blaðið - 20.12.2005, Síða 25

blaðið - 20.12.2005, Síða 25
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 FYRIR KARLA I 25 Að raka á sér andlitið sómasamlega Ragnar Harðarson, rakari, tekinn tali Furðu margir karlmenn virðast ekki hafa fullkomnað þá list að raka á sér andlitið sóma- samlega, eins og rauðskellóttir vangar sumra þeirra bera glöggt vitni. Ragnar Harðarson, rakari, er hinsvegar sérfræð- ingur í athöfninni rétt eins og virðulegur starfstitillinn bendir til. Hann segir að galdur- inn að baki góðum rakstri sé að mestu fólginn í undirbúnings- vinnunni - og þá vegi þyngst að hita húðina áður. Á Rakarastofu Ragnars og Harðar við Vesturgötu, þar sem Ragnar stundar sína iðn, er farið að líða að jólum - rétt eins og ann- arsstaðar í veröldinni - og því mik- ill erill og ásókn í stólana. Þrátt fyrir að um rakarastofu sé að ræða sækja flestir gestir þeirra Ragnars og Harðar meira í hefðbundinn hárskurð heldur en rakstur að sögn Ragnars, en þó vill enn bera undir að þangað inn slæðist menn sem hafa áhuga á því að prófa að fá „alvöru rakstur". „Notum ekki hnífinn lengur" „Við notum ekki hnífinn lengur,“ segir Ragnar. „Við notum Mach3 rakvél frá Gilette - þessar nútím- agræjur eru einfaldlega betri en hnífarnir. Það er reyndar dálítið spurt um gamaldags rakstur, þá læt ég menn fá heitan bakstur og sápa þá vel - svo hef ég verið að leyfa einum og einum að prófa hnífinn en menn eru yfirleitt fljótir að beiðast undan þegar raksturinn hefst. Hann bítur ekki nógu vel - við kunnum kannski bara ekki að brýna hnífinn al- mennilega lengur? Við gefum mönnum góð ráð og seljum þeim alvöru raksápu og bursta. Menn eru farnir að leita dálítið í gamla tímann með það, enda er sápan mýkri og virkar betur á húðina. 1 sumum af þessum froðum og gelsápum sem eru vinsælar eru efni sem hraðdeyfa og mýkja húðina; það er meiri hætta á að maður fari illa með hana ef maður flýtir sér of mikið. Mér sýnist menn gefa sér meiri tíma í raksturinn nú á dögum, hiti húðina vel upp áður, í það minnsta. Svo er kannski tek- inn hátíðlegur sunnudagsrakstur,“ segir Ragnar, en hér að neðan má lesa uppskrift hans að „almenni- legum sunnudagsrakstri“. haukur@bladid.net Ragnar mundar hnífinn meðan húð viðskiptavinarins hitnar Sunnudagsrakstur að hætti Ragnars • Það er mjög sniðugt að hefja raksturinn á því að bleyta hand- klæði í mjög heitu vatni, vinda vel og láta liggja á andlitinu í nokkra stund. • Næsta skref er að bleyta húðina með volgu eða heitu vatni og sápa inn með góðum bursta, nudda vel í um mínútu. • Þá hefst eiginlegur raksturinn. Þá er um að gera að athuga vel hvernig skeggið liggur og passa að raka alltaf undan skeggrótinni, en ekki á móti. Ætli menn sér að verða spegilsléttir í framan er í lagi að fara aðeins á móti í þriðju atrennu, en ekki fyrr. • Að þessu loknu er gott að setja ,splass“ af köldu vatni framan í sig, til þess að loka húðinni. Síðan er fínt að ljúka verkinu með því að bera gott rakakrem, eða „afters- have balm“ á andlitið. Bladil/Steinar Hugi ^VÍWSTON Lroú C&j Action Optics oRvi® sase !(i-iOomisl Ari't Hort Internafiond patagonia patagonia veiöibúðin viö Lækinn Strandgötu 49 - 220 Hafnarfjöröur Simi 555 6226 - www.veidibudin.is Allt fyrir veiðimanninn á einum stað

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.