blaðið - 07.10.2005, Blaðsíða 22

blaðið - 07.10.2005, Blaðsíða 22
22 I HEILSA FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2005 blaöiö YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT Síðumúla 15, s. 588 57 11 og 694 61 03 YOGA YOGA YOGA YOGA YOGA Líkamsæfingar, öndunar- æfingar, slökun og hug- leiðsla. Sértímar fyrir byrjendur og Morgun-, hádegis-, síðdegis- og kvöldtímar. NÝTT! Astanga yoga barnshafandi konur. www.yogaheilsa.is Jógamiðstöðin www.jogamidstodin.is Afmælistilboð í október Við eigum 4 ára afmæli lO.október. Af því tilefni bjóðum við 4 ára gömul verð á mánaðar- og þriggja mánaða kortum í jóga út október. Mánaðarkort á 5.900 kr. Þrír mánuðir á 12.900 kr. Opnir tímar alla daga vikunnar. Ókeypis prufutímar. Guöjón Bergmann, jógakennari Ármúla 38 - 517-3330 smoothie ávaxtadrykkur úr pressuðum ávöxtum Auglýsingar blaðiða Þrjár tegundir fíknar Þegar fólk heyrir orðin „fíknog „fík- ill“ tengir það þau fyrst og fremst við fíkniefni, eiturlyf og áfengi. En það eru fleiri fíknir en eiturlyfja- fikn og áfengissýki sem hrjáir fólk og eru vandamál í okkar annars ágæta þjóðfélagi. Matarfíkn, spila- fikn og kynlífsfíkn eru t.a.m. fíknir sem eiga ekkert skylt við ávana og fíkniefni í þeim skilningi. Hér ætla ég lítillega að gera þessum þremur tegundum fíkna skil. Ég vil geta þess að hér verður einungis stiklað á stóru og er hægt að lesa sér betur til um þessa sjúkdóma á heilsuvefn- um Doktor.is. Matarfíkn Matarfíkn er sjúkdómur. Matarfíkl- ar eru ekki eins og heilbrigt fólk þegar neysla matar er annars veg- ar. Venjulega hætta menn að borða þegar þeir eru orðnir saddir, það gera matarfíklar ekki. Matarfíklar fela mat til að borða síðar leynilega í einrúmi. Matarfíklar borða mat til að slá á óöryggi og ótta og/eða til að flýja áhyggjur og vandamál. Matarfíklar finna til sektarkennd- ar og skömmustu eftir að hafa borðað. Sjúkdómurinn matarfíkn er þriþættur, líkamlegur, andlegur og tilfinningalegur. Það er hinn lík- amlegi þáttur sjúkdómsins, oftast í formi offitu, sem við berum utan á okkur og er því sjáanlegur. Ástæða þess að matarfíklar ná ekki lang- tímaárangri í megrun er sú að rót vandans liggur í hinum tilfinninga- lega og andlega þætti sjúkdómsins. Þeir skynja boðskipti taugakerfis- ins ekki rétt. Meðan heilbrigt fólk bregst ósjálfrátt við hungri með því að sækja í mat bregðast þeir á sama hátt við reiði, gremju, ótta og fleiri tilfinningum sem hafa ekkert með matarþörf að gera. Einkenni matarfíknar eru: 1. Borðar þú þegar þú ert ekki svangur/svöng? 2. Heldur þú áfram að borða óhóf- lega án þess að kunna á því skýr- ingar? 3. Finnur þú til sektar og eftirsjár þegar þú hefur borðað yfir þig? 4. Eyðir þú miklum tíma og hugs- un í mat? 5. Hugsar þú með ánægju og til- hlökkun til þeirrar stundar þeg- ar þú getur borðað ein/n? 6. Skipuleggur þú þetta leynilega át þitt fyrirfram? 7. Borðar þú í hófi innan um fólk en bætir þér það upp eftir á? 8. Hefur þyngd þin áhrif á það hvernig þú lifir lífinu? 