blaðið

Ulloq

blaðið - 07.12.2005, Qupperneq 26

blaðið - 07.12.2005, Qupperneq 26
26 I HEIMILI MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2005 blaöiö Heimilisþvotturinn samanbrotinn og straujaður Ódýrara en margan grunar! Að mörgu er að huga á aðventunni, eigi heimilið að skarta sínu fegursta á jólunum og heimilisfólkið að geta notið ljúfra samverustunda á nýbón- uðu gólfinu, japlandi á mandarínum og smákökum innan um allt fallega jólaskrautið. Eins og fjölmiðlar þessa lands þreytast seint að benda á eru kröfurnar til fjölskyldufólks á þessum tíma ansi stífar og ýmsum verkum að sinna svo jólakötturinn og samviskan nagi ekki burt jóla- skapið. Því þykir mörgum nú sjálf- sagt að létta róðurinn á aðventunni með því að leita á náðir atvinnu- manna með einhver þeirra verka sem sinna þarf. T.a.m. er ekki óal- gengt að jólaþrifin séu sett í hendur hreingerningarþjónustu, en eins hefur færst nokkuð í vöxt að heimilis- þvotturinn sé lagður á herðar fag- fólks í þvottahúsum. Ber jafnvel svo við að sumir kjósa að meðhöndla allt sitt óhreina tau á þennan hátt. Það er engin furða, fyrir lítinn kostnað er enda hægt að fá allan heimilisþvottinn samanbrotinn og strokinn, tilbúinn í skápinn á skömmum tíma. Efnalaugin Drífa við Hringbraut er meðal þeirra þvottahúsa sem annast þrif og frá- gang á heimilisþvottinum og hefur gert um árabil. Arna Gunnarsdóttir tók nýlega við rekstri þvottahússins ásamt félaga sínum og segir að sér komi nokkuð á óvart hversu duglegt fólk sé að láta þvo af sér í þvottahúsi. ,Já, maður er nýr í þessum bransa og ég get ekki sagt annað en að ég sé hissa á því hvað fólk nýtir þessa þjón- ustu mikið. Það ætti nú kannski ekki að koma á óvart, enda er ótrú- lega þægilegt að fá þvottinn sam- anbrotinn og tilbúinn í skápinn sé mikið að gera á öðrum vígstöðvum," segir Arna. Einstaklingar, Qölskyidufólk og þeir sem eiga ekki þvottavélar Verð á þessari þjónustu er í lægri kantinum samkvæmt Örnu og þá sérstaklega reikni fólk inn tímann sem annars yrði eytt í þvottahúsinu. ,Hver vél kostar um 14-1800 krónur Ágaett getur verið að eftirláta öðrum þvottavélapúl yfir hátíðarnar. eftir magni, rúmfötin fara á um 700 krónur, þvegin og straujuð. Yfirleitt er hægt að sækja fötin eftir tvo virka daga. Það er þokkalega góð blanda af fjölskyldufólki og einstaklingum sem nýta þessa þjónustu, en einnig mjög mikið af útlendingum. Það stafar líklega af því að við höfum engin þvottahús þar sem maður getur þvegið sjálfur hér á landi, fólk sem komið er til skamms tíma og á kannski ekki þvottavél notar þvi tækifærið. Annars er merkilegt að sjá hve straumurinn til okkar eykst á þessum árstíma, það er greinilega nóg að gera á mörgum heimilum og því gaman að geta létt fólki lífið á þennan hátt“, segir Arna. haukur@vbl.is Jólalyktinni laumað i rúmfötin Margir taka það til bragðs að setja á rúmið sérstök jóla-rúmföt yfir há- tíðarnar, eins og til þess að tryggja jólaskapið þegar lagst er til hvílu að kvöldi aðfangadags. Þeir sem vildu ganga skrefinu lengra í nota- legheitum og hafa þar að auki þurrk- ara til umráða gætu hæglega leitað á náðir vina okkar í Hollandi, en þar tíðkast sums staðar að bæta jólalegri lykt við rúmfötin. Það eina sem til þarf er nokkuð af kryddum (mælt er með einni eða tveimur kanil- stöngum, negulnöglum, þurrkuðum appelsínuberki og vanillubaun, til dæmis) og afskorinn nælonsokk. Er kryddunum komið haganlega fyrir í sokknum og síðan bundið fyrir. Þessum kryddsokki er síðan fleygt í þurrkarann ásamt rúm- fötum heimilisins og þegar þurrk- unarferlinu er lokið mun notalegan ilm leggja yfir heimilið, auk þess sem sérstaklega notalegt verður að skríða í jólabólið þegar dagur er að kvöldi kominn. Það eina sem gæta ast að þau klístrist við rúmfötin og breyta hlutföllum og hráefnum, hafi þarf að er að kryddin sem notuð eru geri þau subbuleg. Að sjálfsögðu má maður áhuga á því að rúmið manns séu nægilega þurr, til þess að forð- svo leika sér með kryddblönduna, lykti snyrtilega allt árið um kring. Kanilstengur og ýmis krydd má nota til þess aö fríska upp á iólalökin Færið gamla sokka og flísar til fyrri dýrdar! Matarsódi ogsítrónur koma að góðu gagni Hægur leikur er að ná aftur fallegum hvítum lit á munnþurrkur, viskustykki og jafnvel sokka sem hafa fölnað og gránað með ár- unum. Fyllið stóran pott af vatni og hendið nokkrum sítrónusneiðum saman við. Látið suðu koma upp og slökkvið á hitanum. Látið því næst gránaðar vefnaðarvörurnar liggja í þessari göróttu blöndu um klukku- stundarskeið, en þá ætti að þvo þær eins og venjulega. Séu það baðherbergisflísarnar sem þarf að færa til fyrri dýrðar getur oft verið gott að nota tilbúinn baðhreinsilög, en slíkir eiga þó til að vera grófir og geta jafnvel rispað flís- arnar. Sem ódýrum og öruggum val- kosti stingur bandaríska fangelsis- drottningin Martha Stewart upp á matarsóda, en hann hentar að hennar sögn ágætlega til sömu verka. Fyrst ætti að bleyta upp svæðið sem ætlunin er að hreinsa og bera síðan matarsódann á með gömlum tann- Þessu baðherbergi veitir ekki af yfirferö meö matarsóda og gömlum tannbursta. bursta. Best er að einbeita sér að litlum blettum og hreinsa sódann af á milli. Hann dugar og í mörgum tilfellum við þrif á postulínsvöskum, baðkörum og slíku. TILBOÐ aðeins kr. á mann 5777000 Hraunbær 121 Tilboöiö gildir alla virka daga frákl 11:00 til 17:00

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.