blaðið - 07.12.2005, Page 14
blaöið^H
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson.
Ritstjóri: Karl Garðarsson.
ENDURFÆÐING
RÍKISÚTVARPSINS
Pað eru aðeins rétt rúmir fjórir mánuðir síðan Páll Magnússon
var ráðinn útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins. Nánast á fyrsta degi
mátti merkja það að nýir og ferskari vindar blésu innan þeirrar
feysknu stofnunar, sem Ríkisútvarpið var óneitanlega orðin. Þetta hafa
áhorfendur og hlustendur orðið áþreifanlega varir við, en eins má heyra
það á starfsmönnum RÚV, að andinn er allur annar innandyra. Svo
mjög að tala má um endurfæðingu Ríkisútvarpsins. I stað þess að svara
samkeppni hefur RÚV tekið frumkvæðið í þeim efnum með glæsilegum
árangri. Fyrir það eitt á Páll útvarpsstjóri mikið hrós skilið.
En betur má ef duga skal. Enn á eftir að koma böndum á fjárhag RÚV,
endurskipuleggja og hagræða, svo stofnunin standi undir sér og undir
nafni. Þar hefur um áratugabil tíðkast ráðslag hins opinbera í fjármála-
stjórn. Alls kyns útgjaldaliðir vegna innviða RÚV hafa fengið að belgjast
út eftir þörfum, sem jafnan eru metnar og samþykktar af þeim hinum
sömu og eiga að verja fjármununum. Á sama tíma og kostnaðurinn við
báknið hefur þanist óheft og sjálfkrafa út hefur hin eiginlega kjarnastarf-
semi RÚV - dagskrárgerð - setið eftir sem afgangsstærð í rekstrinum.
Um leið hefur stofnunin verið með ólíkindum þunglamaleg vegna þess
að henni hefur verið gert að starfa eftir löngu úreltu skipuriti, þar sem
hver silkihúfan flækist fyrir annarri. Við þetta hafa svo bæst illa skil-
greindir tekjustofnar og vægast sagt sérkennileg samkeppnisstaða.
AlltþettastendurtilbótameðnýjufrumvarpiÞorgerðarKatrínarGunnars-
dóttur, menntamálaráðherra, um Ríkisútvarpið. Verði frumvarpið sam-
þykkt á Alþingi - eins og allt bendir til - hefur hinn nýi útvarpsstjóri
fengið þau vopn í hendurnar, sem duga til þess að koma Ríkisútvarp-
inu tryggilega inn í 21. öldina. Starf Páls Magnússonar undanfarna fjóra
mánuði bendir til þess að hann kunni með þau að fara og að skýr mark-
mið ráði för.
Ríkisútvarpið hefur löngum verið upptekið af fortíðinni og jafnvel verið
fornlegt. Það er því gleðilegt að sjá hvernig nú er horft til framtíðar.
Landsmenn hafa miklar væntingar til Ríkisútvarpsins og vonandi ber
Alþingi gæfu til þess að afgreiða frumvarp menntamálaráðherra skjótt
og í sátt.
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur.
Aöalsímí: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 5103711.
Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is.
Prentun: Prentsmiöja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur.
14 I ÁLIT MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2005 i blaðið
Lækkandi gengi
Samfylkingarinnar
Lengi var talað um turnana tvo i
íslenskum stjórnmálum. Ekki
lengur. Lengi var beðið eftir að Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir tæki að sér
formennsku í Samfylkingu vinstri
manna. Ekki lengur. Eftir að Ingi-
björg tók við formennsku hefur fylgi
Samfylkingarinnar lækkað mjög ört
og hefur nú einn af hverjum fjórum
kjósendum hennar ákveðið að kjósa
hana ekki aftur. Fylgi Samfylking-
arinnar hefur reyndar ekki verið
minna í rúm þrjú ár.
Stuðningsmenn Ingibjargar hétu
því að fylgi Samfylkingarinnar
myndi hækka yrði hún kjörin for-
maður. Staðreyndin er að sú að það
hefur þvert á móti lækkað jafnt og
þétt. Skýringar formannsins eru
athyglisverðar, en hún segir að það
hafi verið „blóðtaka að missa Guð-
mund Árna Stefánsson og Bryndísi
Hlöðversdóttur“. Þetta er sumsé
allt þingflokknum að kenna, sem
er svona líka liðónýtur eftir að þau
hættu í pólitík. En það er alls ekki
við hana að sakast eða þau áherslu-
mál, sem hún hefur beitt sér fyrir.
Almenningur veit betur
Hugmyndir Ingibjargar Sólrúnar í
skattamálum hafa ekki fengið mik-
inn meðbyr. Ingibjörg hefur haft
frammi þá hugmynd uppi að hækka
beri fjármagnstekjuskatt til að auka
tekjur ríkisins. Því miður stenst
hugmyndin ekki skoðun, enda veit
þorri almennings að lækkun álagn-
ingarprósentufjármagnstekjuskatts
hefur stóraukið tekjur ríkisins.
Lægri skattar hafa því leitt til hærri
tekna fyrir ríkissjóð.
Hækkun skatts á fjármagnstekjur
myndi á hinn bóginn leiða til fjár-
magnsflótta, undanskota, stöðnunar
í viðskiptum og lægri skattekna. Af
hverju? Jú vegna þess að í raun væri
verið að leggja skatt tvisvar á spari-
fjáreigendur og fjárfesta.
