blaðið - 23.08.2005, Side 32

blaðið - 23.08.2005, Side 32
32 I MENNING ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 2005 blaöiö Himnariki á fjalimar á ný Himnaríki var fyrsta verkefni Hafn- arfjarðarleikhússins Hermóðs og Háðvarar en í haust eru ío ár frá frumsýningu leikritsins. Af því tilefni verður verkið sett upp á ný. Himnaríki var sýnt roo sinnum vet- urinn 1995-6 en sigurganga þess á sín- um tíma var ekki einskorðuð við vel- gengnina í Hafnarfirði. Árni Ibsen höfundur verksins var tilnefndur til norrænu leikskáldaverðlaunanna. Hafnarfjarðarleikhúsinu var boðið á fjölmargar leiklistarhátíðir i Evrópu og sýndi leikhúsið verkið í Noregi, Svíþjóð og Þýskalandi. Himnaríki var þýtt á fjölmörg tungumál og hef- ur verið sett upp víða í Skandinavíu, baltnesku löndunum, Rússlandi og Þýskalandi, og er í dag örugglega eitt þeirra íslensku verka sem hvað víðast hafa verið sett upp. Leikstjóri sýningarinnar núna er sá sami og fyrir tíu árum, Hilm- ar Jónsson, en þetta var fyrsta at- vinnuuppsetning hans. Úr fyrri sýningunni eru tveir leikarar, Guð- laug Elisabet Ólafsdóttir og Erling Jóhannesson. Nýir leikarar eru Þrúð- ur Vilhjálmsdóttir, Elma Lísa Gunn- arsdóttir og Friðrik Friðriksson, en öll hafa þau starfað með leikhúsinu áður. Frumsýning verður 16. sept- ember. ■ Æfingar eru hafnar á Himnariki eftir Árna Ibsen en leikritið verður frumsýnt í septembermánuði. Blalit/SteinorHugi Strið og friður i Listasafni Sigurjóns Á sumartónleikum Listasafns Sig- Hafsteinsdóttir fiðluleikari og Anna urjóns Ólafssonar í kvöld, þriðju- GuðnýGuðmundsdóttirpíanóleikari dagskvöldið 23. ágúst, leika Auður tvær sónötur; Sónötu fyrir fiðlu og píanó í F-dúr op. 8 eftir Edvard Gri- eg og Sónötu fyrir fiðlu og píanó nr. 1 í f-moll op. 80 eftir Sergei Prokofiev. Auður Hafsteinsdóttir lauk einleik- araprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1983 aðeins 17 ára gömul. Hún stundaði framhalds- nám við New England Conservatory í Boston og lauk Bachelor of Music gráðu með hæstu einkunn. Auður lauk Master of Music gráðu árið 1991 frá University of Minnesota. Hún hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir leik sinn. Anna Guðný Guðmundsdóttir lauk námi frá Tónlistarskólanum í Reykja- vík og Post Graduate Diploma frá Guildhall School of Music í London þar sem hún lagði áherslu á kamm- ermúsík og meðleik með söng. Frá ár- inu 1982 hefur hún tekið virkan þátt í íslensku tónlistarlífi og er einn eftir- sóttasti píanóleikari landsins. Tónleikarnir hefjast klukkan 20:30. Kaffistofa safnsins er opin eftir tón- leika. Aðgangseyrir er 1500 kr. ■ Cornwell segist viss um hafa fundið Kobba kviðristi Metsölulisti erlendra bóka Harry Potter & the Half-Blood Prince J.K. Rowling 2 Mao: the Unknown Story Jung Chang & Jon Halliday 3 Flags of our Fathers James Bradley ^ Fashion History 5 Ultimate Hitchhiker's Guide Douglas Adams HatFullofSky Terry Pratchett 7 KillerSmile Lisa Scottoline 8 The Historian Elizabeth Kosova 5 Sacred Stone CliveCussler 10 Where Rainbows End Ceœlia Ahern Fyrir þremur árum sendi sakamála- höfundurinn Patricia Cornwell frá sér bók þar sem hún tókst á við ráð- gátuna um Kobba kviðristi og hélt því fram að listmálarinn Walter Sickert hefði verið Kobbi. Cornwell var harðlega gagnrýnd fyrir þessa kenningu sína sem var sögð lang- sótt. Nú hefur hún snúið vörn í sókn og safnað nýjum sönnunargögnum til að sanna mál sitt. Til liðs við sig hefur hún fengið sálfræðing sem er sérfræðingur um glæpi, rithand- arsérfræðing og ljósmyndara. Ljós- myndarinn hefur tekið myndir af fingraförum á nokkrum af þeim 600 bréfum sem voru send lögregl- unni á þeim tíma sem morðin áttu sér stað. Almennt hefur verið talið að bréfin væru gabb en Cornwell er Hin umtalaða „How do you like Ice- land?