blaðið - 07.12.2005, Síða 38

blaðið - 07.12.2005, Síða 38
381 FÓLK MIÐVIKUDAGUFK 7. DESEMBER 2005 blaöiö HVAÐ FINNST ÞÉR? PWipÉilW wi WiLijffliTiTiJit LIMHEILI Stundum heldur Smáborgarinn að hann sé endanlega búinn að missa vitið. Hann vaknar kannski árla morguns og gerir sér grein fyrir því að hann er með eitthvað lag á heilanum. (morgun var það „Hjálp- um þeim". Hann erekki nýbúinn að hlusta á það, það var ekki í útvarpinu áður en hann fór að sofa f gær, né heldur er þetta eitt af uppáhaldslögum Smáborgarans. f rauninni finnst honum það svolítið leiðin- legt. En það hefur einhvers staðará und- anförnum dögum límst á heilabörk Smá- borgarans og nú sýpur hann seyðið af því. Þetta er lýsandi fyrir heila Smáborgarans, því það er næstum alltaf eitthvað lag að spilast I hausnum á honum. Þegar Smá- borgarinn er einstaklega óheppinn, eru lögin tvö á sama tíma, og honum tekst með engu móti að slökkva á öðru laginu. Þaö virðist sem heili Smáborgarans hafi fullkomlega sjálfstæðan vilja, og neiti að hlusta á rök eða bifast, þegar kemur að þessum ókeypis útvarpssendingum. Smáborgarinn hefur reynt að humma eitt- hvað annað lag til að hafa áhrif á þetta, en allt kemur fyrir ekki. Þegar Smáborg- arinn hefur sætt sig við að hafa einhver (mis)leiðinleg lög á hellanum daginn út og daginn inn, fer hann að velta heilabúi sínu betur fyrir sér sem slíku. Hvers lags líffæri er þetta eiginlega, sem hefur þann vafasama „hæfileika" að taka upp hræðilega ómikilvægar og ógáfulegar upplýsingar úr umhverfinu og halda siðan dauðahaldi í þær, hvort sem það kemur eigandanum vel eða ekki? Sumar upplýsingar eru vissulega nytsamar og koma sér vel en það á t.d. alls ekki við um hringitóna úr gsm-símum sem maður fær auðveldlega á heilann, eða það sem verst er: Auglýsingar. Það er eins og við manninn mælt að það er nóg að ganga fram hjá 10-11 eða 11-11-búð til að heilinn spili sjálfvirkt aulýsingastefin þeirra, alls óumbeðinn. Hér er vissulega kominn mesti veikleiki þessa liffæris. Heilinn er jú ágætur til síns brúks þegar rifja þarf upp heimilisfangið hjá Stínu frænku, eða þegar nálgast þarf upplýsingar úr bóka- lestri liðinna ára. En vegna þess að hann getur ekki annað en tekið upp það áreiti sem á hann kemur, er hann stútfullur af auglýsingum, og auglýsingastefjum og lógóum fyrirtækja sem auglýsingastof- ur hafa troðið þar inn svo árum skiptir. Þetta er plássfrekt og alveg tilgangslaust, og Smáborgarinn gæfi mikið til að geta keyrt eitthvað forrit til að losa sig við þessar auglýsingar sem hægja á vinnslu og taka upp minni, rétt eins og hægt er að gera með aðrartölvur. Kormákur Geirharðsson, vert á Ölstofu Kormáks ogSkjaldar Hvaö finnst þér um reykingafrumvarpið? „Mér finnst það meingallað. Það hefur verið unnið algjörlega einhliða, án samráðs frá mönnum sem starfa í þessum geira. Það þýðir ekkert að vera bara með Þorgrím Þráinsson og Iþróttaálfinn sem leiðbeinendur og álits- gjafa í þessu máli. Það er of einsleitt. Við vitum ekki enn hvaða áhrif þetta mun hafa á okkur, en lögin eru þannig að það má ekki drekka úti, og nú á að banna reykingar inni, þannig að ég held að fólk fari bara eitthvað annað en á barina. Þar sem þetta hefur verið gert í öðrum löndum hefur reglan verið sú að veltan dregst saman um 25%. Þessi 25% eru bara það sem skilur á milli lífs og dauða fyrir marga sem standa í svona rekstri. Mér finnst í lagi að banna þetta á matsölustöðum, en ef fólk inni á krám þar sem aldurstakmark er 22 ár getur ekki fengið að ráða sér sjálft þá veit ég ekki hvernig þetta endar. Á þá ekki næst að banna feitu fólki að fá sér kokteilsósu? Blaöið/SteinarHugi Fyrir Alþingi liggur umdeilt frumvarp þar sem banna á allar reykingar á veitingastöðum. Hjónavandrœði hjá Britney Hjónakornin Kevin Federline og Britney Spears hafa upp á síðkastið átt í erfiðleikum í hjónabandinu. Britney henti Kevin út af heimili þeirra i síðustu viku og pantaði gám til að sækja Ferrari bíl hans. Hún fór á verð- launahátíð til Las Vegas og Kevin elti hana til að reyna að bjarga hjónabandi þeirra og bókaði sig meira að segja inn á sama hótel og hún. Þá hringdi hann látlaust á hótelherbergið þar sem hún og sonur þeirra dvöldu. Britney var svo mikið niðri fyrir að hún ákvað að mæta ekki á verðlaunaafhendinguna. Vinir hjónanna segja Kevin elska bílinn sinn jafn mikið og hann elskar Britney og að hann hafi verið sjokker- aður þegar hann