blaðið - 07.10.2005, Síða 32
321 MENNING
FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2005 blaöið
Kvikmyndatónleikar
og málþing um Hitchcock
Kvikmyndatónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands í samstarfi við Kvik-
myndasafn fslands hafa frá upphafi
vakið gríðarlega athygli, enda ekki
á hverjum degi sem hægt er að sjá
meistarastykki hvíta tjaldsins við
undirleik heillar Sinfóníuhljóm-
sveitar. Líkt og áður er boðið upp á
tvenna tónleika í Háskólabíói auk
pallborðsumræðna í Norræna hús-
inu.
Áhrifaríkt myndmál
Á laugardag klukkan 16.00 verður
sýning á Borgarljósum Chaplins og
næstkomandi miðvikudag klukk-
an 19.30 er The Lodger eftir Alfred
Hitchcock á dagskrá. Málþing um
Hitchcock verður síðan haldið í Nor-
ræna húsinu nú á mánudag og hefst
klukkan 18.00. Meðalþátttakenda er
Ásgrímur Sverrisson sem mun fjalla
um kvikmyndir meistarans.
„Það sem heillar mig kannski fyrst
og fremst við myndir Hitchcocks er
hvað myndmálið í þeim er áhrifa-
ríkt,“ segir Ásgrímur. „Hitchcock
sagði einhvern tíma að það ætti að
vera hægt að horfa á myndir hans án
hljóðs og þær myndu samt skiljast.
Mig langar til að prófa þessa kenn-
ingu og sýna nokkur brot úr mynd-
unum og ræða um það hvort þessi
kenning standist.
Guð á Ólympsfjalli
Ásgrímur segir Vertigo bestu mynd
Hitchcocks að sínu mati. „Hún er
uppáhaldsmynd mín eftir hann en
mér þykir einnig vænt um North
by Northwest, þótt hún sé léttari og
það séu ekki eins djúpar sálfræðileg-
ar vangaveltur í henni. Vertigo er
mesta meistaraverkið en Hitchcock
átti sannarlega mörg meistaraverk.“
Aðspurður hvort Hitchcock sé
einn af eftirlætisleikstjórum hans
segir Ásgrímur: „Það er erfitt að
segja annað. Þetta er eins og að
spyrja: Er ekki Halldór Laxness
einn af þínum uppáhaldsrithöfund-
um? Hitchcock er þvílík stærð í kvik-
myndasögunni að það er ekki annað
hægt en að setja hann í eitt af topp
tíu sætunum. Hann er einn af guðun-
um á Ólympsfjalli," segir Ásgrímur.
Málþing um meistara Hitchcock verður f
Norræna húsinu næstkomandi mánudag.
Sýningarnar i Kling & Bang gallerí standa til 30. október og er opið fimmtudaga til
sunnudaga frá klukkan 14 -17.
demetra
Skólavörðustíg 21a Sími 551 1520
HA LaSTútsalan
í fullum gangi
(fCœsifegur ífistaCCog Cianfunnið ísCenskt gCer
TráCcert verö, miCfö úirvaC
Snertu
gleðina
Föstudaginn 7. október kl.17. opna
myndlistarmennirnir Steinunn
Helga Sigurðardóttir og Morten Til-
litz sýningu í Kling & Bang gallerí.
Báðir listamennirnir eru búsettir i
Danmörku.
Fyrir sýninguna í Kling & Bang gall-
erí hefur Steinunn Helga gert þrenns
konar verk; staðbundin verk, innsetn-
ingar í rými og röð teikninga.
Síðastliðin 18 ár hefur Steinunn
safnað sandi alls staðar að úr heim-
inum. Hluta af sandinum hefur hún
safnað sjálf og öðrum sandi verið safn-
að fýrir hana. t verkinu Samhengi
notar hún hluta af safnaða sandinum
í fyrsta sinn.
Á öðrum stað í galleríinu verður
verkið Hús, sem mun lýsa upp stað-
inn. t fyrstu virðast húsin öll eins,
en glóa í sínum sjálfstæðu litum þar
sem hver sá er lítur inn mun kynnast
fimm mismunandi yfirborðum, er
skapa gólf, veggi, húsenda og loft allt
í sínum eigin stíl.
Steinunn sýnir einnig verkin Snertu
gleðina sem er sería af teikningum í
nálgun við þrívíða hluti, teikningar
gerðar með fínum barnalitum, perl-
um, nálum og þráðum o.s.frv.
Verk Morten Tillitz eru í andstæðu
við vel skilgreind verk Steinunnar.
Hausverk, veggverk og innsetning
kallast á við teikningar sem Morten
hefur unnið út frá teikningum, blaða-
úrklippum, ljósmyndum og umslög-
um sem faðir hans heitinn eerði.
Er Shakespeare
ekki höfundur
verka sinna?
Shakespeare skrifaði ekki meistara-
verk sín heldur eru þau verk aðals-
mannsins og diplómatsins Henry
Neville. Þetta er niðurstaða Brendu
James, bresks sérfræðings í Shake-
speare, og sagnfræðingsins William
Rubinstein sem seinna í þessum
mánuði senda frá sér bók um efn-
ið. Þau hafa unnið í fimm ár við
rannsóknir á ýmis konar skjölum
og gögnum og telja að Neville hafi
skrifað leikrit sem Shakespeare hafi
fengið heiðurinn af.
Þau segja að pólitískir atburðir
sem leikritin fjalli um og lýsingar
sem eru þar á landslagi og staðhátt-
um smellpassi við ferðalög Neville
á árunum 1562 til 1615. I Rómeó og
Júlíu, Skassið tamið og Kaupmann-
inum frá Feneyjum sé til dæmis
að finna lýsingar á staðháttum frá
Norður-Italíu en þar dvaldi Neville
um tíma á árunum 1581 og 1582.
Höfundarnir telja að Neville hafi
einnig skrifað meistaraverkið Ham-
let. Hann hafi fengið nákvæmar
upplýsingar um sögu Hamlets og
aðstæður í Danmörku þegar hann
dvaldi í Póllandi og hafi hugsanlega
farið til Danmerkur.
Að sögn höfunda eru sláandi lík-
indi með stíl og texta í einkabréf-
um Neville og leikritum og ljóðum
Shakespeare. Neville þorði ekki að
opinbera sig sem höfund verkanna
vegna þess að þau voru að hluta til
pólitískt eldfim og því fengið Shake-
speare til að gangast við þeim. Ef
komist hefði upp um að Neville
væri höfundur Ríkharðs II hefði
hann verið sóttur til saka, segja höf-
undarnir.
Myndatexti. I nýrri bók er þvl haldið fram aö Shakespeare hafi ekki skrifað meistaraverk-
in sem eru eignuð honum.