blaðið - 07.12.2005, Blaðsíða 2
2 I INNLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2005 blaöið
Stjórnmál:
Jón Baldvin snýr aftur
Jón Baldvin útilokar ekki endurkomu í íslensk stjórnmál. Yrði mikill happafengur fyrir íslensk stjórnmál,
segir Jakob Frímann Magnússon.
Jón Baldvin Hannibalsson vildi
hvorki neita því né játa að hann sé
mögulega á leið í pólitík aftur þegar
Blaðið hafði samband við hann i
gær. Jón er nú á heimleið frá Hels-
inki þar sem hann hefur starfað sem
sendiherra frá árinu 2002 en fjögur
ár þar á undan var hann sendiherra
Islands í Washington.
Kemur bara í Ijós
Jón vildi ekki neita því að hann væri
mögulega á leið aftur í pólitík en
aðspurður sagði hann að það kæmi
bara í ljós. Hann sagðist ekki hafa
velt þessu sérstaklega íyrir sér en
vissi af umræðu þessa efnis i sam-
félaginu. „Ég hef þetta ekki eins og
Albert heitinn Guðmundsson hafði
það. Hann sagði að það væri alveg
rosalegur þrýstingur. Hulduher sem
reyndist síðar vera leigubílstjóri hjá
BSR. Ég þekki engan leigubílstjóra
og veit ekki einu sinni hvort að BSR
sé ennþá til.“ Jón lét af störfum sem
sendiherra í Helsinki í nóvember-
mánuði síðastliðnum og getgátur
hafa verið uppi um hvað tæki við hjá
þessum umdeilda stjórnmálamanni.
Mörður Árnason, þingmaður Sam-
fylkingar, segir m.a. á heimasíðu
sinni að honum finnist það góð hug-
mynd að Jón snúi aftur í stjórnmálin
og að það færi einkar vel á honum í
forystu jafnaðarmanna á þingi eða
ríkisstjórn. Sjálfur segist Jón ekki
hafa mikið meira um þetta mál að
segja að svo stöddu. „Eg hef ekkert
um þetta að segja nema það að ég
sé á heimleið svona fyrir jól og það
tekur nokkurn tíma fyrir mig að
koma mér fyrir í þjóðlandinu á ný.“
BlaÖiÖ/lngó
Frumvarp um Ríkisútvarpið:
Málsmeðferð ráðherra
gagnrýnd á Alþingi
Stjórnarandstaðan gagnrýndi í
gærmorgun harðlega vinnubrögð
menntamálaráðherra vegna kynn-
ingar á frumvarpi hans um breytt
rekstrarfyrirkomulag Ríkisútvarps-
ins. Var einkum að því fundið að
frumvarpið hefði enn ekki verið
lagt fyrir Alþingi, en á sama tíma
fréttist af því og greinargerð þess
í meðförum fólks úti í bæ, meðan
þingmenn þyrftu að glöggva sig
á innihaldi þess í fjölmiðlum.
Frumvarpið var lagt fyrir Alþingi
síðdegis.
Kolbrún Halldórsdóttir, þing-
maður vinstri grænna (V) sagði
menntamálaráðherra hafa orðið á í
messunni þegar hún kynnti framtíð
Ríkisútvarpsins, bæði í sjónvarpi og
útvarpi, áður en frumvarpið kom
fram á Alþingi. Minntist hún fyrri
heitstrengingar ríkisstjórnarinnar
um að samráð yrði haft um þetta við-
kvæma mál, en annað hefði komið
á daginn.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (D),
menntamálaráðherra, mótmæltiþví
að frumvarpið væri á þvælingi úti í
bæ, þingmenn stjórnarliðsins hefðu
samþykkt það, auðvitað eftir að
hafa kynnt sér það. Hins vegar væru
frumvörp kynnt með ýmsum hætti
og það ætti ekki síður við boðuð
frumvörp stjórnarandstöðunnar en
stjórnarfrumvörp. Undir þessi sjón-
armið ráðherrans tóku þau Sigurður
Kári Kristjánsson (D) og Dagný Jóns-
dóttir (B).
Guðríður Haraldsdóttir, Vikunni
írski metsöluhöf-
undurinn, Maeve
Binchy, kemur nú út í
fyrsta sinn á íslensku.
Þetta er hennar nýjasta
bók sem gerist í dul-
mögnu&u umhverfi
grísku eyjanna.
Einstakiega hlý og
notaleg saga um óstir
og mannleg örlög.
