blaðið - 07.12.2005, Síða 34

blaðið - 07.12.2005, Síða 34
34 I KVIKMYNDIR MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2005 blaöiö Sýnd kl. 5.20 og 10.15 B.i. 12 árá B Sýnd kl. 5.20 Uttunln er jiirokrítMrl 4tf«r»U» <r flStMrl MlStarlMfjtlfltiirl ‘iMlfirr. " HVERSU LAKBT HfKOIB 4Ú GtHCI i mumiDUÍFi? S.| I I Mls ekkifgnr |AHt viðkv*rra> 1551 FÓR BEINT Á TOPPINN I BANDARÍKJUNUM! ÞAÐ SEM KOM FYRIR EMILY ROSE ER ÓHUGNANLEGRA EN NOKKUÐ SEM ÞÚ GETUR ÍMYNDAÐ ÞÉR ★★★ ★★★ BYGGÐ A SÖNNUM ATBURUUM THE $ íö& © Sýnd kl. 5.30,8 og 10.30 B.i. 16 ára Sýnd kl. 5.30,8 og 10.30 Sýnd kl. 8 B.i. 12 ára SUMAR REGLUR MA ALDREi BRJÖTAI Spvnnutr yllir af b«stu gerð meö Ed.v.ird Burnt og Bon Kmgtloy. aSOUNDoí , THlJNDEk Sýnd kl. 5.50,8 og 10.10 B.i. 16 ára Sýnd kl. 5.40,8 og 10.20 B.i. 12 ára 400 kr. í bló! Gildlr á allar sýnlngar merktar með rauðu HUGSAÐU STÓRT SÍMI564 OOOO fcctlunin er oo leikurlnn Rtls ekkifgri viSk»*rra! FÓR BEINT A T0PPINN I BANDARÍKJUNUMI ★ ★★ -SXDV ★★★ ★★★ Fxorcism . I—-i o r iímilí íoseItx 1 m .© Sýnd kl. 5.50,8 og 10.10 B.i. 16 ára Sýnd kl. 5,8 og 10.40 B.i. 16 ára Sýnd i Lúxus kl. 5.50, 8 og 10.10 inf Sýnd kl. 8 og 10.20 B.i. 14 ára lauqarAs Aetlunin er snargbrctnari. útferslan er ftúknar og leikukinn skelftlegri en nokkru smntf grr. fl'J %eMitfilmpv.ið kvenriáli tfYERSU^LAMBT MTMÖIR PÓ 6AK6A TlLWiHiLIJUrFl? * i Sý«dkL6,8og 10bu< Sýndkl-10:15 b.Ui SýadkLSbJ. 16 Horku tpennumýnd tra leiktuora ‘7 faat 7 Ftrloua og ' Boyi n the Hcoif Útgáfuhátíð Smekkleysu Smekkleysa SM efnir til útgáfuhá- tíðar í kvöld 7. desember á NASA við Austurvöll. Fram koma Hairdoc- tor, Kira Kira, Megasukk og Siggi Ármann sem kynna munu efni af nýjum breiðskífum sínum; Sham- poo, Skotta, Hús datt og Music for the Addicted. Þá munu Alfons X og Ben Frost snúa plötum milli atriða. Húsið opnar klukkan 21.00 og aðgangs- eyrir er 500 krónur. Fyrsta plata Hairdoctor, Shampoo, hefur nýlega komið út en Hairdoctor er alteregó Jóns Atla og Árna. ’ Jón Atli hefur hingað til verið hvað mest áberandi á tónlistarsviðinu sem plötusnúður og bassaleik- ari. Árni hefur spilað með fjölda listamanna hér á landi, allt frá hip hop sveit- inni Forgotten Lores yfir í Bang Gang en lengst af var hann þó í rokkhljómsveit- inni Fídel. Tæknitröllið Árni „PlusOne” var svo fenginn til að hjálpa við þetta allt saman og saman hafa þeir náð að gera Hairdoctor að því sem hann er í dag. Kira Kira, eða Kristín Björk Kristjánsdóttir er einn af stofnendum Tilraunaeldhússins/Kitc- henmotors og síðastliðin 10 ár hefur hún framkallað tónlist með hljómsveitum á borð við Spúnk, Big band brútal og Stórsveit Sigríðar Níelsdóttur. Listamannsnafnið Kira Kira hefur hún notast við síðan haustið 1999 eftir martröð sem hún fékk í Tókíó. Hún hefur samið tónlist fyrir leikhús, dans- verk og bíómyndir og komið oft fram, sem og haldið sýningar hérna heima og víðsvegar um Evrópu. Skotta er fyrsta plata Kiru Kiru. Megasukk