blaðið - 05.12.2005, Side 29
blaöið MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 2005
McCartney œfur
yfir selaveiðum
Söngvarinn Paul McCartney hefur skrif-
að harðort bréf til forsætisráðherra
Kanada þar sem hann harmar selaveið-
ar þjóðarinnar en gagnrýnin kemur
aðeins nokkrum dögum eftir að söngv-
arinn Bono gagnrýndi þjóðina fyrir að
veita litla þróunaraðstoð. „Ég vill vekja
athygli á að Kanada ætlar að halda veið-
um sínum áfram á næsta ári og við mun-
um gera allt sem við getum
til að mótmæla því“ sagði
McCartney. Hann sagði að
hann og kona sín, Heather
Mills, muni fara á næsta ári
og heimsækja svæðið þar
sem selirnir eru veiddir til
að vekja athygli fjölmiðla á
málunum.
Svali er einn af fjórum stjórnendum morgunþáttarins Zúúber á FM9S.7
EITTHVAÐ FYRIR...
mmm
liM—
'ÍfJLtííiií*
Skjár 1, Survivor Guatemala,
21:00
f ár fer keppnin fram í Guatemala
og búast má við hörkuslag. Fram-
leiðendurnir finna alltaf eitthvað
nýtt til að auka á spennuna en með-
al þátttakenda í þessari þáttaröð er
Gary Hogeboom, sem leikið hefur
með Dallas Cowboys.
Sirkus, Veggfóður, kl. 21:00
í Veggfóðri verður gefin hugmynd
af frumlegum og fallegum hurðar-
kransi á aðventunni, og morgun-
sjónvarps-
k o n a n
Ragnheið-
ur Guð-
finna býð-
ur okkur
heim.
Stöð 2, Wife Swap 2 (9:12), kl.
20:40
Fimmta syrp-
aníþessumfrá-
bæra mynda-
flokki sem
fengið hefur
fjölda Emmy-
og Grammy-
verðlauna.
Bræðurnir Dav-
id og Nate reka
útfararþjón-
ustu Fisher-fjölskyldunnar.
Hvernig hefurðu það í dag?
Alveg gríðarlega gott. Það gengur vel og
mjög gaman að vera til.
Hvenær hófstu fyrst störf í útvarpi?
28. ágúst 1991. Ég heyrði af því að það
væri að losna á næturvakt um helgar á FM,
og ég fór bara uppeftir og sagði:„Ég hef
áhuga á þessu, mig langar að prufa." Ég
fór í prufu og er ennþá í prufu, ekki búið
að senda mig heim ennþá.
Er starfið eitthvað öðruvísi en þú
hafðir ímyndað þér áður?
Ég ætlaði bara að vera í þessu í fimm
ár. Ég hélt að þetta væri bara eitthvað
tímabundið djobb, sko. Svo bara hefur
þetta breyst svo mikið á undanförnum
árum. Þetta vartímabundið djobb
hérna áður, en í dag er þetta bara orðið
miklu meira. Það er miklu meira að
gera á bak við tjöldin, miklar og margar
pælingar. Það er sorgleg staðreynd að
það eru ekki mjög margir fagmenn, sem
hafa mótað og búið til útvarpsstarfið
og eru með þessar pælingar á bak við
útvarpsmennsku. Það hefurfullt affólki
unnið við að vera með útvarpsþátt, en
það er allt annað en að vera sá sem er á
bak við útvarpið og er að pæla í þessu
og stúdera. Síðustu tíu árin hef ég verið
beggja megin, með þátt og á bak við
tjöldin.
Hvað er skemmtilegast við
starfið?
Uppáhaldstíminn minn er
klukkan 7 á morgnana þegarvið
erum búin að koma okkur fyrir
í stúdíóinu og erum að byrja.
Mér finnst alltaf skemmtilegast
að vera í loftinu, annars væri
ég líklegast orðinn ofsalega
þreyttur og lamaður og svoleiðis.
Ætlaðirðu að vinna í
fjölmiðlum þegar þú varst
lítill?
Nei, ég ætlaði mér ekki að verða
neitt. Eg var, eins og margir
ungir menn eru, ekkert svo
mikið að hugsa um það. Bara í
skólanum, og með strákunum
og einbeita sér að því að fá
bílpróf. Síðan þegar ég fór upp
á FM varþetta bara eins og
tilviljun. Ég hafði aldrei spáð
neitt sérstaklega í þessu. Eina
sem ég vissi þegar ég var lítill var
að það yrði alltaf bíla-eitthvað.
Ég er nefnilega bílasjúklingur.
Ekki það að ég vildi vera
slökkviliðsmaður, eða lögga.
Ertu ennþá með bíladellu?
Já, ég er að leita að meðali við
því.
Hvernig er dæmigerður dagur í lífi
Sigvalda Kaldalóns?
Ég bölva símanum mínum frá korter
yfir fimm til hálf-sex. Mér finnst alveg
ofboðslega óréttlátt að hann skuli vera að
hringja og vekja mig. Ferfram úr, sturta,
skyr.is og fer af stað uppeftir, og furða mig
alltaf á því á leiðinni að það skuli vera fólk
sem er á ferðinni klukkan sex. Svo er það
bara þátturinn og þegar hann er búinn er
strax undirbúningurfyrir næsta dag. Klára
það upp úr eitt, og þá er ég farinn að
vinna að hlutum sem eru í tengingu við
stöðina. Markaðsmál og hugmyndavinna.
Það geri ég fram eftir degi og er kominn
heim sex-hálfsjö. En ef vel gengur, get
ég verið farinn heim klukkan hálf-tvö,
og ég geri það stundum. Mér finnst
voðalega gaman að vinna en ég veit að
maður getur unnið yfir sig og ég geri það
meðvitað að fara stundum bara heim. Þá
fer ég bara heim og geri ekkert eða fer í
sund eða eitthvað.
Hver myndir þú vilja að væri
lokaspurningin í þessu viðtali?
Ég myndi vilja að lokaspurningin væri:„Er
útvarpsvinna venjuleg 9-5 vinna?" og þá
myndi ég svara:„NEI, og langt frá því".
Jamie Foxx leikur í
pólitískri
spennu-
mynd
Jamie Foxx hefur ákveðið að leika í kvikmyndinni The
Kingdom. 1 myndinni mun hann leika mann sem er yfir
rannsóknarnefnd hryðjuverka, og eru þeir að kanna hverj-
ir bera ábyrgð á sprengjuárásum í Mið-Austurlöndum.
Myndin er byggð á hugmynd frá Peter Berg (Friday
Night Lights, The Rundown) sem einnig leikstýrir
myndinni, og Michael Mann (Miami Vice) sem
sér um framleiðslu. Tökur hefjast í maí.
FRA LEIKSTJORA GROUHDHOG DAY
OG ANALYZE THIS
Þaðgerðistá k
aðfangadagskvöld
OLIVER
PLATT
HÆTTULEGIR ÞJOFAR A HALUMIS!
blaðið=
FRUMSÝND 9. DESEMBER
1
SmHRH\Ó Biú REonBOBinn