blaðið - 22.11.2005, Blaðsíða 2
2 I INNLENDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 2005 blaöið
SUSHI
T H H I n
OPNAR1. DESEMBER
[LÆKJARGATA]
Hvergi í heiminum eru færri inn-
lendar trjátegundir en hér á landi.
Skógrœkt:
Tegundir
hvergi færri
Einungis þrjár innlendar trjá-
tegundir er að finna á íslandi,
en þær eru birki, reyniviður og
blæösp. Þetta þýðir að ísland
hefur fæstu innlendu trjáteg-
undir allra landa í heiminum
samkvæmt nýrri skýrslu
Matvæla- og landbúnaðarstofn-
unar Sameinuðu þjóðanna.
Á hinum enda skalans en
Brasilía, en þar í landi vaxa
7780 nátúrulegar trjátegundir.
Vöruskiptahalli:
Minnkar milli
mánaða
Vöruskiptahalli var á bilinu 6
til 8 milljarðar króna í októb-
ermánuði að mati greininga-
deildar íslandsbanka, og hefur
hann minnkað nokkuð milli
mánaða. 1 Morgunkorni bank-
ans segir að innflutningur hafi
minnkað til muna, en á móti
komi að útflutningur sjávaraf-
urða hafi verið með minna móti.
Banaslys á
sunnudag
Nafn mannsins sem lést
þegar bíll sem hann ók lenti
út í Norðurá í Borgarfirði er
Sigurður Jóhann Hendriks-
son, til heimilis að Reyrengi
32,112 Reykjavík. Sigurður
lætur eftir sig eiginkonu
og tvö uppkomin börn.
FRJÁLST
ét ar
blaðið=
IMýir hluthafar Árvakurs
koma inn í stjórnina í dag
Rcett um að Ragnhildur Geirsdóttir verði starfandi stjórnarformaður. Blásið til mikillar
sóknar áfjölmiðlamarkaði. Nýr ritstjóri ráðinn á nœstunni en Styrmir situr áfram.
Ragnhildur Geirsdóttir, fyrrver-
andi forstjóri FL Group, verður að
líkindum næsti stjórnarformaður
Árvakurs, útgáfufélags Morgun-
blaðsins. Ný stjórn verður kjörin á
hluthafafundi félagsins, sem boðað
er til í dag, en þá munu hinir nýju
hluthafar, Ólafur Jóhann Ólafsson
og Straumur-Burðarás verða virkir
eigendur í félaginu.
Heimildir Blaðsins herma að nýir
hluthafar í Árvakri hafi enn ekki
tilkynnt um stjórnarframboð fyrir
sína hönd, en ljóst er að stjórnarfor-
mennskan verður í þeirra höndum.
Ólafur Jóhann Ólafsson mun ekki
sjálfur taka sæti í stjórn félagsins,
enda starfar hann og býr að mestu
leyti erlendis. Hefur mjög verið um
það rætt að Ragnhildur Geirsdóttir,
verði fulltrúi hans í stjórn, en hún
hvarf frá störfum sem forstjóri FL
Group fyrir skömmu eftir skamma
vist. Ekki náðist í Ragnhildi til þess
að bera þetta undir hana í gær.
Þegar hafa verið ráðgerðar tals-
verðar breytingar á skipulagi Ár-
vakurs, þó ekki sé enn frágengið
með hvaða hætti þær verða. Meðal
annars hefur komið til greina að
skipta fyrirtækinu upp í sjálfstæðar
rekstrareiningar. Um leið er talið að
breytingar verði gerðar á lykilstjórn-
endum fyrirtækisins.
Sóknarleikur á fiölmiðlamarkaði
Hallgrímur Geirsson, fram-
kvæmdastjóri Árvakurs, staðfesti
í samtali við Blaðið, að töluverð út-
tektarvinna hefði verið gerð vegna
þeirrar sóknar, sem fyrirtækið
l
-Éi..í!s. !.sli r.úi \ i! f
li 1 11I li 1I1 il lirrtf
ssi.ííiKr^
Wi
ptargudblabib
m
BlaÖiÖ/Steinar Hugi
hyggst blása til, með hina nýju
eigendur í fararbrjósti. „Það á að
treysta innviði fyrirtækisins, nýta
styrkleika þess betur og sækja fram
á nýjum sviðum.“ Stefnt er að því að
auka verulega umsvif útgáfufélags-
ins, fjölga verkefnum prentsmiðju
þess, efla dreifingarstarfsemi og sér-
stök áhersla lögð á uppbyggingu mbl.
is. Að öðru leyti varðist Hallgrímur
allra frétta og sagði að breytingar
á fyrirtækinu yrðu kynntar í eigin
miðli þegar þar að kæmi.
Ólafur Jóhann mun hafa sýnt ný-
miðlun Morgunblaðsins sérstakan
áhuga og lítur á netútgáfu þess sem
öflugan vaxtarbrodd og farveg til
aukinna tækifæra á vettvangi ljós-
vakamiðlunar. Ljóst er að með þeim
liðsauka, sem hluthafar í Árvakri
hafa fengið, á að svara samkeppni
Dagsbrúnar (365 miðla) af fullum
þunga.
Nýr ritstjóri ráðinn innan skamms
Rætt hefur verið um það í við-
skiptalífinu síðustu daga að hinir
nýju eigendur vilji gera viðamiklar
breytingar í brúnni og því haldið
fram að Styrmir Gunnarsson sé
ekki öruggur í starfi sinu frekar en
aðrir. Heimildir Blaðsins benda þó
til þess að slíkt tal sé ótímabært.
