blaðið - 23.08.2005, Side 18
ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 2005 blaöiö
Vatnsfæðingar
bannaðar á flest-
um sjúkrahúsum
Konur semfœða í vatni eru
afslappaðri ogfljótari aðjafna sig
Sjúkrahús á íslandi nota margir
hverjir baðkar og potta til slökun-
ar fyrir konur með hríðaverki og
viðurkennt er að það geti auðveld-
að barnsfæðingar. Þrátt fyrir það
banna sömu sjúkrahús konum að
fæða í vatni án haldbærra raka.
Konur sem hafa fætt í vatni segja
það sársaukaminna og afslapp-
aðra heldur en venjuleg fæðing
auk þess sem þær eru fljótari að
jafna sig. Hægt er að fæða í vatni
á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
og í heimahúsi með aðstoð ljós-
móður.
Vilhjálmur Kr. Andrésson, yfirlækn-
ir á kvennadeildinni á sjúkrahúsi
Akraness, segir að vatnsfæðingar
séu ekki leyfðar á Akranesi vegna
þess að það sé ekki nægjanlega ör-
uggt fyrir barnið en heitur pottur
sé notaður til slökunar. Aðspurður
hver hættan sé við vatnsfæðingar
99..........................
Okkur er sennilega ekki
ætlað að fæðastí vatni.
segir Vilhjálmur „Það er vonlaust að
segja það í nokkrum orðum, það er
ekkert einfalt svar við því. Annars
mætti segja að það sé borðleggjandi
vegna þess að okkur er sennilega
ekki ætlað að fæðast í vatni. Það
er ýmislegt sem getur komið upp á,
blæðingar og ýmislegt annað og þá
er oft erfitt að koma konunni upp
úr pottinum. Það er hætta á að barn
sem fæðist í vatni svolgri í sig vatnið
og það leiti í lungun. Þetta er bara
almenn skynsemi."
Vatnsfæðing er auðveldari
Steina Þórey Ragnarsdóttir, ljósmóð-
ir og hjúkrunarfræðingur á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja, segir að
vatnsfæðing sé yfirleitt auðveldari
fyrir konurnar og börnunum reið-
ir ekkert verr af. „Sumar heimildir
segja að vatnsfæðing sé mýkri lend-
ing en venjuleg fæðing enda grípur
barnið ekki andann fyrr en það er
komið upp úr vatninu. Vatnið getur
flýtt útvíkkun og fær konuna til að
slaka á. Það fjarlægir ekki hríðarnar
heldur gerir konuna færari til að tak-
ast á við hríðarnar af því hún nær
betri slökun og líður vel í vatninu.
Við höfum ekki lent í neinum áföll-
um og þetta eru alveg eins fæðingar
og í rúmi, standandi eða sitjandi."
Óhöpp í vatnsfæðingum
Vilhjálmur segir að það hafi komið
upp óhöpp við svona vatnsfæðingar
heima fyrir. „Ekki á íslandi heldur
í Ástralíu. Ég hef þó engar tölur um
hve algengt það er. Við getum náttúr-
lega ekki bannað heimafæðingar en
ef eitthvað kemur upp á þá ber ljós-
móðirin ábyrgð á því.“ Steina Þór-
ey segir að á Suðurnesjum séu þau
með ákveðnar verklagsreglur sem
er farið eftir til að tryggja öryggi
móður og barns. „Við höfum góða
reynslu af vatnsfæðingum og kon-
unum líkar þetta vel enda konurnar
sjálfar við stjórn. Þetta er náttúrlega
leyft á mörgum stöðum út í heimi.“
Engin svör fengust á Landsspítala
Háskólasjúkrahúsi varðandi skort á
þessu fæðingaúrræði þrátt fyrir að
leitað væri eftir þvi.
svanhvit@vbl.is
Mikið úrval af
sœngurgjöfum
^Vlóðiii^ást
Hamraborg 7 S: 564 1451 WWW.modurast.IS
Ól son sinn í heitri sund
lauff umvaíin ástvinum
Sóley Tómasdóttir er tveggja
barna móðir sem hefur fætt bæði
börn sín í heitum pottum án allra
deyfilyfja og segist ekki geta hugs-
að sér venjulega fæðingu. Sóley
eignaðist dóttur í heitum potti á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja ár-
ið 1999 og svo eignaðist hún son
í heitri sundlaug á heimili sinu
árið 2002.
Þegar Sóley ól son sinn á heimilinu
var ljósmóðir viðstödd sem kom með
uppblásna sundlaug. Auk þess kaus
Sóley að bjóða nánustu ástvinum
sínum að fylgjast með fæðingunni
og segir hún að það hafi verið ólýsan-
legt. „Ég hef verið með hríðir án þess
að vera ofan i vatni og það var bara
skelfing. Um leið og ég fór ofan í vatn-
ið var bara eins og ég hefði verið dóp-
uð upp, verkirnir minnkuðu og það
var eins og ég væri rétt að byrja. Mað-
urinn minn, dóttir mín, ljósmóðir,
systur mínar tvær, mamma og pabbi
og tvær systur hennar mömmu voru
viðstaddar. Þetta var alveg magnað.
Bæði fyrir mig og þau. Þetta var eig-
inlega alveg ólýsanleg stund. Þetta
er það ótrúlegasta sem maður gerir,
bæði erfiðasta og flottasta og hræði-
legasta. Að eignast barn er ótrúlegt og
ég held að einmitt þess vegna sé svo
mikilvægt að konan fái að stjórna því
algerlega sjálf hvernig hún vill hafa
þetta, svo lengi sem öryggi barns og
móður er haft í fyrirrúmi. Það verður
að vera þannig að konunni líður sem
best og að hún noti þær leiðir sem
henni finnast ákjósanlegastar til að
lina þjáninguna."
