blaðið - 07.12.2005, Side 37
blaðið MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2005
Hopkins gagnrýnir
bresk leikhús
Leikarinn Anthony Hopkins hefur gagnrýnt bresk leikhús og segir þau uppfull
af hroka og grobbi og hefur sagt að hann ætli aldrei aftur að leika aftur
í leikhúsi í London. Oskarsverðlaunahafinn kom sjálfur fram í leikhúsi
og var meðlimur Þjóðleikhússins í Bretlandi árið 1960. Leikarinn býr nú
í Bandaríkjunum og sér ekki eftir að hafa flust á slóðir kvikmyndanna
í Hollywood. „Mér er alveg sama hvað fólki finnst. Ég hef fengið nóg af
hrokanum þegar ég vann í leikhúsinu og besta ákvörðun sem ég hef tekið
var að snúa mér að kvikmyndunum. Ég hef enga þolinmæði fyrir grobbi
og rugli, það er nóg illkvittni í heiminum og það þarf ekki að bæta á það,“
sagði leikarinn.
EITTHVAÐ FYRIR...
...fársjúka
Sjónvarpið, kl. 20.35, Bráðavaktin
Bandarísk þáttaröð sem gerist
á bráðamóttöku sjúkrahúss í
stórborg.
...barnfóstrur
Stöð 2, Supernanny US, kl. 20:40
Ofurfóstran Jo Frost er komin til
Bandaríkjanna þar sem hennar
bíður ærið verk,
að kenna ungu
og ráðþrota fólki
að ala upp og aga
litla og að því
virðist óalandi
og óferjandi
ólátabelgi.
Skjár 1, Jamie Oliver’s School
Dinners, kl. 20:00
I þessum þætti fer Jamie Oliver i
heimsókn í Greenwich grunnskól-
ann í London til þess að athuga hvort
að honum takist að búa til hollan og
næringaríkan mat sem krakkarnir
borða án þess að kvarta.
■ Stutt spjall: Smárí Jósepsson
Smári er með þáttinn Tarfurinn sem er á dagskrá XFM 91.9 klukkan 6-10 öll virk
kvöld.
Hvernig hefurðu það í dag?
Ég er prýðis-salla-hress. Það er skemmti-
lega vont veður og það er alltaf gaman.
Hvenær hófstu fyrst störf í fjölmiðlum?
Ég byrjaði hjá Undirtónum árið 1998, og
hef verið í þessu annað slagið síðan. Svo
var ég með þungarokksþátt sem hét
Hamsatólg á Rás 2 frá 1999-2000. Tarfur-
inn byrjaði svo í júní 2005.
Er vinnan í útvarpi eitthvað öðruvísi en
Íiú hafðir ímyndað þér áður?
rauninni ekki. Þegar ég var ellefu ára á
Patreksfirði var ég sjálfur farinn að búa
til útvarpsþætti. Það var ekkert sem kom
mér á óvart þannig séð. Aðalatriðið er að
miðla sem mestri þekkingu áfram. Maður
verður bara að passa sig að vera ekki
kvismálugur.
Ætlaðirðu þá að verða fjölmiðlamaður
þegar þú varst lítill, eða jafnvel útvarps-
maður?
Ég ætlaði nú reyndar alltaf að verða
lyftarakarl, en þetta bara þróaðist svona.
Þetta hefur blundað í mér.
Hvað myndirðu segja að væri
það skemmtilegasta við
starfið?
Þaðeru hlustendurnir
sem hringja inn. Sér-
staklega þegar þeir
leiðrétta mann, það
er mjög ánægjulegt.
Maðurer náttúrulega
meingallað eintak,
eins og sjálfsagt
flestir eru. Það
styrkirmann í
þeirri trú að mað-
ur sé á rangri
leið,
sem
ergott.
Gætirðu lýst dæmigerðum degi í lífi
Smára Jósepssonar?
Ég vakna alltaf rétt fyrir sjö, og fer svo í
göngutúr um vesturbæinn. Það tekur mig
alltaf töluverðan tíma að vakna. Þegar ég
kem heim hringi ég í Matta, útvarpsstjóra
XFM og vek hann. Svo er það hugleiðsla,
og síðan rölti ég af stað í hina vinnuna.
Þar er ég mættur klukkan 9, og er allan
daginn, og svo er það útsending klukkan
sex. Yfirleitt eru hljómsveitaræfingar eða
eitthvað grín um kvöldið, eftir að vinn-
unni líkur.
Uppáhalds tími þinn á daginn?
Hann er í þau fáu skipti á sólarhringnum
sem ég kemst í sterkt vitundarsamband
við æðri máttarvöld. Það er á morgnana.
Ég leitast helst eftir sambandi við þrumu-
guði allra trúarbragða, eða þá við tónlistar-
gyðjuna Gýgju. Hún er mjög öflug líka.
Er eitthvað neyðarlegt sem hefur kom-
ið fyrir þig í útvarpi sem þú mannst
eftir?
Já, það hefur komið fýrir að lögin eru vit-
laust merkt, og þá segi ég kannski
að það sé eitthvað stórkost-
lega hresstframundan, og
þá kemur bara eitthvað
rólegt. Maður biður
fólk kannski um að
setja sig i hausa-
skaks-stellingar, en
það fær svo bara
einhvern róleg-
heitagír.
Hver myndirðu vilja
að lokaspurningin
væri í þessu stutta
spjalli?
Ég myndi vilja að
hún væri:„Er þetta
hundur?” og
þá myndi ég
svara:„Það er
bara fínt".
Sean Connery talar
irut á teiknimynd
Leikarinn Sean Connery hefur gert samning um að tala inn á stutt-
teiknimynd og er það fyrsta talsetningin sem hann hefur gert á ferli
sínum. Fleiri leikara sem má nefna sem taka þátt í talsetningu eru:
Alan Cumming, Miriam Margolyes, Richard Briers, Ruby Wax, Bar-
bara Rafferty, Alex Norton, Gail Porter og Ford Kiernan. Sagan fjallar
um ævintýri Sir Billi og geit sem heldur að hún sé hundur og er leikin
af Cumming. Connery hefur ákveðið að vinna með framleiðslufyrirtæk-
inu Glasgow Animation við vinnslu að myndinni sem mun klárast næsta
sumar. Stuttmyndin verður sýnd á kvikmyndahátíðum á næsta ári og
stefnt er á að gera sjónvarpsþætti og jafnvel bíómynd eftir stuttmyndinni.
í
FRÁ LEIKSTJÓRA GROUNDHOG DAY
0G ANALYZE THIS
Það gerðist á
aðfangadagskvöld
HÆTTULEGIR ÞJÓFAR Á HÁLUM ÍS!
BLAÐINU
UNNIÐ MIÐA
blaóió
FRUMSÝND 9. DESEMBER
S/nÁfffly BÍÓ REGÍlBOOinn ttargarbio