blaðið - 07.10.2005, Page 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
FðSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2006 blaóiö
Upplýsingar í síma 896-2822
Óhapp varð á gatnamótum Hringbrautar og Bústaðavegar þegar strætisvagn keyrði á nýsteyptan kant með þeim afleiðingum að gat
kom á olíutank svo hráolía fiæddi um allt. Slökkviliðið brást hratt við og hreinsaði olíuna upp. Nýr vagn var sendur á vettvang til þess
að farþegar gætu hafdið för sinni áfram.
framundan
Samkvæmt afkomuspá grein-
ingardeildar KB-banka fyrir
þriðja ársfjórðung 2005 er út-
litið á íslenska hlutabréfamark-
aðnum nokkuð bjart. í spánni
er gert ráð fyrir áframhaldandi
hækkunum hlutabréfa en þó
eitthvað minna en einkennt hef-
ur markaðinn frá því að núver-
andi uppsveifla hófst árið 2003.
Spáin gerir ráð fyrir að hagn-
aður rekstrarfélaga á þriðja
ársfjórðungi 2005 muni nema
um 25,4 milljörðum króna sem
er um 50% aukning frá því á
sama tíma í fyrra en þá nam
hagnaðurinn um 17 milljörð-
um. Stór hluti þessarar hagnað-
araukningar skýrist af miklum
gengishagnaði bankanna og
fyrirtækjanna FL Group og TM.
Spáin gerir ennfremur ráð fyrir
miklum vexti hagnaðar hjá fé-
lögum á borð við SÍF, Bakkavör
og Actavis m.a. vegna fjárfest-
inga erlendis á undanförnum
12 mánuðum. Greiningardeild-
in gerir einnig ráð fyrir því að
hagnaður félaga í afkomuspá
muni nema 81,7 milljörðum
króna á árinu 2006. Þeir gera
ráð fyrir því að nýlegar yfirtök-
ur muni skila sér í rekstri félag-
anna á næsta ári og þar sem
þær hafi í flestum tilfellum
beinst að traustum og vel rekn-
um félögum sé ekki ástæða til
að ætla en að þær muni styrkja
þau á næsta ári. ■
BlaliH/SteinarHugi
Jóhannes Skúlason, einn eigandi og framkvæmdastjóri Skúlason ehf, segir rannsókn
gegn fyrirtæki sínu byggða á misskilningi.
Svik uppá rúmlega 300 milljónir
Að sögn Jina Roe, upplýsingafull-
trúa bresku lögreglunnar, hafa sjö
manns verið handteknir í tengslum
við málið í Bretlandi þar á meðal
einn íslendingur. Mönnunum var
hins vegar sleppt gegn tryggingu
eftir að yfirheyrslum lauk. Roe seg-
ir ennfremur að um 140 manns hafi
tekið þátt í rannsókninni erlendis
og einn starfsmaður embættisins
hafi verið sendur hingað til lands til
að vinna í málinu. Starfsmenn ríkis-
lögreglustjóra hafa lítið vilja greina
frá hlutdeild íslenskra lögregluyfir-
valda í þessu máli og segja það vera
í rannsókn og nú eigi eftir að meta
þau gögn sem komið hafa fram við
húsleitir. Talið er að umrædd fjár-
svik nemi rúmlega 300 milljónum
íslenskra króna. ■
SKRIFSTOFU OG ATVINNUHÚSNÆÐI TIL LEIGU
Til leigu vandað 139 fm skrifstofuhúsnæði (Rvk. allt fyrsta flokks og næg
bílastæði. Húsnæðið er tilbúið til notkunar mjög hagstæð leiga.
Til leigu mjög vel staðsett atvinnuhúsnæði á jarðhæð við Freyjugötu 101 RVK.
Húsnæðið hentar undir verslun, vinnustofu og eða skrifstofur. Húsnæðið er 84,2
fm ásamt geymslum sem eru 42.2 fm samtals 126.4 fm. Húsnæðið er laust.
TILSÖLU
72,8fm húsnæðiájarðhæð aðVesturgötu 101 Rvk. (húsnæðinu hefur verið
rekinn söluturn og videoleiga og er allur búnaður til staðar fyrir þannig rekstur.
Einnig er möguleiki á þvi að breyta húsnæðinu í íbúð. Gott tækifæri fyrir réttan
aðila.
Til tölu 2 samliggjandi sumarbústaðalóðir í landi Miðgengis í Grímsnesi samtals
1.45 ha. Um er að ræða mjög vel staðsettar eignarlóðir.
Segist hissa
og saklaus
Einn íslendingur handtekinn í aðgerðum
bresku lögreglunnar sem teygir anga sína
inn í mörgfyrirtœki
Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglu-
stjóra gerði í fyrradag húsleit í fyr-
irtækinu Skúlason ehf. og á heimili
eins eigenda og framkvæmdastjóra
fyrirtækisins Jóhannesar Skúlason-
ar. Aðgerðirnar komu í kjölfar beiðni
frá deild bresku lögreglunnar sem
fer með rannsókn fjársvikamála og
tengist viðamiklum rannsóknum
sem teygir anga sína inni mörg fyr-
iræki þar í landi. 1 húsleitinni voru
m.a. gögn úr vefþjóni fyrirtækisins
afrituð og í kjölfarið var Jóhannes
boðaður til yfirheyrslu hjá ríkislög-
reglustjóra í gærmorgun.
Víðtæk rannsókn
Jóhannes sagði í samtali við Blaðið
eftir að yfirheyrslu lauk í gær að
rannsóknin hefði komið sem þruma
úr heiðskíru lofti og hvorki hann
né fyrirtæki hans hafi á nokkurn
hátt stundað fjársvikastarfsemi né
sölu á hlutabréfum í gegnum síma
eins og rannsóknin virðist beinast
að. „Ég var yfirheyrður með stöðu
grunaðs manns í málinu og þeir
voru að spyrja mig hvort ég hefði
selt hlutabréf í íslenskum og erlend-
um félögum í gegnum síma. Þetta er
eitthvað sem við höfum aldrei gert
og væntanlega er þetta vegna þess
að við erum að þjónusta fjölmörg
fyrirtæki með símsvaraþjónustu
og þannig bara óvart tengst þessari
rannsókn," segir Jóhannes. Hann
segir þessa rannsókn augljóslega
vera mjög víðtæka og ná til fjölda
fyrirtækja erlendis. „Ég var spurð-
ur um fjöldan allan af fyrirtækjum,
fjölda aðila og hvernig þetta tengist
en ég gat ósköp lítið hjálpað þeim.“
Jóhannes segir fyrirtæki sitt vera
með útibú í Englandi og þar vinni
einn starfsmaður en hann hefði
ekki verið tekinn til yfirheyrslu
af þarlendum lögregluyfirvöldum
né það fyrirtæki verið rannsakað í
tengslum við þetta mál.
úlpur,
dúnúlpur
stuttkápur,
rúskinnsjakkar,
leðurjakkar,
þunnir ullarjakkar,
treflar - hattar
og húfur
50% afsláttur af
ullarkápum í stærðum 38 - 46
Opið virka daga frá kl. 10-18
og laugardaga frá kl. 10-16
Mörkinni 6, sími 588 5518
oooo/tear
^unny
Hlgh Ptrformanc• Tyrtt
bilkoíis'
Rafgeymar'
Smurþjónusta
Peruskipti
FRAMLENOJUMINOKKRA DACA
Það efeðð,
komawétu
Þú faerð heilsársdekk með
20% afslætti hjá Bílkó.
Betri verd!
Smiðjuvegi 34 | Rauð gata | bilko.is | Sími 557-9110