blaðið - 07.10.2005, Side 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2006 blaöiö
Bilun í
varnarbún-
aði olli raf-
magnsleysi
Bilun í varnarbúnaði háspennukerf-
is olli umfangsmiklu rafmagnsleysi
i austurhluta Reykjavíkur og í Kópa-
vogi í fyrrakvöld. Þetta kemur fram
í fréttaskeyti frá Orkuveitu Reykja-
víkur. Nokkurn tíma tók að komast
að upptökum bilunarinnar en um
63 þúsund manns voru án rafmagns
frá 4 mínútum upp í allt að klukku-
stund. Lengst var rafmagnslaust í
Vesturbergi og hluta Fellahverfis í
Breiðholti. Umræddum varnarbún-
aði er ætlað að bregðast við og rjúfa
álag þegar bilun verður í háspennu-
strengjum eða búnaði. ®
Góð Heílsa
gulli betii
www.nowfoods.com
Nýjar vörur
íúrvali
Opnunartími
mán-fös. 10-18
laugardaga 10-16
Nýbýlavegi 12
200 Kópavogi
Sími 554 4433
Verðtryggðir vextir hækka
Áframhaldandi hœkkun verðtryggðra vaxta gœti þýtt að verð áfasteignum lœkki eitthvað
næstu vikur og mánuði
I fréttabréfi greiningardeildar KB-
Banka er sagt frá því að hækkun
verðtryggðra langtímavaxta gæti
leitt til hækkunar á vöxtum fast-
eignalána. Samkvæmt fréttabréfinu
eru verðtryggðir vextir komnir upp
í 3,8% og hafa ekki verið hærri í tæp-
lega ár. Þar segir ennfremur að ef
íbúðalánasjóður heldur 60 punkta
álagi á lánum sínum muni krafan
um verðtryggða vexti hækka úr
4,15% uppí 4,4% eftir næsta útboð
sjóðsins. Greiningardeildin spáir
því að ef vextir hækka mun það
valda lækkunarþrýstingi á fasteigna-
markaði.
Fasteignaverð gæti lækkað
Samkvæmt Snorra Jakobssyni hjá
greiningardeild KB-Banka veltur
möguleg lækkun á fasteignamark-
Fasteignamarkaðurinn hefur róast tölu-
vert á undanförnum vikum
aði fyrst og fremst á tveimur þátt-
um. Annars vegar hvort hér sé um
að ræða varanlega vaxtahækkun og
hins vegar hvort Ibúðarlánasjóður
haldi vaxtalagi sínu. „Eins og um-
hverfið er núna og Seðlabankinn
heldur áfram að hækka vexti þá er
líklegt að vextir verði frekar háir í
bili. Það ætti síðan að öllu óbreyttu
að leiða til þess að íbúðalánasjóð-
ur hækki útlánsvexti sína,“ segir
Snorri. Hann telur að vaxtalækkun-
in í fyrra haust hafi valdið verðhækk-
un á fasteignamarkaði. Hann segir
þó breytingarnar núna verða að öll-
um líkindum mun minni og mögu-
leg verðlækkun verði ekki mikil en
þó einhver.
Jafnvægi á markaðnum
Að sögn Grétars Jónassonar, fram-
kvæmdastjóra Félags fasteignasala,
ríkir gott jafnvægi á markaðnum í
dag og engin ástæða fyrir fasteigna-
eigendur að óttast miklar verðlækk-
anir. „Maður gerir sér auðvitað
grein fyrir því að við erum komnir
í mun eðlilegra ástand en það sem
hefur ríkt undanfarna mánuði. Það
má segja að það sé komið ákveðið
samræmi milli framboðs og eftir-
spurnar." Grétar segir að nokkur
munur sé milli hverfa þar sem sum
þeirra séu vinsælli en önnur. Hann
segir að í vinsælum hverfum gætu
jafnvel fasteignir hækkað en í hverf-
um þar sem eftirspurn er lítil gæti
orðið einhver verðlækkun. „Ég tek
venjulega púlsinn á fasteignasölum
og menn eru almennt sammála um
það að ástandið sé mjög gott á fast-
eignamarkaðnum og menn sjá alls
ekki fram á verðlækkanir á næst-
unni, síður en svo.“ ■
111 14 í framboði í prófkjöri
^ * framsóknar í Kópavogi
Prófkjör um val áframbjóðendum Framsóknarflokksins til setu áframboðslistaflokks-
ins í Kópavogi við sveitastjórnarkosningar 2006 munfarafram í Smáraskóla 12. nóv-
ember. Allir Kópavogsbúar sem náð hafa 18 ára aldri geta tekið þátt. Búist er við harðri
baráttu umfyrsta sœti listans, enda hafa að minnsta kostifimm mannsgefið kost á sér
ífyrsta sœtið. Þeir sem gefa kost á sér eru eftirtaldir:
Andrés Pétursspn,
skrifstofustjóri, 2. sæti
Dolly Nielsen, starfsmaður í dægradvöl, l-4.sæti
Friðrik Gunnar Gunnarsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, 3-6. sæti
Gestur Valgarðsson, verkfræðingur, eitt af efstu sætum
Guðmundur Freyr Sveinsson, Wt|‘ * stjórnmátafræðingur,
3. sæti A-
Hjalti Björnsson,
dagskrárstjóri, 1. sæti
Hjörtur Sveinsson, þjónustufulltrúi
Jóhannes Valdemarsson, rekstrarfræðingur, l.sæti
W
Linda Bentsdóttir,
lögfræðingur, 1. sæti
Ólöf Pálína Úlfarsdóttir, kennari og námsráðgjafi,
Omar Stefánsson, bæjarfulltrúi, l.sæti
JSL
. m m
Samúel Örn Erlingsson, deildarstjóri, eitt af efstu sætum
Una María Óskarsdóttir, ff J uppeldis- og menntunarfræðingur,
l.sæti | —
Þorgeir Þorsteinsson,
verkfræðingur
Gúmmívinnustofan
JEPPLINGADEKK
miciHim
Gróðri
SímifSö:4?2:4i8íi):
Öll glerva
20% afsíæ
Körfur með 50%
afslætti
GUMMÍVINNUSTOFAN
Skipholti 35 105 RVK
Sími: 553 1055
Oöru vrsf blÓMAbúð
Ný pOTTAplöl\ITUSENdÍl\q
Rýiviuivi fyRÍR Nýjuivi vöruivi