er dúett Meg- asar og Súkkat og eru þeir hér með fyrstu sam- eiginlegu hljómplötu sína, eftir að hafa starfað saman undir nafninu Megasukk í mörg ár, og veittlandsmönnumóspar- lega af ávöxtum þess sam- starfs með tónleikahaldi víðsvegar um landið. Hljómplatan, sem ber nafnið Hús datt, kemur aftan að hlustendum úr öllum áttum, meðal ann- ars með nýjum útgáfum ■B af sigildum söngvum á ^ borð við Fatlafótl, Kúkur í lauginni og Vindlingar og viskí og villtar meyjar, sem Haukur Morthens gerði frægt á sínum tíma. SmekkJeysa SM gefur út nýjasta hugverk laga- höfundarins og söngv- arans Sigga Ármanns, geisladiskinn Music for theAddicted. Diskurinn inniheldur 12 ný lög eftir Sigga Ármann sem hafa verið í vinnslu síðast- liðin tvö ár. Verkið var að mestu unnið í hljóðverinu Nýjasta tækni og vísindi (NTV) undir stjórn Jóhanns Jóhannssonar en upptökur fóru einnig fram í Sundlauginni og í Studio Klink og Bank hjá Sigtryggi Baldurssyni. Fimmtudagur Föstudagur Mánudagur Þriöjudagur 8. desember 9. desember 26. desember 27. desember NASA vifi Austurvöll Höllin Vestmannaeyjum NASA vlfi Austurvöll Kaffi Krókur Sauöárkróki NASA við Austurvöll NASA viö Austurvöll Fimmtudagur 29. desember Föstudagur 30. desember Sýningar hefiast kl. 20:30 Miðasala í verslunum SKÍFUNNAR og ttlídí ÍS Kira Kira: Skotta ★★★★ Rammíslensk afturganga Kira Kira, eða Kristín Björk Krist- jánsdóttir var að senda frá sér sinn fyrsta geisladisk fyrir nokkrum vikum, og ber hann heitið Skotta. Hún hefur þó fengist töluvert við tónlistarsköpun síðastliðin tíu ár með hljómsveitum á borð við Spúnk, Big band brútal, og Stór- sveit Sigríðar Níelsdóttur ásamt því að vera einn af stofnendum Til- raunaeldhússins/Kitchenmotors. Hún hefur notað nafnið Kira Kira þegar hún skapar tónlist frá árinu 1999, en það birtist henni í mar- tröð. Ef til vill er nafn geisladisks- ins Skotta sem slíkt lýsandi fyrir tónlist Kiru Kiru, því þar eru dul- arfullir atburðir að eiga sér stað. Skotta er jú kvenkyns rammíslensk afturganga, og á það vel við tónlist Kiru Kiru, því hún „fangar" hljóð og tóna úr umhverfinu á sampler- inn sinn, og raðar þeim svo saman upp á nýtt þannig að hljóðin ganga aftur í nýju samhengi. Þarna má bæði greina afskaplega lifandi hljóð eins og hnegg hesta og mjálm katta, og mjög köld og „synthetísk11 hljóð eins og borhljóð, surg, væl, og skruðninga. Sum hljóðanna veit maður ekkert hvaðan koma, og heili mannsins er nú þannig gerður að hann fer ósjálfrátt að greina og flokka niður, og því er stundum nóg að gera hjá honum við að reyna að „skilja" hljóðin. Platan inniheldur fá lög sem eru hefðbundin lög, með inngangs- spili, erindi, viðlagi og lokaspili, en þeim mun meira af hugmyndum sem maður ímyndar sér að gætu verið úr stuttmyndum. Það er eins og að við hvert lag sé ósýnileg saga um mannveru sem er að gera eitt- hvað merkilegt eða hversdagslegt, eftir þvi hvernig hljóðin raðast saman. Mér finnst