blaðið - 07.12.2005, Síða 23

blaðið - 07.12.2005, Síða 23
blaðið MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER VIÐTALI 23 §«§1 99.................................................................... En þetta er náttúrulega mjög skökk mynd þegar að megnið af útvarps- stöðvunum, megnið af sjónvarpsstöðvunum og helmingurinn afdagblöð- unum er á einni hendi. Síðan er virðisaukakeðjan alltafað stækka hjá þeim í allar áttir með því að þeir eru að kaupa framleiðslufyrirtækin." ,Þetta hefur gengið alveg glimmr- andi vel. Þetta er náttúrulega þjón- usta sem ekki þekkist annars staðar í heiminum. Það hefur verið mjög gaman að vinna með ensku deild- inni að þessu. Þeir eru svo forvitnir um tölur frá íslenska markaðnum þar sem að hægt er að horfa á alla laugardagsumferðina. Þeir ensku eru reyndar búnir að átta sig á því að íslenski markaðurinn er alveg kolskakkur af því að það eru allir að horfa á Chelsea og hin íslend- ingaliðin. Þetta hefur verið mjög skemmtilegt og viðtökurnar verið mjög góðar,“ segir Magnús en hann telur að áskrifendur af Enska bolt- anum séu komnir vel yfir tíu þús- und heimili. Hann segir að það sé ívið meira en þeir bjuggust við þegar að farið var út í þessa framkvæmd. ,Það er yfir því sem við bjuggumst við á þessum tíma sem er liðinn. Framar björtustu vonum og við erum bara mjög ánægðir.“ Hafa áhuga á að sinna íþróttum betur Magnús segir það vel geta komið til greina að sinna öðrum íþróttum en enska boltanum í framtíðinni. „Við fylgjumst bara með öllum rétti sem verður laus. Við höfum áhuga á að sinna íþróttum betur. Það er eitt- hvað sem að við hefðum mikinn áhuga á að fara út í. Hins vegar er þetta þannig að svona réttir koma og fara í sambandi við vinsældir. Þetta fer mikið eftir því hversu vin- sælir þeir eru. Það hefði til dæmis enginn spáð því fyrir sjö til átta árum að Formúlan yrði jafn vinsæl og risastór og hún er en að körfubolt- inn og boxið yrði algerlega horfið. Boxið hefur eiginlega alveg gefist upp. Þetta voru stærstu íþróttirnar í sjónvarpi fyrir svona sjö til átta árum síðan. Þá snérist allt um körfu- bolta og box. Við fylgjumst með öllu efni sem við teljum að sé spennandi fyrir okkur.“ Engar líkur á sölu Skjás Eins Orðrómur hefur verið á kreiki um það að Skjár Einn verði seldur frá Símanum í nánustu framtíð. Magnús segir að hann sé kannski ekki rétti maðurinn tilþess að spyrja um sannleika þeirra sögusagna. „Eg held að þú verðir að spyrja eigendur fyrirtækisins af því en ekki mig, en ég held að það séu engar likur á því. Við erum í sameiginlegu verkefni sem er þetta nýja sjónvarpskerfi og ég held að þetta séu bara sögusagnir sem eigi sér enga stoð í raunveruleik- anum,“ segir Magnús og sér því ekki fyrir sér einhvers konar samruna á fjölmiðlamarkaði til að vega upp á móti stærð 365. „Þetta er náttúrulega mjög skökk mynd þegar að megnið af útvarpsstöðvunum, megnið af sjónvarpsstöðvunum og helmingur- inn af dagblöðunum er á einni hendi. Síðan er virðisaukakeðjan alltaf að stækka hjá þeim í allar áttir með því að þeir eru að kaupa framleiðslufyrir- tækin, þannig að það er stanslaust verið að þrengja að öðrum miðlum." Smalað í rétt af stórhentum risa Magnús segir það ekki rétt að tvær stórar fjölmiðlaeiningar séu um einkamarkaði á fslandi þar sem að Skjár Einn sé langt í frá stór eining í samanburði við 365 ljósvakamiðla. Þegar Magnús er spurður hvernig hann sjái fjölmiðlaumhverfið á íslandi þróast í nánustu framtíð segir hann að sú staða sem sé uppi núna sé ekki ákjósanleg. „Þetta er leiðindaþróun. Þessi yfirburðastaða sem 365 miðlarnir eru komnir með hefur eiginlega hrakið alla hina miðlana saman í einhverskonar flokk á móti þeim. Það hefur mynd- ast miklu meiri samvinna þeirra á milli því það eiga allir undir högg að sækja á móti 365 og þeirra stöðu. Það vita það allir í rauninni að það er orðin mjög góð samvinna milli okkar, Blaðsins, Fróða og Morgun- blaðsins en okkur hefur eiginlega verið smalað saman í rétt af þessum risa sem er með þessa stóru hendi.“ Verið að frelsa RÚV í kjölfar þess að stjórnarflokkarnir samþykktu nýverið í þingflokkum sínum nýtt frumvarp menntamála- ráðherra um rekstraform Ríkis- útvarpsins þar sem að því verður breytt í hlutafélag þá lá beinast við að spyrja Magnús hvernig honum litist á þessa þróun. „Mér líst afskap- lega vel á þetta fyrir þeirra hönd. Ég er reyndar ekki búinn að sjá frumvarpið eins og er og veit ekki nákvæmlega hvað í því stendur. Ég hef bara hlustað á það sem ráðherra hefur sagt. Þetta verður nú líklegast til þess að frelsa RÚ V úr viðjum þess forms sem það er í dag.“ Magnús leynir því þó ekki að honum finnst ekki nægilega langt gengið í breytingum á rekstarformi RÚV. „ Ég er ekki sáttur með að RÚV sé áfram á auglýsingamarkaði og geti þannig verið eina opinbera fyrir- tækið sem leyfist að gefa út gjaldskrá og gefi síðan djúpa afslætti af henni í samkeppni við einkamarkaðinn. Það er mín persónulega skoðun að það ætti að taka RÚV af auglýsinga- markaði," segir Magnús Ragnarsson sjónvarpsstjóri að lokum. t.juliusson@vbl.is SKIFAIM KYIMMIR PALL ROSINKRANZ CHRISTMAS SONGS P.alt RosinKt auz Ol'ti'/HU 5 Glæsileg jólaplata frá einum dáöasta söngvara landsins. LAGALISTI; Christmas Soug, Blue Christmas, 0 Holy Níght, l'll Be Home for Christmas, Hnve Yourself h Merry Little Chi'istmas, Little Town of Bethlehem. White Christmas, First Noel. Let It Snow, O Come All Ye Faithful, Hark! The Heralri Angels Sing, Silent Night Helgartilboð í Skífunni! ...skemmtir þér ; ) Skífan Laugavegi 26 opið alla daga til 22 • Skifan Smáralind • Skífan Kringlunni ■ Póstkröfusími 591-5310 • www.skifan.is

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.