blaðið - 05.12.2005, Síða 10
10 I ERLEND FRÉTTASKÝRING
MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 2005 blaðiö
Sama
verð
fyrir alla jólapakka
hvert á land sem er
490 kr.
Hámarksþyngd 30 kg, hámarksstærð 0,09 m^
(t.d. 45x45x45 cm)
★
Viö erum sérfræðingar í
ic matvælaflutningum
Frekari upplýsingar um afgreiöslustaði
er að finna á landflutningar.is
★
/SAMSKIP
Undir járnhæl
herforingjastjórnar
Herforingjastjórnin í Myanmar
(einnig þekkt sem Búrma) hefur
framlengt stofufangelsisvist
Aung San Suu Kyi, leiðtoga
Lýðræðisfylkingarinnar, um sex
mánuði. Síðan 1990 hefur Suu Kyi
eytt um áratug, ýmist í fangelsi
eða i stofufangelsi. Þjóðarleið-
togar og mannréttindafrömuðir
lýstu í kjölfarið yfir vonbrigðum
sínum með ákvörðun herforingja-
stjórnarinnar og hvöttu hana tií
að stuðla að lýðræðisumbótum í
landinu.
Kofi Annan, aðalritari Samein-
uðu þjóðanna, lýsti yfir sárum von-
brigðum með framlengingu stofu-
fangelsisvistarinnar en hann hefur
þrýst á herforingjastjórnina að láta
Suu Kyi lausa. Árið 2003 leit út fyrir
sem árangur væri að nást þegar
yfirvöld í Myanmar kynntu áætlun
í sjö þrepum um að koma á lýðræði.
Bakslag varð ári síðar þegar harð-
línumenn innan herforingjastjórnar-
innar komu hinum hófsama forsætis-
ráðherra Khin Nyunt frá völdum.
Fulltrúar margra stjórnmálaflokka,
þar á meðal Lýðræðisfylkingarinnar,
hafa verið útilokaðir frá viðræðum
um nýja stjórnarskrá landsins sem
staðið hafa yfir árum saman.
Á dagskrá Öryggisráðsins
Bandaríkjamenn hafa farið fram á
að Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
ályktaði um málefni Myanmar en
Kínverjar og Rússar hafa fram að
þessu staðið í veginum fyrir því.
Nú eru aftur á móti blikur á lofti að
samstaða náist innan ráðsins um að
taka málið á dagskrá.
Paulo Sergio Pinheiro, sérfræð-
ingur Sameinuðu þjóðanna í mann-
réttindamálum, hefur hvatt stjórn-
völd til að sleppa 1143 pólitískum
föngum sem eru í haldi þeirra,
aflétta hömlum á tjáningar- og fé-
lagafrelsi og nema úr gildi lög sem
brjóta í bága við borgaraleg réttindi.
Ennfremur hefur hann farið fram
á að skrifstofur stjórnmálaflokka
verði opnaðar á ný, látið verði af
geðþóttahandtökum, fangelsun og
ofsóknum á hendur lýðræðissinnum,
mannréttindasinnum og öðrum
þeim sem skipta sér af stjórnmálum
á friðsamlegan hátt.
Fjölbreytt og stórfelld
mannréttindabrot
Herforingjastjórnin í Myanmar
hefur verið ásökuð um fleiri al-
varleg mannréttindabrot svo sem
nauðungarflutninga, nauðungar-
vinnu og barnaþrælkun. Strangt
eftirlit er með fjölmiðlum í landinu
og eru þeir flestir lítið annað en
málpípur herforingjastjórnarinnar.
Alþjóðlegu samtökin Fréttamenn án
landamæra skipa Myanmar á meðal
þeirra ríkja þar sem frelsi fjölmiðla
er hvað minnst í heiminum.
Mannréttindasamtök í Asíu birtu
í síðustu viku yfirgripsmikla og
nákvæma skýrslu um pyntingar
sem pólitískir fangar herforingja-
stjórnarinnar mega þola. Skýrslan er
byggð á viðtölum við 35 fyrrverandi
pólitíska fanga í landinu og þar er
meðal annars að finna itarlegar lýs-
ingar á líkamlegu, sálrænu og kyn-
ferðislegu ofbeldi sem þeir þurftu
að ganga í gegnum sem og lýsingar á
slæmum aðbúnaði í fangelsum.
Svartamarkaðsbrask og óstjórn
Fyrirtæki sem rekin eru af hernum
stjórna aðalatvinnuvegum og spill-
ing, svartamarkaðsbrask og óstjórn
einkenna efnahagslífið. Ennfremur
hefur hernum og hópum fyrrver-
andi uppreisnarmanna verið gefið
að sök að stunda stórfellda heróín-
sölu. Vændi er mikið vandamál
í landinu og útbreiðsla alnæmis
sömuleiðis.
Myanmar er auðugt af náttúru-
auðlindum og er meðal annars
stærsti útflytjandi tekkviðar í heim-
inum. Þá er þar einnig að finna
eðalsteina í jörð og olíulindir úti
fyrir ströndinni. Vægi ferðamanna-
iðnaðar i landinu hefur aukist á und-
anförnum árum sem og áhugi er-
lendra fjárfesta. Hagnaðurinn skilar
sér þó sjaldnast í vasa almennings
sem býr við sífellt bágari kjör.
Spenna hefur ríkt milli ólíkra
þjóðfélagshópa í Myanmar sem
leiðir stundum til átaka.
