blaðið - 07.10.2005, Side 12
12 I ERLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2005 blaöiö
Fellibyljirnir Ríta og Katrín eyðilögðu á annað hundrað olíuborpalla í Mexíkóflóa.
Tjón Rítu og Katrínar kemur í Ijós:
Á annað hundrað bor-
palla eyóilögöust
109 olíuborpallar og fimm borar
eyðilögðust í fellibyljunum Rítu og
Katrínu sem gengu yfir Mexíkóflóa.
Þrátt fyrir það mun aðeins litill
hluti framleiðslunnar eyðileggjast
fyrir fullt og allt samkvæmt upp-
lýsingum frá ríkisstjórn Bandaríkj-
anna. Mestar skemmdirnar urðu af
völdum Rítu en hún eyðilagði 63 bor-
palla og olli alvarlegu tjóni á 20 til
viðbótar þegar hún reið yfir svæðið
í síðasta mánuði. Nærri þriðjungur
allrar hráolíuframleiðslu Bandaríkj-
anna fer fram við Mexíkóflóa.
Alls lágu 2900 olíuborpallar í slóð
fellibyljanna tveggja. „Ekki liggur
fyrir opinbert mat á tjóninu í dölum
eða hver kostnaðurinn við að gera
við búnaðinn verður en ljóst er að
hann mun skipta milljörðum dala,“
sagði Gale Norton, innanríkisráð-
herra Bandaríkjanna. Gale sagði að
margir borpallanna sem hefðu eyði-
lagst hefðu verið á síðasta snúningi
og því myndi ekki nema lítill hluti
framleiðslunnar glatast.
ROKK A GRAND ROKK
FOSTUDAGUR 7. OKTÓBER
PUBQUIZ
DIMMA
LAUGARDAGUR 8. OKTOBER
BOOTLEGS
SUNNUDAGUR 9. OKTOBER
HVÍLDARDAGSKVOLD
FIMMTUDAGUR 13.0KTÓBER
TÓNLEIKAR
í MINNINGU JOHN PEEL
Atlantshafsbandalagið sendir liðsauka til Afganistan:
Púsundir her-
manna til viðbótar
Jaap de Hoop Scheffer, aðalritari Atlantshafsbandalagsins, og Hamid Karzai, forseti Afganistans, heilsast við upphaf fundar þeirra í
Kabúl í gær.
Atlantshafsabandalagið hyggst
senda þúsundir hermanna til við-
bótar til Afganistan og gæti heildar-
fjöldi hermanna bandalagsins í land-
inu orðið allt að 15.000 í kjölfarið.
Hersveitir Atlantshafsbandalagsins
hafa verið í Afganistan síðan síðla
árs 2001 og sinna einkum friðar-
gæslu. Nú eru um 10.000 hermenn
á þeirra vegum í landinu, þar af um
2000 sem sendir voru til að tryggja
öryggi í kringum þingkosningar í
landinu í síðasta mánuði.
Meginástæða fjölgunarinnar er
sú að Bandaríkjamenn hafa í hyggju
að senda stóran hluta sinna sveita til
suðurhluta landsins til að taka þátt
í átökum við uppreisnarmenn Tali-
bana og leita að Osama bin Laden,
leiðtoga A1 Kaída samtakanna. Nú
þegar eru um 20.000 bandarískir
hermenn á þessum slóðum. Öfugt
við bandarísku hersveitirnar taka
sveitir Atlantshafsbandalagsins
ekki þátt í aðgerðum gegn uppreisn-
armönnum.
Bandaríkin þrýsta á bandamenn
Bandarískar hersveitir eru um tveir
þriðju erlends herafla í Afganistan
og hafa bandarísk stjórnvöld þrýst
á bandamenn sína í Evrópu að taka
meiri þátt í aðgerðum gegn uppreisn-
armönnum. Bæði Frakkar og Þjóð-
verjar hafa hafnað beiðni Banda-
ríkjamanna og leggja áherslu á að
þau eigi að halda sig við friðargæslu.
Stjornarskrar-
drögum dreift í gær
1 gær hófst dreifing á drögum að
nýrri stjórnarskrá Iraks sem þjóðin
mun annað hvort samþykkja eða
hafna í þjóðaratkvæðagreiðslu i
næstu viku. Degi fyrr náðust sættir
í deilu um framkvæmd þjóðarat-
kvæðagreiðslunnar milli sjíta og
súnní-múslima. Hætt var við um-
deildar breytingar á kosningalögum
vegna þrýstings ffá Sameinuðu þjóð-
unum og Bandaríkjunum. Leiðtogar
súnní-múslima sem höfðu hótað að
sniðganga atkvæðagreiðsluna lýstu
yfir ánægju sinni með ákvörðunina
og ætla nú að fylkja liði á kjörstað og
fella drögin.
Lögfræðingur les stjórnarskrár-
drögin í borginni Basra í írak í gær.
Getty skilar
umdeildum
fornmunum
Stan veldur usla í Mið Ameríku
Dauösföllum fjölgar
Fjölskylda yfirgefur heimili sitt í kjölfar aurflóða f Guatemala.
Tilkynnt hafði verið um meira búast yfirvöld í Gvatemala við að
en 160 dauðsföll í Mið Amer- tala látinna muni hækka. Gríðarlegt
fku í gær í kjölfar hitabeltis- eignatjón hefur einnig orðið vegna
lægðarinnar Stans. Flest dauðsföll- mikillar úrkomu og flóða á svæðinu.
in eða 79 áttu sér stað í Gvatemala Veðurfræðingar hjá Fellibyljamið-
og í nágrannaríkinu E1 Salvador stöð Bandaríkjanna gera ráð fyrir
fórust 62. Björgunarsveitir eru enn áframhaldandi úrkomu næstu daga.
að störfum á hamfarasvæðunum og
J. Paul Getty-listasafnið í Banda-
ríkjunum hefur samþykkt að
skila þremur fornum listaverk-
um sem grunur leikur á að hafi
verið stolið frá Ítalíu. Rocco
Buttiglione, menningarmála-
ráðherra Ítalíu, segir að maður
verði sendur til Bandaríkjanna
til að endurheimta verkin.
ítalskir saksóknarar ákærðu
í júlí Marion True, safnstjóra
Getty-safnsins, fyrir að hafa
veitt viðtöku stolnum fornmun-
um sem grafnir voru úr jörðu
á Italíu og keyptir til safnsins
á milli 1986 og loka tíunda ára-
tugarins. Saksóknarar telja að
munirnir séu stolnir eða hafi
verið grafnir upp ólöglega. Þar
á meðal er verðmæt forn stytta
af grísku gyðjunni Afródítu.
Arið 1999 skilaði safnið
þremur munum til Italíu
en alls fara Italir fram á að
það skili 42 munum. True
hefur neitað ákærum og
nýtur stuðnings safnsins.