blaðið - 07.10.2005, Page 28
28 I HELGIN
FðSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2005 blaöið
Sýningar i
Kling & Bttng
gallerí
í kvöld kl.17. opna myndlistarmenn-
irnir Steinunn Helga Sigurðardóttir
og Morten Tillitz sýningar í Kling &
Bang gallerí. Báðir listamennirnir
eru búsettir í Danmörku. Steinunn
Helga hefur gert þrenns konar verk
fyrir sýninguna en það eru stað-
bundin verk, innsetningar í rými og
röð teikninga. Síðastliðin 18 ár hef-
ur Steinunn safnað sandi alls staðar
að úr heiminum. Hluta af sandin-
um hefur hún safnað sjálf og öðrum
sandi verið safnað fyrir hana. 1 verk-
inu Samhengi notar hún hluta af
safnaða sandinum í fyrsta sinn. Lit-
irnir á sandinum eru mismunandi,
allt frá algjörlega svörtum sandi yf-
ir í margs konar liti, rauðan, gulan,
bláan og gráan alla leið yfir í hvítan.
Steinunn sýnir einnig verkin Snertu
gleðina sem er sería af teikningum
í nálgun við þrívíða hluti, teikning-
ar gerðar með fínum barnalitum,
perlum, nálum og þráðum o.s.frv.
Morten Tillitz verk eru í andstæðu
við vel skilgreindu verk Steinunnar,
þar sem verk hans með sínu ólíka
yfirborði hrærast við hvort annað
og mynda samhengi sín á milli þrátt
fyrir leit sína í ólikar áttir. Verk hans
taka öll mið af einni setningu sem er
einnig titill sýningar hans; Höfuðið
er hringlaga svo hugsanir geti skipt
um áttir. Sýningarnar í Kling &
Bang gallerí standa til 30.október og
er opið fimmtudaga til sunnudaga
frá klukkan 14 -17. ■
Opinn umræðu-
fundurí
Alþj óðahúsinu
í kvöld munu UNIFEM á Islandi,
Alþjóðahúsið og Alþjóðleg kvik-
myndahátíð í Reykjavík halda opinn
umræðufund um efni myndarinnar
Beint á vegginn (Gegen die Wand),
sem fjallar um tyrkneska innflytj-
endur í Þýskalandi, og málefni inn-
flytjenda. Gestir fundarins verða
Guðlaug Björnsdóttir, meistara-
nemi í mannfræði við HÍ og Sabine
Leskopf frá Samtökum kvenna af er-
lendum uppruna. Fundurinn verður
United Naiions ÐevelopmeRt Fund for Wotnen
í Alþjóðahúsinu og hefst kl. 22:00. í
tilefni af sýningu myndarinnar verð-
ur einnig hægt að panta tyrkneskan
mat á Café Cultura, Hverfisgötu 18,
dagana sem myndin er sýnd: 29.
september og 7. október. ■
IFiMl/J
Sýning á verkum Jóns M. Baldvinssonar
„Með seinni skipunum"
Sýning á verkum Jón M. Baldvins-
sonar var formlega opnuð í Lista-
sal Mosfellsbæjar í Bókasafninu í
Kjarna, Þverholti 2, laugardaginn 1.
október. Um yfirskrift sýningarinn-
ar segir Jón: „Það má segja að þessi
sýning mín sé með seinni skipun-
um þar sem ég hef ekki sýnt í langan
tíma, eða þrjú ár“. Á sýningunni eru
tólf verk, þar af níu ný verk sem Jón
málaði að hluta til í Flórida í janúar
síðastliðnum. Sýningin er opin á af-
greiðslutíma Bókasafns Mosfellsbæj-
ar, virka daga frá 12-19, laugardaga
12-15. Lokað á sunnudögum. Sýning-
in stendur frá 1.-16. október 2005. ■
Portrettónleikar
Tónleikar með verkum
eítir Karólínu Eiríksdóttur
Ungt tónlistarfólk miðpunkti
Tónleikar með verkum eftir
Karólínu Eiríksdóttur verða
í Listasafni íslands laugardag-
inn 8. október, kl. 17.30. Flutt verða
einleiks-og kammerverk frá tíma-
bilinu 1992-2002, en þar af verður
eitt verkanna frumflutt; Strengjalag
fyrir víólu og pianó. Verkin sem
munu heyrast eru af ýmsum toga.
Viðamesta verkið á tónleikunum
er Að iðka gott til æru sem byggir
á lögum úr íslenskum handritum.
Ungt tónlistarfólk er í miðpunkti á
tónleikum og flytjendur eru meðal
annars Ásgerður Júníusdóttir, mezz-
ósópran, Matthías Birgir Nardeau,
óbóleikari, Ingólfur Vilhjálmsson,
klarinettleikari, Una Sveinbjarnar-
dóttir, fiðluleikari, Guðrún Hrund
Harðardóttir, víóluleikari, Hrafn-
kell Orri Egilsson, sellóleikari
Tinna Þorsteinsdóttir, píanóleikari,
Guðrún Óskarsdóttir, semballeikari,
Kammerkór Suðurlands í Skálholti
og Hilmar Örn Agnarsson, kórstjóri.
Flutt verða einleiks- ogkammerverk
frá tímabilinu 1992-2002. ■
Efnisskrá:
• Renku (1992) fyrir klarinett,
fiðlu, selló og píanó
• Na Carenza (1993) fyrir mezz-
ósópran, óbó og víólu
• Hugleiðing (1996) fyrir fiðlu
Capriccio (1999) fyrir klarin-
ett og píanó
• Strenglag (2002) frumflutn-
ingur fyrir víólu og píanó
• Miniatures (1999) fyrir klar-
inett, fiðlu, selló og píanó
• Að iðka gott til æru (2001)
fyrir mezzósópran, óbó,
víólu, selló, sembal og kór
Sisal
náttúruleg gæöi
Sisal eru falleg gólfefni ofin úr
náttúrulegu efni á góöu veröi.
Ef þú ert að byggja eða endurnýja
húsnæöi þá býöur sisal upp á marga
skemmtilega möguleika.
o
ÓíipneÁ/