Bókafélagið Ugla
Styrkir forystu Samfylkingar
Jakob Frímann Magnússon, vara-
þingmaður Samfylkingar, telur að
endurkoma Jóns yrði mikill happa-
fengur fyrir íslensk stjórnmál. „Ég
hef aldrei farið dult með þá skoðun
mína að Jón Baldvin er einhver
skarpasti og skemmtilegasti stjórn-
málamaður vorra tíma á Islandi.
Atfylgi hans yrði dýrmætt á hvaða
vettvangi sem hann kysi að velja sér,“
segir Jakob og bætir við að hann ótt-
ist ekki að endurkoma hans myndi
hafa slæm áhrif á Samfylkinguna.
Ámundi Ámundason, stuðnings-
maður Jóns Baldvins, segist binda
miklar vonir við endurkomu Jóns
inn í íslensk stjórnmál. „Það er engin
spurning, hann á að klára þetta
verk að búa til stóran og sterkan
jafnaðarmannaflokk og hafa flokk-
inn stærstan á íslandi eftir næstu
Alþingiskosningar undir ábyrgri
forystu Ingibjargar Sólrúnar Gísla-
dóttur.“ Ámundi segir Jón koma
til með að styrkja forystu Samfylk-
ingar mikið og vill fá hann i fyrsta
sætið í Kraganum og fylla þar með
það skarð sem myndaðist við brott-
för Guðmundar Árna Stefánssonar
úr stjórnmálum. „Ég mun auðvitað
vinna að því dag og nótt að hann
fari aftur inn á þing. Nú er allt fyrir
stefnu að draumur okkar um stóran
jafnaðarmannaflokk á íslandi frá
fundinum í Tónabió 1967 verði loks-
ins að veruleika,“ segir Ámundi og
bætir við „ég fer bara á flug. Jóla-
stjarnan er bara komin aftur inn í
mitt líf. Ég fer svo sannanlega ekki í
jólaköttinn í ár.“
Umdeildur stjórnmálamaður snýr aftur.
Borgarmál:
Leikskólagjöld lækka
um 55 þúsund krónur
Borgarfulltrúar R-listans kynntu breytingartillögur sínar á sérstökum blaðamannafundi
í Ráðhúsinu f gær.
Leikskólagjöld munu lækka um
55 þúsund krónur á næsta ári sam-
kvæmt breytingartillögum borg-
arfulltrúa Reykjavíkurlistans. Síð-
ari umræður um fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar fóru fram í borg-
arstjórn í gær.
Auka niðurgreiðslu
Samkvæmt breytingartillögum
Reykjavíkurlistans munu leikskóla-
gjöld lækka um tæpar fimm þúsund
krónur á mánuði á næsta ári eða um
55 þúsund sé miðað við ellefu mán-
aða skólagöngu. Eftir breytingar
munu leikskólagjöld því lækka
niður í rúmar 23 þúsund krónur og í
rúmar 16 þúsund krónur fyrir fimm
ára börn. Einnig er gert ráð fyrir þvi
að auka niðurgreiðslur borgarinnar
til dagforeldra í hverjum flokki um
1.000 krónur á hverja klukkustund.
Þá lögðu borgarfulítrúar R-listans
til að 12 milljónum krónar verði
varið til að gera sérstakt átak í að
bæta umhverfi að grenndargáma-
stöðvunum í borginni og gera þær
notendavænni.
Lyktar af kosningavori
ÓÍafur F. Magnússon, borgarfulltrúi
Frjálslynda flokksins, segir Frjáls-
lynda fagna þessum breytingartil-
lögum og segir þær í samræmi við
stefnu Frjálslynda flokksins. „Við
höfum alltaf lagt sérstaka áherslu
á lág þjónustugjöld fyrir barnafjöl-
skyldur, aldraða og öryrkja og þess
vegna styðjum við þessar tillögur,"
segir Ólafur og bætir við: „við
fögnum öllu því sem lækkar þjón-
ustugjöld og styrkir velferðarkerfi
borgarinnar. En óneitanlega lyktar
tímasetningin af kosningavori."
O Helösklrt 0 Léttskýjað ^ Skyjaö % Alskýjaö
cjc 'I- Snjökoma
*
Slydda Snjóél
Skúr
Amsterdam 07
Barcelona 12
Berlín 04
Chicago -11
Frankfurt 04
Hamborg 04
Helsinki 0
Kaupmannahöfn 04
London 05
Madrld 10
Mallorka 14
Montreal -08
New York -01
Orlando 17
Osló 02
París 05
Stokkhólmur 02
Þórshöfn 05
Vín 02
Algarve 14
Oublin 07
Glasgow 05
///
//'
/ //
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Bygflt á upplýslngum frá Voðurstotu íslands
Ámorgun