Óskiljanlegt að vatnsfæð-
ingarséu bannaðar
Sóley er ekki alveg sátt við þá stað-
reynd að vatnsfæðingar og heima-
fæðingar séu að mestu bannaðar á Is-
landi. „Mér finnst alveg ótrúlegt að
fólk skuli ákveða það að eitthvað sé
leyfilegt en annað ekki og mér finnst
algjörlega óskiljanlegt að pededin sé
ennþá leyft en vatnsfæðingar ekki.
Pededin hefur ofboðslega sljóvg-
andi áhrif, bæði á móður og barn,
og getur leitt af sér keðjuverkun sem
getur endað með keisaraskurði eða
eitthvað þaðan af verra. Það er alltaf
talað um að mænudeyfing, sem er
99.........................
Það ersvo óþolandi þeg-
ar læknar, ískjóli mennt-
unar sinnar og virðing-
ar í samfélaginu, segja
bara að það sé ýmislegt
sem getur gerst og rök-
styðja það ekki frekar.
talin vera besta deyfingin, eigi ekki
að hafa nein áhrif en hún hefur vit-
anlega mjög mikil áhrif. Það er við-
urkennt að það getur hægt á fæðing-
arferlinu og gert það að verkum að
konur verða of þreyttar til að ná að
fæða barnið og þar með endað í keis-
araskurði. Þetta er allt saman i lagi á
meðan vatnsfæðingar eru bannaðar
án þess að haldbær rök séu til staðar.
Ég held að ástæðan fyrir þessu sé sú
Sóley Tómasdóttir ásamt nýfæddum syni
sfnum Tómasi Schalk Sóleyjarsyni og Ijós-
móðurinni Aslaugu Hauksdóttur
að læknarnir, sem hafa allt um það
að segja hvaða þjónustu konurnar
fá, koma aldrei nálægt náttúruleg-
um fæðingum. Þeir koma bara að
fæðingum þar sem eitthvað er að og
þeir sjá ekki öðruvísi fæðingar. Það
er því skiljanlegt að þeir líti á fæð-
ingu sem stórhættulegan hlut.
Það er svo óþolandi þegar læknar,
í skjóli menntunar sinnar og virðing-
ar í samfélaginu, segja bara að það
sé ýmislegt sem getur gerst og rök-
styðja það ekki frekar. Við eigum
ekki að sætta okkur við það að þeir
geti talað svona við okkur, þeir eiga
að tala við okkur eins og vitrænar
manneskjur.“
Mikil hœtta á
bama
Arlega slasast fjöldi smábarna
þegar þau detta ofan af hjóna-
rúminu eða af skiptiborðinu.
Það er því mjög mikilvægt að skilja
smábarn aldrei eftir eftirlitslaust
eitt augnablik. Það sem margir full-
orðnir gera sér ekki grein fyrir er
að þó að barnið sé það litið að það
sé ekki farið að geta sest upp sjálft
geta þau velt sér og það er nóg til
þess að þau detti á gólfið. Dæmi er
um að eins vikna
gamalt barn hafi
spyrnt sér niður
á gólf af skipti-
borði. Ef smá-
barn dettur ofan
af hjónarúmi eða
skiptiborði þá
samsvarar fallið
því að fullorðinn
einstaklingur
detti ofan af bílskúrsþaki en það
skýrir það hversu slæm höfuðhögg
sum þessara barna hljóta.
Fallhættur eftir 6 mánaða aidur
Þegar börn hafa náð 6 mánaða
aldri þroskast þau hratt og geta farið
að gera meira sjálf. Það er ein góð og
gömul uppeldisregla sem er á þá leið
að það eigi aldrei að lyfta smábarni
upp á eitthvað sem það ekki kemst
sjálft upp á því þá er bara ein leið
niður - þau detta. I tölum frá slysa-
deild má sjá að það er mjög algengt
að börn undir tveggja ára aldri séu
að detta ofan af húsgögnum. Stund-
um er það vegna þess að þau eru að
príla sjálf eða að þeim er lyft þangað
upp og þau skilin eftir.
Börn velta matarstólum
Talsvert er um að börn detti úr eða
velti háum matarstólum og það er
því mjög mikilvægt að þau séu sett
í beisli um leið og þau byrja að nota
hann. Margir trúa því ekki að þessir
traustbyggðu stólar geti oltið en það
er staðreynd að þeir geta allir oltið.
Það er því mikilvægt að verða sér úti
um sérstaka festingu en hún kemur
í veg fyrir að barnið geti spyrnt sér
aftur á bak. Það er mjög upp og ofan
hvort fólk festi börnin sín í kerrur
og vagna en barnið á alltaf að vera
í beisli í þeim.
Höfuð barna er mjög viðkvæmt.
Börn eru völt á fótunum fyrstu
æviárin en þeim verður ekki meint
af að hrasa á jafnsléttu nema þau
séu stöðugt að detta á flísalögð gólf.
Um leið og barnið er komið upp í ein-
hverja hæð eru meiri líkur á því að
þau hljóti alvarlegri áverka. Það er
því mikilvægt að gæta þeirra vel.
I næstu viku mun ég fjalla um inn-
kaupagrindur og slys tengd þeim
Herdís L. Storgaard
Verkefnastjóri barnaslysavarna
Árvekni Lýöheilsustöö
herdis@lydheilsustod.is
www.lydheilsustod.is