blaðið - 07.10.2005, Side 2
2 I INltfLEJSDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2005 blaöiö
Boðað til
verkfalls
Starfsmannafélag Akraness
hefur boðað til verkfalls n.k.
sunnudagskvöld ef ekki næst
samkomulag um kjarasamn-
ing sem felldur var í fyrradag.
Skelli verkfall á mun starfssemi
m.a. grunnskóla og leikskóla
skerðast verulega. Stjórn
félagsins hyggst funda í dag
með trúnaðarráði þar sem
leitast verður eftir að skýra
afstöðu félagsmanna til samn-
ingsins. Mikil óánægja með
nýtt starfsmat er talin vera
meginástæða þess að samn-
ingurinn var felldur. Bæjarráð
Akraness hefur óskað eftir
því við Starfsmannafélagið
að boðuðu verkfalli verði
frestað um a.m.k. eina viku.
Vestmanna-
eyjar ekki
hluthafi í
Skúlason ehf.
Bergur Elías Ágústsson bæj-
arstjóri segir að bærinn hafi
aldrei verið hluthafi í Skúlason
ehf. sem tengist viðamikilli
rannsókn bresku lögreglunnar
sem greint er frá annars staðar
í Blaðinu. Greint hefur verið
frá því í fréttum að bærinn hafi
verið hluthafi í fyrirtækinu.
Þróunarfélag Vestmannaeyja,
sem m.a. var í eigu bæjarins,
keypti hlutafé í fyrirtækinu
árið 2001 og greiddi 6 m.kr.
fýrir. Þegar Þróunarfélagið var
lagt niður árið 2003 kom í ljós
að Skúlason hafði ekki uppfyllt
kröfur um hlutafélög, um
ársreikninga og annað. Af þeim
sökum taldi bærinn sig ekki
skuldbundinn af samkomulag-
inu og krafðist endurgreiðslu.
Héraðsdómur féllst á rök bæj-
arins, en krafan hefur ekki enn
fengist greidd. Fjárnámsbeiðni
á hendur fýrirtækinu verður
tekin fýrir þann 17. október.
Búðaþjófnaðir
íslenskir starfsmenn
stela mest allra í Evrópu
Nýgerð könnun sýnir að á íslandi stela starfsmenn í meira mœlifrá
vinnuveitendum sínum en í nokkru öðru Evrópulandi. Þjófnaður
viðskiptavina er hins vegar nokkuð undir meðaltali.
Könnunin var gerð af stofnun sem
kallast „Centre for Retail Research“
og náði til 25 landa. Þar kom í ljós
að ísland er efst á blaði hvað varðar
þjófnað starfsmanna úr verslunum.
Á eftir íslandi komu Bretland, Pól-
land og Slóvakía. Grikkland, Portú-
gal og Sviss komu hins vegar best
út úr rannsókninni. Sigurður Jóns-
son, framkvæmdastjóri Samtaka
verslunar og þjónustu kannaðist
við umrædda rannsókn. „Við vísuð-
um þeim sem gerðu rannsóknina
á nokkur fyrirtæki sem létu þeim
svo í té upplýsingar. Ég veit ekki
hve mörg íslensk fyrirtæki tóku
þátt, en þetta voru helstu verslun-
arfyrirtækin sem tóku þátt í þessu.“
Sigurður segir að komið hafi í ljós
að 41,3% af rýrnun vara í verslun-
um á íslandi megi rekja til þjófnað-
ar starfsmanna. „Þessi tala er mun
lægri hér en í Bandaríkjunum, en
við virðumst vera verr settir miðað
við aðrar þjóðir f Evrópu."
Mikil starfsmannavelta
hluti orsakar
Sigurður segir hluta skýringarinnar
megi finna í mikilli starfsmanna-
veltu hér á landi, sérstaklega á
þenslutímum. Þetta gæti því verið
mismunandi eftir árum og árferði.
„Við höfum ekki tekið þátt fyrr svo
maður hefur ekki samanburð. 1
sambandi við heildarrýrnun erum
við ekki illa stödd. Þjófnaður við-
skiptavina er undir meðaltali hér
á landi og rýrnun hjá byrgjum er í
meðallagi.“
Með rýrnun er í þessu sambandi
átt við hlutfall óþekktrar verðmæta-
uppgufunar, sem enginn veit hvað-
an er sprottin. „Það er ljóst að mínu
mati að menn munu fara að vanda
sig betur við ráðningar á starfsfólki
í ljósi könnunarinnar, en það er
bara þannig í svona þensluástandi
eins og nú er að það er erfitt og oft
verða menn hreinlega að taka því
sem býðst. Við reynum þó að fræða
starfsmenn og mennta þá eins og
kostur er í von um að starfsmenn
staldri lengur við á hverjum stað.
Sveinn Sigurbergsson hjá Fjarðar-
kaupum hafði heyrt af málinu þegar
hann var spurður en sagði fréttirnar
ekki koma sér á óvart. „Þetta voru
þó sláandi tíðindi að sjá okkur Is-
lendinga í efsta sæti en ég hef ekki
kynnt mér málið nánar og veit ekki
hvernig þessar tölur eru fengnar.
