blaðið - 05.12.2005, Blaðsíða 16
16 I SNYRTIVÖRUR
MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 2005 blaöið
DÁDÝRA CARPACCIO OG FLEIRA Á
JÓLASEÐLINUM Á LAUGAVEGI 40
Nýir augnskuggar í MAC-línunni
Litadýrð
yfir hátíðarnar
Enn bætir MAC litum við í línu sína, en merkið er þekkt fyrir fjölbreytilegt úrval augnskugga í öllum litum. Nýjustu
litirnir eru sérstaklega gerðir fyrir haustið og veturinn. Allir eru þeir fallegir einir og sér, auk þess sem flott getur
verið að nota aðra liti með til þess að gera heildarútlitið fallegra. Fyrir þær sem vilja prófa nýja liti er tilvalið að skella
sér í MAC og fjárfesta f nokkrum.
Glans og glimmer
á varirnar
Nýjir varalitirfrá CEE
Snyrtivörumerkið CEE býður upp á margbreytilegt úrval snyrtivara á góðu verði og nú hafa tveir nýir litir bæst í
flóru þeirra. Það sem er einkennandi fyrir nýju litina er þessi skemmtilega glans- og glimmeráferð sem gerir and-
litið geislandi. Litirnir heita Please me og Tease me, en annar er með appelsínugulum keim en hinn bleikur.
Það er tilvalið yfir jólahátíðina að bregða útaf vananum og vera með glans á vörunum í fína dressinu, en þess má
þó geta að litirnir eru þó náttúrulegir yfirlitum og því ekki hætta á að verða eins og glansdúkka!
HfiRL€NGINGRR
Hársnyrttetofa
Smiðjuvegi 1 • 5444949
Terracotta sólargelfrá Guerlain
Fallegur
húdlitur
um jólin
Það nýjasta frá Guerlain er Terracotta Sun Gold, en gelið er borið á
líkamann áður en haldið er í matarboðin, jólahlaðborðið, á ballið
eða önnur fínni tilefni.
Gelið gefur húðinni brúnni lit og áferðin er glansandi þannig að
heildarútlitið verður fágað og fallegt. Þetta er ekki brúnkukrem og
er því ekki eitthvað sem er varanlegt - heldur afar sniðugt þegar
konur, ungar sem aldnar, vilja líta vel út með glæsilegum húðlit.
Þess má geta að auðvelt er að bera gelið á og óþarft er að hafa
áhyggjur af skilum, klessum og öðrum leiðindum enda mjúkt og
þægilegt krem sem hentar öllum.
Grœn augu
með Gosh
- augnblýantur og dust í grœna litnum
Grænn er einn af vinsælustu litunum í snyrtivörum um þessar mundir,
enda fallegur litur og skemmtileg tilbreyting frá því venjulega. Með græna
augnblýantnum frá Gosh og nýja eye-dustinu er hægt að búa til skemmti-
lega blöndu af grænum f kringum augun. Litirnir eru ekki sterkir og því
verður áferðin eðlileg og augun þokkafull.
Græni liturinn getur passað við flesta liti; brúnan, svartan, hvítan, gráan
og fleiri og því getið þið verið óhræddar við að prófa þessar skemmtilegu
vörur. Ekki er verra að vera með grænt hálsmen eða annað þvíumlíkt sem
setur meiri svip á heildina.
Tilvalin jólagjöf fyrir stúlkur á öllum aldri.