blaðið - 07.12.2005, Side 22
22 I VIÐTAL
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2005 blaöiö
Magnús Ragnarsson, sjónvarpsstjóri Skjás Eins
Við erum rétt að
lœra að skríða,
en við œtlum að
ganga og hlaupa
99............................................
Þeir ensku eru reyndar búnir að átta sig á því
að að íslenski markaðurinn er alveg kolskakkur
afþví að það eru allir að horfa á Chelsea og
hin íslendingaliðin. En þetta hefur verið mjög
skemmtilegt og viðtökurnar verið mjög góðar."
Skjár Einn hefur nú verið í loftinu
í rúm sex ár og hefur farið ört
vaxandi jafnt í gæðum og um-
svifum. I dag ná um 8o% heimila
á landinu útsendingum Skjás
Eins, annað hvort í gegnum breið-
band Símans, eða með örbylgju-
loftnetum. Nýverið hóf Skjár
Einn útsendingar á gagnvirku
stafrænu sjónvarpi í samstarfi við
Símann undir nafninu Skjárinn
og er ekki ofsögum sagt að þar
sé um raunverulega byltingu að
ræða í íslensku sjónvarpi. Þórður
Snær Júlíusson ræddi af þessu
tilefni við Magnús Ragnarsson,
sjónvarpsstjóra Skjás Eins, um
framtíðina, nýja dreifikerfið, sam-
keppnina og brey tingar á rekstrar-
formi Ríkisútvarpsins.
Magnús er gríðarlega ánægður með
þau viðbrögð sem nýja dreifikerfið,
Skjárinn, hefur fengið. „Viðbrögðin
hafa verið afskaplega góð. Það er
búið að tengja ADSL tengingu inn
á annan tug þúsunda heimila nú
þegar. Þeir sem hafa prófað þetta
hafa líka verið afskaplega ánægðir.
Þetta hefur líka verið svona dreifi-
kerfi sem sér eiginlega algjörlega
um sig sjálft.Við erum náttúrulega
að bjóða upp á þjónustu sem er ekki
möguleg á öðrum dreifikerfum eins
og til dæmis myndveituna þar sem
er hægt að leigja bíómyndir heima í
gegnum dreifikerfið,“ en notendur
Skjásins geta heimsótt Nýja og
Gamla bíó, fyrstu gangvirku sjón-
varpsþjónustu íslands, með því að
ýta á einn takka á sjónvarpsfjarstýr-
ingu Skjásins. „Á sama tíma erum
við náttúrulega að taka yfir allar
erlendu rásirnar sem voru áður inni
hjá Símanum þannig að við erum
líka farin að sinna öllu efnisfram-
boðinu," segir Magnús og bætir
við að hann sjái ekki fram á annað
en hraðan vöxt í uppbyggingu og
áskrift að kerfinu á næsta ári.
Á fullu að auka þjónustu Skjásins
Þegar Magnús er spurður hvernig
hann sjái framtíðina fyrir sér hjá
Skjá Einum þá er hann afar já-
kvæður. „Við erum náttúrulega á
fullu að auka þessa þjónustu sem
við erum að veita í gegnum þetta
gagnvirka sjónvarpsdreifikerfi,
dreifikerfinu Skjánum, sem við
erum með í gangi núna. Það er nóg
af verkefnum þar. Við erum svona
rétt að læra að skríða í því kerfi, en
við ætlum okkur bæði að ganga og
hlaupa."
Hann segir einnig að mögulega sé
á döfinni að auka innlenda dagskrár-
gerð hjá Skjá Einum þrátt fyrir að
hún hafi verið blómleg framtilþessa.
„Sem stendur höfum við verið með
9 innlenda þætti í framleiðslu og
það hefur alltaf verið mikil áhersla
á innlent efni á Skjánum og ég sé
ekki fram á annað en að það verði
þannig áfram. Trúlega mun þessum
raunveruleikasjónvarpsþáttum þó
fækka. En tíminn leiðir það þó í ljós.
Við erum samt alltaf að leita að góðu
efni.“
Ekkert víst með fram-
hald Bachelorsins
I kjölfar þess að Magnús minntist
á mögulega fækkun raunveruleika-
þátta lá beinast við að spyrja hann
hvort að slíkt þýddi að þjóðin fengi
ekki að sjá aðra seríu Bachelorsins
verða að veruleika? „Tíminn verður
að leiða það í ljós. Hann hefur þó
gengið mjög vel. Við höfum verið
mjög ánægðir með viðtökurnar en
það urðu ákveðin óþægindi sem
urðu til þegar að framleiðslufyrir-
tækið sem framleiddi þáttinn var
keypt af keppinautum okkar. Við
höfum því verið í þeirri sérkenni-
legu stöðu að 365 ljósvakamiðlar
hafa verið að framleiða Bachelorinn
fyrir okkur,“ segir Magnús og ljóst
að sú staða að samkeppnisaðili sé
að framleiða vinsælt efni fyrir keppi-
nauta verður að teljast verulega
óvenjuleg. „Okkur hefur nú ekki
staðið á sama um þetta. 365 fékk
reyndar mjög strangan úrskurð frá
samkeppniseftirlitinu um daginn
þannig að þá róuðust aðeins áhyggj-
urnar yfir þessu.“
Þjónusta sem þekkist ekki
annars staðar í heiminum
Magnús segir að viðbrögð við þeirri
þjónustu sem Skjár Einn hefur boðið
upp á í tengslum við Enska boltann
hafi verið framar björtustu vonum
en allir laugardagsleikir hverrar um-
ferðar hafa verið sýndir á fimm sér-
stökum rásum tileinkuðum Enska
boltanum í vetur.
Ég er ekki sáttur með að RÚV sé áfram á
auglýsingamarkaði og geti þannig verið
eina opinbera fyrirtækið sem leyfist að
gefa út gjaldskrá og gefur síðan djúpa
afslætti af henni í samkeppni við einka-
markaðinn.
Allt til innpökkunar!
Jólapappír í úrvali
$ Eingöngu sala til fyrirtækja.
Opiðfrákl. 08.00-16.00.
Réttarhálsi 2-110 Rvk - Sími: 535-8500 - info@flora.is
NÝ SENDING
BLÚSSUR, BOLIR OG VESTI
vErhlistinn. v/Laugalæk • sími 553 3755