið - 23.08.2005, Side 16
16 I VEIÐÍ ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 2005 blaðiö BÍLAÞING HEKLU tXtimrr ntt i natiuhun IhIiiiu Kletthálsi 11 Laugavegi 174 simi 590 5040 www.bilathing.is Laxveiðin: Þverá heldur ennþá toppsœtinu Veiðimaður undirbýr sig fyrir veiðiskapinn í Gljúfurá í Húnvatns- sýslu en þar hafa veiðst 95 laxar og veiðimaður sem var þar fyrir skömmu missti tvo stóra. Mikið úrval af skotveiðibúnaði fyrir gæsaskyttur... Tvíhleypur frá FAIR og Sabatti haglaskot frá " Baschieri og pellagri Einnig veiðirifflar í hreindýraveiðina frá Mannlicher og Sabatti OPIÐ í SUMAR: laugardaga 10-17, sunnudaga 11-16, virka daga 9-19 Neyðarsími allan sólarhringinn 844 7000 Síðumúla 11 • 108 Reykjavík • Sími: 588 6500 • www.utivistogveidi.is Veiðitíminn er farinn að styttast í annan endann en laxar eru ennþá að ganga í laxveiðiárnar þessa dag- ana. Veiðisumarið er eitt það besta í fjölda ára og margir veiðimenn hafa veitt vel. Tugir veiðimanna hafa feng- ið fyrsta laxinn - maríulaxinn sinn og ennþá eiga veiðimenn eftir góða veiða. Þverá í Borgarfirði er komin með 3333 laxa og heldur ennþá toppsæt- inu í veiðinni, Eystri Rangá kemur næst með 3000 laxa og síðan Norð- urá með 2810 laxa. Það er bara spurn- ing hvort Norðurá nær 3000 löxum en líkurnar eru ekki miklar. Stjórn Stangaveiðifélags Reykja- víkur var að hætta veiðum í Norð- urá og þeir fengu 43 laxa og einn hnúðlax: Það var formaður félagsins, Bjarni Júlíusson, sem veiddi hnúðlaxinn sem ekki er algengur í Borgarfirðin- um, frekar fyrir austan. „Ég var á silungasvæðinu í Mið- fjarðará og fékk 8 fiska. Það var ekki mikið af fiski en þó aðeins”, sagði Þráinn Traustason en hann var á silungasvæðinu í Miðfjarðará sem hefur verið frekar rólegt hvað veiði varðar. ■ SérfraeOinaar S' _ li Plælum stangtr, splæsum linur o<j setjum upp. Sportvöruqerðin hf., Skipliolt S. s. 562 H3H3. A myndinni eru standandi: Magnús Sigurgeirsson, Jóhannes Eggertsson, Sigurgeir Magnússon, sitjandi er Eyþór Sigurgeirsson með góða veiði úr Álftá. Settum í 27 íiska og náðum 18 i Álftá með á milli 350-360 laxa núna sem er mjög gott. „Fiskurinn tók mjög grannt og var mjög erfitt að ná honum, allir náðu þó að landa nokkrum fiskum en við misstum allt of marga. Það slapp lax vel yfir 15 pundin við Hólkinn eftir um 20 mínútna viðureign. Áin var sífellt að breyta sér vegna úrhellisrigninga og síðasta daginn var hún búin að hreinsa sig vel. Mjög hátt var í henni eða eins og þegar mest er í henni. Fiskur virt- ist vera um alla á, bæði fyrir neðan og ofan hús og um að gera að prófa alla veiðistaði. Við prófuðum mjög mikið að sýna fiskinum allar gerðir af flugum en hann virtist vera hrifn- ari af maðkinum", sögðu veiðimenn sem voru við veiðar í Alftá á Mýrum og veiddu vel. „Við lentum vel í honum í Álftá þessa tvo daga sem við vorum þar. Við sett- um í 27 fiska og náðum 18 á land og þyngdin var á bilinu fimm til átta pund“, að sögn veiðimanna sem voru að koma úr Álftá á Mýrum fyrir fáum dögum. En áin er komin

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.