heyrði að hún hefði látið fjarlægja bílinn hans. „Britney varð enn reiðari þegar hann spurði um bílinn sinn og fór svo út að skemmta sér með vinum sínum,“ sagði vinur Britney. Þrátt fyrir að hún hafi farið út að skemmta sér þá er hún miður sín yfir sambandsslitunum að sögn vina. Hún er ung og hefur þegar einn skilnað á bakinu en í þetta skiptið er barn í spilinu og þeir sem til þekkja segja að hún gæti vel tekið hann til baka. Leikkonan Uma Thurman er á karlaveiðum þessa dagana og þrátt fyrir að hún hafi ver- ið á stefnumótum með hóteleigandanum Andre Balazs þá segist hún enn vera laus og liðug og vera að leita sér að kærasta. Hún hefur ekki verið í sambandi síðan hún skildi við Ethan Hawke árið 2003. Uma segist frekar týnd í þessu öllu saman og segist hafa velt því fyrir sér „hvernig fólk fari að þessu? Það er erfiðara og erfiðara að nálgast fólk, sérstaklega fyrir eldri konur. Ég kann vel að meta karlmenn og er búin að fylgjast með þeim náið og elska þá.“ Sarah Jessica Parker þreytt á kynlífsímynd Leikkonan Sarah Jessica Parker er hissa yfir þeim hugmyndum sem aðdáendur hennar hafa um hana og segir aðdáendur þáttanna Beðmáls í borginni halda að hún eigi lager af kynlífsleikföngum frá því hún var í þáttunum. Parker sem lék Carrie Bradshaw í Beðmáli var hörð á því að taka fram í samningnum að hún vilji ekki sýna neina nekt. Henni þykir því ótrúlegt að þrátt fyrir það tengi fólk hana við kynlífssenur í þáttunum. „Ég er reglulega spurð hvað ég hafi gert við öll kynlífsleikföng in. Karakterinn sem ég lék átti ekki einu sinni kynlífsleikföng en allar hinar í þáttun um áttu leikföng og fóru meira að segja úr fötunum,“ sagði Sarah. eftir Jim Unger Hvað meinarðu með að við séum bara með brunatryggingu? 2-20 © Jim Ungcr/dbt. by Unitcd Mcdia, 2001 Uma Thurman á lausu HEYRST HEFUR... Ossur Skarphéðinsson legg- ur dóm á frammistöðu einstakra ráðherra á heimasíðu sinni og notar það sem mæli- kvarða hversu mörg mál við- komandi ráðherrar hafa lagt fram á þinginu. Niðurstaða Össurar er sú að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hafi stað- ið sig verst, en Sigríður Anna Þórðardóttir best. „Munurinn er sláandi. Sigríður Anna mús- in sem læðist - hefur lagt fram og mælt á Alþingi fyrir langt- um hærra hlutfalli sinna mála en ríkisstjórnin að meðaltali. Hún virðist vera að standa sig mjög vel sem ráðherra einsog ég hef reyndar tvisvar sinnum áður bent á. Varaformaðurinn og vonarstjarnan Þorgerður Katrín er hins vegar langt fyrir neðan meðaltalið. Á sama tíma og Sigríður Anna hefur mælti fyrir sjö málum á aðeins tveim- ur mánuðum hefur Þorgerður ekki náð að mæla fyrir nema einu,“ segir Össur Skarphéðins- son. Mennta- málaráð- herra er líka til umræðu á heimasíðu Ög- mundar Jónas- sonar og núna vegna RÚV frumvarpsins. „Þorgerður Katrín Gunnarsdótt- ir, menntamálaráðherra og Páll Magnússon, útvarpsstjóri eiga ekki Ríkisútvarpið. Þjóðin á þá stofnun. I Kastljósi í kvöld hafði ég á tilfinningunni að þau gerðu sér ekki grein fyrir þessu. Þau ræddu lagafrumvarp sem ekki hafði einu sinni verið lagt fram á Alþingi um hlutafélaga- væðingu Ríkisútvarpsins, hvað þá að það byggði á breiðri sam- stöðu og sátt sem einhvern tím- ann var lofað varðandi breyting- ar á lögum um Ríkisútvarpið. Engin slík viðleitni hafði verið uppi. Stjórnarandstaðan kom af fjöllum - hafði ekki einu sinni séð frumvarpið í drög- um. Samt var þetta rætt eins og allt væri klappað og klárt og sjónvarpsmenn voru svo ljón- heppnir að menntamála- ráðherra og útvarpsstjóri voru reiðu- búin að sam- einast í kynn- ingarátaki í Kastljósi," segir Ögmundur. Ma r g i r eru þeirrar s k o ð - / u n a r að svoköll- f uð “enda- ***^^ ***** þarmsblaða- ^0 mennska” sem kennd hefur verið við DV hafi fengið nýja og dýpri merkingu með framhaldssögu blaðsins um kúkamálið í Hafn- arfirði undanfarna daga. DV menn bera sig þó vel og í gær tóku þeir forskot á sæluna og hleruðu völvuspá Vikunnar fyr- ir næsta ár. Eftir að hafa farið yfir hversu sannspá völvan var á yfirstandandi ári kemur þetta gullkorn: „Þetta var fyrir tæpu ári og spáin í ár verður ekki síður spennandi og þá ekki síst varðandi DV sem mun rísa með þjóðinni sem helsti fjölmiðill landsins hjá þjóð sem kann að meta þá sem þora þegar aðrir þegja.“ Svo mörg voru þau orð. Það er bara spurning hversu jarðtengdir menn eru...

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.