blaðið

Ulloq

blaðið - 07.12.2005, Qupperneq 13

blaðið - 07.12.2005, Qupperneq 13
blaðið MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER FERÐALÖG I 13 Ætla að vaxa mjög hratt Þann 1. október sameinaðist ferðaskrifstofan Markmenn, sem hafði sér- hæft sig í ferðum á leiki í enska boltanum og Meistaradeild Evrópu auk hinna ýmsu tónlistarviðburða, lágfargjaldarflugfélaginu Iceland Ex- press og tóku upp nafnið Expressferðir. Fyrrum eigendur Markmanna fylgdu fyrirtækinu inn í hið nýja umhverfi og Blaðið ræddi við Braga Hinrik Magnússon, sölustjóra Expressferða, um hvað fyrirtækið snérist raunverulega og hvert það Stefndi. Vinsælter hjá (slendingum aö heimsækja Kaupmannahöfn íaðdragandajólanna. Stefnt að því að breikka vörulínuna Bragi segir að Expressferðir sé ferðaskrifstofa í öllum skilningi þess orðs, sem sé rosalega sterk í öllum viðburðum eins og íþrótta- kappleikjum, tónleikum og svo framvegis. Hann segir þó að stefnt sé að því að breikka út vörulínuna og þá í takt við út þenslu móðurfyrir tækisins Iceland Express en það tilkynnti nýlega að það ætlaði að stækka leiðarkerfi sitt umtalsvert í maí á næsta ári þegar fimm nýir áfangastaðir bætast við: Alicante, Berlín, Friedrichshafen, Gautaborg og Stokkhólmur. „Expressferðir munu búa til ferðir í kringum þessa nýju áfangastaði. Eins og til dæmis með Alicante, þá munum við bjóða upp á sólarlandaferðir og golfferðir inn á það svæði. I raun allt annað sem hægt er að gera, til dæmis spaferðir til Þýskalands fyrir eldri borgara. Við finnum alltaf eitthvað að gera á áfangastöðunum og búum svo til svona pakkaferðir. Express- ferðir eru að vaxa og ætla að vaxa mjög hratt.“ Uppselt í julefrokost Bragi segir að viðbrögðin við hinni nýju ferðaskrifstofu hafi verið yfirnáttúrulega góð. Til dæmis hafi Expressferðir boðið upp á sérstakar julefrokost ferðir til Kaupmanna- hafnar í desember sem hafi allar selst upp. „Ég man ekki nákvæm- lega hversu margir það voru en það voru nokkur hundruð manns sem fóru í þessar julefrokostferðir. Við buðum upp á þær og einnig venju- legar verslunarferðir í miðri viku og það rann líka alveg út eins og heitar lummur. Það seldist miklu meira en við bjuggumst nokkurn tímann við þannig að það var heilmikið álag á símanum hjá okkur,“ segir Bragi en bætir við að fótboltaferðirnar þeirra séu líka gífurlega vinsælar og voru til að mynda 120 manns á leik Liverpool og Chelsea í gærkvöldi á vegum Expressferða. Allar frekari upplýsingar er hægt að nálgast á vef- síðunni www.expressferðir.is. t.juliusson@vbl.is Bose 321 GSX: Bose kynnir 321 GSX, nýtt DVD heimabíó Bose 321 GSX DVD heimabíó er fullkomin og notendavæn lausn til aö njóta tónlistar og kvikmynda. Aðeins tveir litlir hátalarar til jafns við fimm Tveir litlir „Gemstone" hátalarar i broddi fylkingar og falinn „Acoustimass” magnari veita þér upplifun sem likist hefðbundnu fimm hátalara heimabíókerfi. Munurinn er þó sá að þú ert laus viö bakhátalara og snúrur i þá. Þinn eigin plötusnúður 321 GSX er enn fremur búið uMusic sem er þinn eigin plötusnúður. Þú hleður tónlistinni af geisladiskunum, og geymir allt að 200 klst. af þinni tónlist. uMusic lærir á þinn smekk, veit hvaö þér likar og spilar þaö sem þú vilt heyra. Með færri einingum og snúrum i lágmarki fellur Bose 321 GSX auðveldlega að þinu heimili. uMusic ir.crB'gsv. íccf Sy-.!«rr> Kiktu i verslun Nýherja, Borgartúni 37, og heyrðu hljóminn í Bose. Opið alla virka daga frá 09:00 - 18:00 og á laugardögum frá 10:00 - 16:00. sas/E^ Btlttr tound through rttttrclu NÝHERJ1 Nýherji hf. • Borgartúni 37 ■ 105 Reykjavík • Simi 569 7700 • www.nyherji.is Einfaldleiki fyrir þína afþreyingu

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.