Fyrst er tekjuskattur fyrirtækja
sem nú er 18% og hafa tekjur af
Eyþór Arnalds
honum aukist með lægri skattpró-
sentu. Ef hagnaðurinn er svo tekinn
út til eigenda þá leggst skattur á það
sem eftir stendur þegar búið er að
skattleggja hagnað fyrirtækisins.
Þetta er svokallaður fjármagnstekju-
skattur og er hann 10% af eftirstöðv-
unum. Þannig er í raun tvískattað
og ef hvoru tveggja væri t.d. 40%
væri lagður 40% skattur á tvisvar.
Fyrir utan allt tal um réttlæti
leiðir þetta einfaldlega til þess að
sparifjáreigendur fara með sitt til
annara landa og íslenska ríkið yrði
af tekjunum. Þetta veit almenn-
ingur, enda er hann betur upplýstur
en áður um samkeppni. Það þýðir
lítið að blekkja almenning og telja
honum trú um að auknar álögur á
atvinnuvegina skili sér í meiri
tekjum fyrir ríkið. Almenningur
veit einfaldlega betur.
Nýr Dagur?
Nýjasta og síðasta útspil formanns
Samfylkingarinnar er að fá „óháðan“
frambjóðanda til að leiða lista fylk-
ingarinnarviðnæstuborgarstjórnar-
kosningar. Hefur formaðurinn
skrifað blaðagreinar til að undir-
strika það sjónarmið og fá Dag B.
Eggertsson til að fara fram.
Með þessu er formaðurinn að lýsa
yfir vantrausti á borgarstjórann
Steinunni Valdísi og frambjóðand-
ann Stefán Jón Hafstein. Kannski
vonar formaðurinn einlæglega að
nú sé fram undan bjartur dagur og
fagur, en það að beita sér svo beinum
hætti í prófkjöri Samfylkingarinnar
ekki líklegt til að auka á samheldni í
„Samfylkingu“.
Mörgum sem áður studdu Ingi-
björgu Sólrúnu er að vonum brugðið,
enda er Steinunn Valdís „Samfylk-
ingarkoná' og borgarstjóri og hefði
mörgum þeirra þótt rétt að sýna
henni þá virðingu að beita sér ekki
opinberlega gegn henni. Getur verið
að Ingibjörg vilji með þessu varð-
veita goðsögnina um sjálfa sig sem
borgarstjóra? Eitt er víst að frekari
vandræði Samfylkingarinnar í
Reykjavík eiga ekki eftir að auka
fylgið á landsvísu.
Höfundur erframkvcemdastjóri
Klippt & skorið
OssurSkarphéð-
insson fór ham-
förum fyrir viku
vegna þess að ráðherrar
voru ekki viðstaddir aðra
umræðu fjárlaga, enda
frumvarpið tæknilega séð
komið úrhðndum ráðherraog til kasta þingsins.
Var hann mjög sár yf ir því að geta ekki átt orða-
stað við ráðherra um ýmis hugarefni sín. Það
tækifæri gafst hins vegar við þriðju umræðu
fjárlaga á þriðjudag. Þá reyndist Össur hins
vegar fjarri góðu gamni þar sem hann hafði
brugðið sér til Washington á ráðstefnu um ein-
hver óljós málefni. Þegar þetta kom í Ijós orti
Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra:
Össur hefur vissu og von
víxil hann sérsió í SPR0N
vappar nú um i Washington
og vill þar flækjast lon og don
Hitt er svo annað mál að það er rangt hjá Jóni
að Össur hafi slegið víxil fyrir farinu. Það voru
skattborgarar, sem borguðu þann brúsa.
Ekki erlangtsíðan
þeim möguleika
var velt upp að
Jónarnir útlægu, Jón
Baldvin Hannibalsson
og Jón Sigurðsson,
ættu afturkvæmt í ís-
lensk stjórnmál, en þeir
eru báðir um þessar mundir að binda enda á
störf sín erlendis og halda jólin hér heima. Jón
Baldvin vill ekkert útiloka í því samhengi og er
„heitur" að sögn vina hans. í gær birtist síðan
lærð grein eftir Jón Sigurðsson á heiðursstað
í Morgunblaðinu. Kremlarfræðingar telja þess
ekki langt að bfða að Jón láti til sfn taka á opin-
berum vettvangi á fslandi á ný.
klipptogskorid@vbl.is
Nú stendur yfir
sextán daga
átak gegn of-
beldigegnkonum,enað-
standendurþess segjast
hafa miklar áhyggjur af
heilsu réttarkerfisins og
telja það afar veikt. Til
þess að ráða táknræna bót á máli voru settir
plástrar á héraðsdómstóla landslns f gær, en
f framhaldinu hélt Femínistafélagið „Jólahitt"
á Kaffi Rósenberg í Lækjargötu. Meðal þeirra
sem þar komu fram var leik- og söngkonan
Jóhanna Vigdís Arnardóttir. Nærvera
hennarkannað skýra hvers vegna ekki var farið
út í að plástra Hæstarétt, en móðir hennar er
Guðrún Erlendsdóttir, hæstaréttardómari.