Valdabarátta hefur einnig verið
innan herforingjastjórnarinnar.
Khin Nyunt, forsætisráðherra, var
rekinn úr embætti og handtekinn
í fyrra en hann þótti hófsamur og
lenti því upp á kant við harðlínu-
menn innan stjórnarinnar. Nyunt
var meðal annars hlynntur því
Than Shwe, þjóðhöfðingi Myanmar, hefur
ítrekað hafnað þvi að afsala sér völdum í
hendur Lýðræðisfylkingar Suu Kyi.
Aung San Suu Kyi hefur orðið eins konar
táknmynd baráttunnar fyrir lýðræði og
mannréttindum f Myanmar.
að Aung San Suu Kyi fengi að taka
þátt í viðræðum um stjórnarskrá
landsins.
Than Shwe, þjóðhöfðingi Myan-
mar, hefur ítrekað hafnað því að
afsala sér völdum í hendur Lýðræð-
isfylkingar Suu Kyi. Hann er yfir-
maður Friðar- og þróunarráðs rík-
isins sem stjórnar landinu og tekur
allar lykilákvarðanir. Shwe sem er
kominn á áttræðisaldur þykir inn-
hverfur og hjátrúarfullur.
Friðsamlegt andóf gegn
herforingjastjórninni
Eftir að hafa búið lengi erlendis sneri
Aung San Suu Kyi aftur til Myanmar
árið 1988 í því skyni að annast veika
móður sína. Mikil pólitísk ólga var
þá í landinu og hópuðust þúsundir
manna úr ýmsum stéttum saman á
götum úti til að krefjast lýðræðisum-
FRÉTTA-
SKÝRING
EINAR ÖRN JÓNSSON
bóta. „Sem dóttir föður míns gat ég
ekki setið aðgerðarlaus hjá,“ sagði
Suu Kyi í ræðu sem hún hélt í höfuð-
borginni Rangoon í ágúst 1988. Faðir
hennar var Aung San hershöfðingi og
sjálfstæðishetja þjóðarinnar sem var
myrtur þegar hún var aðeins tveggja
ára. Aung San Suu Kyi varð fljótt
fengin til að leiða andófið gegn Ne
Win þáverandi einræðisherra ríkisins.
Undir áhrifum ffá Martin Luther
King og Mahatma Gandhi skipulagði
Suu Kyi fjöldafundi og ferðaðist um
landið og hvatti til þess að friðsam-
legar lýðræðisumbætur yrðu gerðar
og frjálsar kosningar haldnar. Herinn
bældi mótmælin niður með ofbeldi
og tók völd í landinu í september 1988.
Herforingjastjórnin hélt almennar
kosningar í maí 1990 og voru það
fyrstu fjölflokkakosningar í landinu í
þrjátíu ár. Lýðræðisfylkingin, flokkur
Aung San Suu Kyi, vann stórsigur í
þeim þrátt fyrir að hún sjálf væri í
stofufangelsi. Þegar öllu var á botninn
hvolft neitaði herforingjastjórnin að
afsala sér völdum og hefur stjórnað
landinu allar götur síðan.
Sviptfrelsiíáratug
Aung San Suu Kyi hefur eytt nærri
áratug í fangelsi eða stofufangelsi
síðan 1990. Árið 1991 hlaut hún frið-
arverðlaun Nóbels fyrir tilraunir
sínar til að koma á lýðræði í landinu
og sagði Francis Sejested, formaður
Nóbelsnefndarinnar, að hún væri
„framúrskarandi dæmi um vald hinna
valdalausu'.
Árið 1995 öðlaðist hún frelsi í fyrsta
sinn í sex ár en var á ný hneppt í stofu-
fangelsi eftir að hún reyndi að komast
til borgarinnar Mandalay í trássi við
ferðabann. Henni var sleppt á ný árið
2002 en innan árs lenti hún í fangelsi
eftir að til átaka kom á milli stuðn-
ingsmanna hennar og múgs sem naut
stuðnings stjórnvalda. Hún hefur
verið í stofufangelsi síðan 2003.
Á fyrstu árunum sem Suu Kyi var
haldið í stofufangelsi var hún oft
algerlega einangruð ffá umheiminum
og fékk jafnvel ekki að sjá eiginmann
sinn og tvo syni þeirra. Hún hefur
fengið að hafa meiri samskipti við
fólk á undanförnum árum og meðal
annars getað hitt félaga sína úr Lýð-
ræðisfylkingunni og vissa erindreka
erlendra ríkja eða alþjóðastofnanna.
Sjálf hefur hún oft sagt að varðhaldið
hafi styrkt hana enn frekar í afstöðu
sinni. Hún hefur meðal annars varið
tíma sínum í tungumálanám og
tónlistariðkun.
Líkt og Nelson Mandela í Suður
Afríku hefur Aung San Suu Kyi orðið
að alþjóðlegri táknmynd hetjulegrar
og friðsamlegrar andstöðu gegn kúg-
unaröflum. Landar hennar líta upp
til hennar og sjá í henni von um að
dag einn verði endi bundinn á kúgun
herforingjastjórnarinnar. ■
Kaupmannahöfn - La Villa
ódýr og góð gisting miðsvæðis í Kaupmannahöfn.
Tölum íslensku.
Sími 0045 3297 5530 • gsm 0045 2848 8905
_____www.lavilla.dk • Geymiðauglýsinguna_