9. Hefur þú reynt megrun í viku eða lengur án þess að ná til- settu marki? 10. Gremst þér það þegar aðrir segja við þig: „Sýndu nú svolít- inn viljastyrk til að hætta að borða yfir þig?“ 11. Ertu enn á þeirri skoðun, þrátt fyrir að dæmin sýni annað, að þú getir farið í megrun „..á eigin spýtur..“ hvenær sem þú vilt? 12. Finnur þú sterka löngun til að borða mat á einhverjum tiltekn- um tíma sólarhringsins sem ekki er matmálstími? 13. Borðar þú til að flýja áhyggjur og vandræði? 14. Hefur þú leitað meðferðar vegna ofáts eða vanda sem teng- ist mat? 15. Valda átsiðir þínir þér eða öðr- um óhamingju? Spilafíkn Samkvæmt skilgreiningu banda- ríska geðlæknafélagsins er spilafíkn sérstakur sjúkdómur sem svipar um margt til áfengissýki. Spilafíkn- in fer ekki í manngreinarálit. Hún fer ekki eftir greind, aldri, kyni eða þjóðfélagsstöðu. Allir sem byrja að spila upp á peninga taka þvi nokkra áhættu sem rétt er að vara við. Af- leiðingar spilafíknar geta verið alvar- legar, ekki síður en annarra fíkna: Upplausn fjölskyldna, rúið traust, sektarkennd og lág sjálfsvirðing svo eitthvað sé nefnt. Góðu fréttirn- ar eru þær að hægt er að ráða bót á þessum vanda með aðstoð fagfólks og stuðningi. Aðvörunarmerki um hugs- aniega spilafíkn: Hefur þú einhvern tíma... 1. Misst úr skóla eða vinnu vegna fjárhættuspila? 2. Spilaðlengurenþúætlaðirþér? Spilað áfram til að bæta upp tap- ið? - Spilað til að gleyma þér og forðast áhyggjur og vanda? 3. Fengið löngun til að halda upp á atburði með því að spila? 4. Slegið lán til að spila eða borga spilaskuldir? 5. Vanrækt sjálfa(n) þig eða fjölskyldu þína vegna spila- mennsku? 6. Spilað til að bjarga fjárhagn- um? 7. Lofað sjálfum þér eða öðrum að hætta spilamennsku, en ekki staðið við það? Hugsaðu málið... Kynlífsfíkn Margir halda að kynlífsfíkn hljóti að vera á einhverju afbrigðilegu sviði, þar séu öfuguggar á ferð, en svo þarf alls ekki að vera. Fíknin getur verið til vandræða þótt hún sé á viðurkenndu sviði svo sem sókn í samfarir, sjálfsfróun, klám og vændi. Annað svið er svo á gráu svæði svo sem sókn í að sýna sjálfa(n) sig, gægjast á glugga, klæm- ast í síma eða á netinu, hafa mök við dýr o.s.frv. Þriðja sviðið er svo sókn í hegðun sem er beinlinis hættuleg og glæpsamleg, svo sem sifjaspell, misnotkun barna og nauðgun. Við rannsóknir hafa greinst ellefu nokk- uð aðskildir hegðunarflokkar kyn- lífsfíkla en þeir eru: 1. Kynórar 2. Daðurkynlíf 3. Kynlíf með ókunnugum 4. Borgað fyrir kynlíf 5. Sala á kynlífi 6. Gægjukynlíf 7. Sýnikynlíf 8. Kynferðisleg áreitni 9. Kvalalosti 10. Munalosti 11. Kynlíf með börnum Fáir fíklar beita sér aðeins að einum flokki. Flestir eru með blöndu af þremur til fjórum flokkum og sum- ir allt upp í sex eða sjö. Fíklar eiga sér þó alltaf uppáhaldshegðun eða blöndu af hegðunum. Jórunn Frímannsdóttir, hjúkrunarfrœðingur og ritstjóri á www.doktor.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.