persónulega að mannveran taki til í geymslunni sinni í einu lagi, fari niður í fjöru i öðru, fari í stutta heimsókn til tannlæknisins á einum stað, og skelli sér út að skokka í iðnaðar- hverfi á enn öðrum. En þarna er minn heili að störfum, á móts við tónana sem Kira Kira býður upp á. Svo finnst mér afskaplega gaman að ímynda mér að platan Skotta sé mismunandi verk eftir því hver er að hlusta. Það er ekki hægt að segja það um margar plötur, því ég geri fastlega ráð fyrir því að fólk upplifi ,Satisfaction“ með Rolling Stones eða „Hjálpaðu mér upp“ með Ný- danskri á frekar svipaðan hátt. Hér er því um sérstaklega persónulega plötu að ræða, bæði fyrir flytjand- ann og hlustandann. Það helsta sem mætti setja út á plötuna er hve einsleitur söngurinn er þegar hann kemur inn, og væri gaman að heyra dýpri tóna í bland við þá skæru og stelpulegu sem Kira Kira notar. En annars er mjög erfitt að tala um eiginlega kosti og galla, því tónlistin er ótrúlega einstök og gerir í raun öll orð óþörf. Mæli ég með Skottu í heyrnartólum því þá nýtur maður hennar til fullnustu, og heyrir öll litlu hljóðin. Það er afar gott að fara i bað á meðan, og er það eitthvað sem ég hef upplifað hvað sterkast með íslensku hljóm- sveitinni Múm, en Kira Kira sækir á svipaðar slóðir og sú sveit, þótt Kira sé ómstríðari og villtari, enda er hún draugur! Að lokum má geta þess að Kira Kira spilar í útgáfu- veislu Smekkleysu á Nasa í kvöld kl. 21:00 ásamt Sigga Ármanns, Hairdoctor og Megasukk. heida@vbl.is Hjálmar meö tónleika á Eskifirði og Sjallanum Hljómsveitin Hjálmar er á fleygiferð þessa dagana og halda nú norður og austur. Þeir verða með tónleika í Valhöll Eskifirði og í Sjallanum Ak- ureyri. Hjálmar eru rómaðir fyrir frábæra sviðsframkomu og stórkost- lega skemmtun. Miðaverð á tónleik- ana er 1500 krónur + 150 kr. miða- gjald í forsölu og 2.000 kr. ef miðar eru keyptir við innganginn. Aldurstakmark á tónleikana er 18 ár. Tónleikarnir í Valhöll á Eskifirði verða föstudaginn 9. desember og hefjast klukkan 23. Forsala fer fram í verslunum Skífunnar og BT út um allt land, hjá Kalla litla á Eskifirði og á midi.is. Laugardaginn 10. desember verða þeir síðan í Sjallanum á Akureyri. Tónleikarnir hefjast klukkan 23. Forsala aðgöngumiða er á midi.is, í Skífuverslunum og BT um allt land. Nýjasti geisladiskur sveitarinnar kom út fyrir skemmstu og heitir hann því stutta og laggóða nafni Hjálmar. Diskurinn var tekinn upp i félagsheimilinu á Flúðum þar sem Hjálmarnir héldu eftirminnilega útgáfutónleikafyrirstuttu.Disknum hefur verið einkar vel tekið og þeir dómar sem þegar hafa birst verið mjög jákvæðir. Lögin Geislinn í vatninu, Ég vil fá mér kœrustu og Til þín, hafa verið mikið i spilun á útvarpstöðvunum. Það styttist óðum í að diskurinn nái gullsölu en fyrri diskur þeirra Hljóðlega af stað hefur nú þegar selst í yfir 8.000 eintökum.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.