blaðið - 07.10.2005, Qupperneq 26
26 I TÍSKA
FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2005 blaöið
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson leggur jafnréttisbaráttunni lið
Andsvar við karlrembu
Trophy wife eða
verðlaunaeiginkona er þekkt
hugtak sem margir kannast við.
Fyrir þá sem kannast hins vegar
ekki við þetta hugtak merkir það
eiginkonu sem er skrautmunur
fyrir eiginmanninn - sæt og
fín, vel til fara og brosir og hlær
á réttum stöðum. Sigurgeir
Orri Sigurgeirsson hefur nú
lagt kvennabaráttunni lið með
bolum sem hann fékk hugmynd
að og á stendur Trophy husband
- eða verðlaunaeigimaður sem
er andsvar við Trophy wife
hugtakinu.
Free Bobby Fischer
,Sagan bakvið bolinn er í raun sú
að ég er með bloggsíðu þar sem
einn flokkurinn heitir Egozentric
Designs. Þar hanna ég ýmsa hluti t.d.
byrjaði ég á því að gera Free Bobby
Fischer bol þegar hann sat í fangelsi.
Á honum stóð Free Bobby Fischer.
Ég gerði raunverulega ekki bolinn
sjálfan heldur setti bara mynd af
honum á bloggið. Síðan fékk ég
hugmynd af Trophy husband og
setti mynd af svoleiðis bol á bloggið
segir Sigurgeir.
Frænka hans sem er með vinsæla
bloggsíðu og er með hlekk á hans
blogg vakti síðan athygli á bolnum
og vinkonur hennar vildu ólmar fá
slíkan bol á karlana sína. Þá ákvað
hann að að láta prenta á nokkra boli.
Sigurgeir hefur ekki útilokað að gera
annan bol þar sem á stendur Trophy
boyfriend - eða verðlaunakærasti
- til að þær yngri eða ógiftu geti gefið
kærustum sínum.
Upprunaleg teikning bolsins
Ekki öfgafullur femínisti
„Hugmyndin var aldrei að græða
neitt á þessu heldur hafa gaman af
því. Þetta var í raun bara hugmynd
sem vatt upp á sig og ég vildi líka
leggja jafnréttisbaráttunni lið,“ segir
Sigurgeir.
Bolurinn er tilvalin gjöf fyrir
konuraðkaupahandaeiginmönnum
sínum - bara upp á grínið. Sigurgeir
hafði samband við femin.is og þær
hrifust svo að hugmyndinni að nú
er hægt að kaupa bolinn í gegnum
vefinn.
Sigurgeir segist vera femínisti án
þess þó að fara út i öfgar.
„Ég er femínisti í gegnum
bókmenntir og aðrar greinar.
Femínismi er mjög frjór jarðvegur.
Konur hafa ekki notið sannmælis
á mörgum sviðum en það er að
breytast. Þetta er eins og í öllu þar
sem ríkt hefur tómarúm þá er svo
spennandi þegar það fer að fyllast.“
Mótmælaát
Sigurgeir er að fara að gefa út
smásögusafn á næstu vikum og það
er engin tilviljun að bolirnir séu
kynntir á þessum tíma.
„Síðast þegar ég skrifaði skáldsögu
þá fór ég í mótmælaát. Þá var
Guðrún Eva Mínervudóttir að gefa
út skáldsögu og fór í mótmælasvelti
gegn virkjunum til að vekja athygli
á bókinni sinni. Þá fannst mér mjög
fyndið og alveg tilvalið að byrja
að borða of mikið til stuðnings
virkjunum og til að vekja athygli á
minni bók. Það skiptir miklu máli
þegar maður er að vekja athygli
á einhverju að gera það í góðum
fíling og með smá háði. Ef maður
fer að mótmæla með kjafti og klóm
eru fleiri sem fussa og sveia svo
það er mikilvægt að gera þetta á
léttu nótunum og styðja verðugan
málstað. Þess vegna var fínt að fara í
baráttuherferð fyrir kvenréttindum
núna,“ segir Sigurgeir.
Eins og fyrr segir er hægt að
nálgast bolina á femin.is. Þeir kosta
1880 krónur.
katrin. bessadottir@vbl. is
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
HYUNDAI - RENAUIT - BMW - LAND ROVER
Sama hvernig
þaö lítur út
fáðu kaupaukann beint í veskið
*Frí ábyrgðar- og kaskótrygging í 1 ár. Gildir ekki meö öörum tilboöum.
Bensínkort með 50 þúsund króna inneign
og fri ábyrgðar- og kaskótrygging* fylgir nú
öllum nýjum bilum frá B&L. Ef þú ert í
bílahugleiðingum, fáðu þér nýjan og glæsilegan
Hyundai, Renault, Land Rover eða BMW með
kaupauka sem þú færö beint í veskið, að
verðmæti allt að 140 þúsund krónur.
Komdu við hjá okkur. Við erum með bílinn
handa þór.
HYunoni
hefur geeöin
REMAULT
B&L - Grjóthálsi 1 - 110 Reykjavík - 575 1200 - WWW.BL.IS
OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ KL. 10 TIL 18 OG LAUGARDAGA FRÁ KL 12 TIL l6.
GO BEYOND"'
Bflasala Akureyrar sími 461 2533 • Bflás Akranesi sími 431 2622 • SG Bflar Reykjanesbæ sfmi 421 4444
Áki Sauðárkróki sfmi 453 6140 • Bíla- og búvélasalan Hvammstanga sfmi 451 2230 • Álaugarey Höfn sfmi 478 1577