Þjófnaður starfsmanna hefur þó
ekki verið vandamál hér hjá okk-
ur.“ Aðspurður að því hvernig þeir
hjá Fjarðarkaupum taka á þjófnaði
starfsmanna sagði hann vinnureglu
að kæra allan þjófnað til lögreglu.
Kalla eftir
samstarfi
við verkalýðs-
hreyfinguna
Samtök atvinnulífsins (SA)
kalla eftir samstarfi við verka-
lýðshreyfinguna til að ekki
þurfi að koma til uppsagna
kjarasamninga um næstu ára-
mót.
„Mikið jafnvægisleysi einkenn-
ir íslenskan þjóðarbúskap
um þessar mundir. Hátt fram-
kvæmdastig reynir á þanþol
efnahagslífsins. Neysla heimil-
anna hefur aldrei aukist meira
en á þessu ári og viðskiptahall-
inn slegið fyrri met. Að baki
þessari neysluaukningu stend-
ur mikil skuldaaukning heim-
ilanna samhliða mikilli hækk-
un fasteignaverðs og aukning
kaupmáttar ráðstöfunartekna
á mann sem nemur 12% á síð-
astliðnum þremur árum“ segir
í ályktun SA frá því í gær.
„Stjórn Samtaka atvinnulífs-
ins kallar því eftir samstarfi
við verkalýðshreyfinguna og
aðkomu stjórnvalda um lausn
sem komið geti í veg fyrir upp-
sögn kjarasamninga þannig að
þeir geti haldjð gildi sínu í þau
tvö til þrjú ár sem eftir lifa af
samningstímá flestra samn-
inga. Kjarasamningarnir eru
byggðir á því að stöðugleiki
haldist á samningstímanum
og þann grundvöll þarf að end-
urnýja“ segir ennfremur í álykt-
uninni.
GLUGGI TIL FRAMTÍÐAR
ÞÚ VILT FALLEGA VIÐHALDSFRÍA GLUGGA
■ B
PLASTGLUGGAVERKSMIDJAN
plastgluggaverksmiðjan ehf. i baejarhrauni 6 i 220 hafnafjörður i sími: 564 6080 i fax: 564 6081 i www.pgv.is
PGV f Hafnarfirðl
frðmlelölr hágwön
vlöhflldsfrín PVC-u giuggo
á snmbærllogti votól og gluggð
flom þarfnafit stöðugs vlðhalds
Fjárnám gert hjá Hannesi
Sýslumaður féllst ekki á frestun fjárnáms gegn tryggingu. Endurupptaka á
Englandiframundan.
Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni
prófessor var í gær gert að leggja
fram veðskuldabréf til fjárnáms
vegna greiðslu 12 milljóna króna
kröfu, sem Jón Ólafsson athafnamað-
ur í Lundúnum og gjarnan kenndur
við Skífuna, gerði á hendur honum
vegna meiðyrða.
Lögmaður Jóns, Sigríður Rut Júlí-
usdóttir, léði ekki máls á að fjárnám-
inu yrði frestað þar til héraðsdómur
hefði fjallað um það eins og lögfræð-
ingur Hannesar, Heimir Örn Her-
bertsson, fór fram á. Hún vildi ekki
heldur fallast á frestun fjárnáms
gegn tryggingu og synjaði fulltrúi
sýslumanns þeirri beiðni lögmanns
Hannesar.
Nú standa þvi eftir þrjú mál í stað
eins. Endurupptökumál á Englandi,
annað endurupptökumál varð-
andi aðfararhæfi fyrir héraðsdómi
Reykjavíkur og hið þriðja um emb-
ættisfærslu sýslumanns í gær, sem
Hannes og lögmaður hans vilja ekki
una.
Eins og Blaðið hefur greint frá
dæmdi enskur dómstóll Hannes úti-
vistardómi fyrir meiðyrði, sem hafi
verið höfð í frammi á íslandi 1999, en
voru síðan birt á vefnum. Lögmaður
Hannesar mótmælti fjárnámskröf-
unni og fór fram á aðgerðinni yrði
frestað þar til Héraðsdómur hefði
fjallað um málið. Því hafnaði full-
trúi sýslumanns í gær.
í fjölmiðlum var haft eftir Jón Ól-
afssyni að hann hafi gefið Hannesi
Sigríður Rut Júlíusdóttir, málflutnings-
maður Jóns Ólafssonar, kemur út af
stormasömum fundi hjá sýslumanni.
tækifæri til að draga meiðyrðin til
baka á sínum tíma, en því hafi ekki
verið sinnt.
(2) Heiöskírt 0 Léttskýjaö ^ Skýjað ^ Alskýjað /X Rigning, lltilsháttar m Rignlng 5^9 Súld sjc^ Snjókoma ^7 siydda Snjóél Skúr
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Frankfurt
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madríd
Maliorka
Montreal
New York
Oriando
Osló
París
Stokkhólmur
Þórshöfn
Vín
Aigarve
Dublin
Giasgow
18
21
18
09
18
18
14
17
16
22
21
18
22
24
14
18
14
09
17
23
15
15
///
*o
5”0
6°0
// /
///
///
// /
//<
7° / //
//
///
6‘
Veðurhorfur í dag kl: 18.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands
A morgun
/// ///
r// p/ ///
>//
///
///. /// 3°
///
0 /// ///