“ er komin í verslanir. Heim- ildarmyndin, sem er eftir Kristinu Ólafs, var sýnd í Sjónvarpinu fyrr á árinu. Hún fjallar um ímynd ís- lensku þjóðarinnar í vitund útlend- inga og fékk sterk viðbrögð og frá- bæra dóma. í myndinni er blandað saman innihaldsríkum viðtölum, upplýsandi staðreyndum og ein- Ein þeirra mynda Walter Sickert sem Corn- well segir benda til sektar hans. þeirrar skoðunar að morðinginn hafi skrifað nokkur þeirra. „Ég er enn sannfærðari nú en áður um að Walter Sickert var morðing- inn og er viss um að hann skrifaði nokkur bréfanna", segir Cornwell sem er einnig þeirrar skoðunar að Sickert hafi málað myndir af fórnar- lömbunum. ■ stöku myndefni þar sem íslenska þjóðin er sýnd á raunsæjan hátt. Meðal álitsgjafa eru tónlistarmað- urinn Damon Albarn, leikkonan Victoria Albarn, leikarinn Terry Jo- nes úrMontyPython, Andrei V. Koz- yrev fyrrverandi utanríkisráðherra Rússlands og John K. Billock stjórn- armaður Time Warner. ■ „How do you like Iceland?” er komin i verslanir Stephen King. Nú er hægt aö kaupa sig inn í skáldsögu eftir hann. Viltu verða skáld- sagnapersóna? Sextán rithöfundar, þar á með- al John Grisham og Stephen King, taka þátt í uppboði á eBay sem haldið verður frá 1. til 25. september. Þar gefst netverjum kost- ur á að kaupa sig inn í skáldsögur rithöfundanna. Hæstbjóðendur fá nafn sitt inn í viðkomandi sögu og verða þannig að skáldsagnapersón- um. Ágóðinn af sölunni mun renna til samtaka sem veita rithöfundum, blaðamönnum og listamönnum ókeypis lögfræðiaðstoð. Rithöfundarnir hafa gert góða grein fyrir því á eBay hvað netverjum stendur til boða. Stephen King segir að persóna í sögu hans Cell geti verið hvort sem er karlkyns eða kvenkyns en sá hæstbjóðandi sem vilji deyja í sögunni verði að vera kona. Peter Straub varar netverja við því að sú persóna sem gæti hlotið nafn hæst- bjóðanda kunni að vera vafasamur karakter. Rithöfundurinn Rick Moo- dy bendir á að þar sem hann viti enn ekkert um persónur í væntanlegri bók sinni þá geti hann ekki heitið hæstbjóðanda því að nafn hans verði á góðri eða vondri persónu en þar sem hann skrifi venjulega ekki um vont fólk þá verði persónan senni- lega sæmilega samúðarfull. Nokkrir rithöfundanna taka fram að ef þeir telji nafn viðkomandi ósmekklegt eða jafnvel móðgandi muni þeir ekki nota það. ■ Handbók gras- nytjungsins Ætigarðurinn - handbók grasnytj- ungsins er komin út hjá Bókaútgáf- unni Sölku. Bókin er 210 blaðsíður og skreytt litmyndum eftir höfundinn, veflistakonuna Hildi Hákonardótt- ur. Hildur sinnir gróðri allan ársins hring og hér leiðir hún lesandann á vit móður náttúru og sýnir fram á hve gott er að lifa í sambýli við hana. Hún lýsir því hvernig má nýta ýmsar jurtir, villtar og ræktaðar, til matar. Inn á milli eru girnilegar uppskriftir og frásagnir um lífið og hugmyndafræði ræktunar. Bókin er gagnlegt uppflettirit en jafnframt saga höfundar sem hefur aflað sér viðamikillar þekkingar á náttúr- unni og þeirri menningu sem teng- ist ræktun. ■

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.