Hitt sé annað mál að hin nýja stjórn
muni þegar hefjast handa við að
finna nýjan ritstjóra Morgunblaðs-
ins, enda þurfi Styrmir að láta af
störfum fyrir aldurs sakir innan
þriggja ára. Líklegast verði sá háttur-
inn hafður á, að ritstjórarnir starfi
saman hlið við hlið um skeið.
Sem kunnugt er varð breyting
á hluthafahópi Árvakurs hfi, sem
gefur út Morgunblaðið, en á hluthafa-
fundinum í dag verður gerð brey ting
á stjórn félagsins til samræmis við
breytt eignarhald á félaginu. Nýju
hluthafarnir eru Forsíða ehfi, félag
í eigu Ólafs Jóhanns Ólafssonar, rit-
höfundar og aðstoðarforstjóra Time-
Warner-fjölmiðlasamsteypunnar,
og hins vegar MGM ehfi, sem nú er í
eigu Straums-Burðaráss.
Eftir því sem næst verður komist
lítur Straumur-Burðarás á kaup sín
í Árvakri sem umbreytingarverk-
efni, en bankinn telur að það muni
taka um 2-3 ár. Hvor hluthafi um
sig hefur eignast 16,7 % af heildar-
hlutafé Árvakurs hf. en seljendur
þorra þess hlutafjár sem um er að
ræða eru félög í eigu tveggja stærstu
hluthafa Árvakurs hf. ■
Hafrannsóknarstofnun
Rækjustofnar í lágmarki
Lítið fannst af rækju í árlegri haust-
könnun Hafrannsóknarstofnunar á
rækjumiðunum á Vestfjörðum og
á fjörðum og flóum norðanlands.
Rækjustofnar á grunnslóð mældust
í algjöru lágmarki.
Rækjustofn hruninn
í ísaijarðardjúpi
Könnunin sýndi að rækjustofninn
virðist eiga undir högg að sækja og
stærstu rækjurnar sem fundust voru
rétt yfir meðaltali í stærð. í ísafjarð-
ardjúpi mældist rækjustofn mjög
lítill sem eru nokkur vonbrigði þar
sem rækjuveiðar hafa verið bann-
aðar þar síðustu tvo vetur. Mikið
fannst af ýsu og þorski og er talið
að þessi mikla fiskgengd hafi leitt
til hruns rækjustofnsins í djúpinu.
Nokkuð mikið fannst af rækju í
Skagafirði og í Öxarfirði og voru
þær að meðaltali í stærð. I Húnaflóa
og í Skagafirði reyndist rækjustofn-
inn lítill eða nær enginn.
Mikið af tveggja ára ýsu
í könnun Hafrannsóknarstofnun
kom einnig fram að mikið var af
tveggja ára ýsu og hefur sá árgangur
einnig verið að mælast mjög stór í
stofnmælingu botnfiska. Einnig
virðast fyrstu merki um árgang
2005 ýsu benda til að sá árgangur sé
undir meðaltali. ■
Blóðbankinn var um helgina verðlaunaður fyrir íslenska málnotkun f auglýsingunni, Ert
þú gæðablóð? Það var á málræktarþing fslenskrar málnefndar en þetta er í fyrsta sinn
sem verðlaunað er f þessum flokki.
Sveinn Guðmundsson yfirlæknir tók við viðurkenningu fyrir hönd bankans og segist
stoltur af þvf að Blóðbankinn hafi þarna slegið tóninn.„Nú þurfum við að vanda okkur
vel og vera ekki með ambögur og slangur og framtíðinni. Sveinn segir samstarfsverk-
efni Og Vodafone og Blóðbankans í kynningar-, útgáfu og fræðslustarfi hafa skilað
góðum árangri og gert bankanum mögulegt að afla nýrra blóðgjafa. „Það hefur orðið
fjölgun ungra blóðgjafa sem koma úrframhaldsskólum og meira en helmingur nýrra
blóðgjafa eru konur. Áður voru konur einungis um 7% gjafa en eru nú 25%. Á meðai
unga fólksins eru konur í meirihluta", segir Sveinn. Hann segir að konur hafi lægri járn-
byrgðir en karlmenn en þegar konur gefi blóð fái þær ráðgjöf í bankanum.
fiyl Ljósin í bænum
U I,I III *' SUDURVERI
Stigahlíð 45 • 105 Reykjavík
O Heiðskírt (3 Léttskýjað ^ Skýjað ^ Alskýjað ✓ ✓ , Rigning, litilsháttar m Rlgnlng Súld sjc^l* Sniókoma Slydda \JJ Snjóél \ J Skúr
Amsterdam
Barcelona
Beriin
Chicago
Frankfurt
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Mallorka
Montreal
NewYork
Orlando
Osló
París
Stokkhólmur
Þórshöfn
Vín
Algarve
Dublin
Glasgow
04
14
05
0
02
03
01
04
08
12
15
02
08
11
03
04
01
09
-01
17
07
06
'//
/ //
<Sf
'//
/ //
€f
0
0
cf
o
4C /// / // '//. //y& 0
'// /// Á morgun
<f / // o
Veðurhorfur í dag kl: 18.00 Veðursíminn O
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands