blaðið - 23.12.2005, Qupperneq 26
26 IGÆLUDÝR
FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 2005 1 blaðið
Börn elska aýr
Gefðu gœludýr
i jolagjof
Jólin eru sá tími sem við viljum nota til að
gleðja aðra ogþá kannski sérstaklega börnin
okkar enda eru jólin
uppáhaldi hjá þeim.
Flest börn elska dýr. Bæði hunda
og ketti. Hvers vegna ekki að láta
undan suðinu þessi jól og koma barn-
inu á óvart með lítilli sætri kisu? í
Kattholti er fullt af sætum kisum og
kettlingum sem bíða eftir því að ein-
hver komi og ættleiði sig. Það myndi
vissulega vera í anda jólanna að gefa
barninu kisu í jólagjöf. Sannkallað
góðverk... svo lengi sem kötturinn
er skapgóður og hress.
Áður en þú lætur til skarar
skríða er þó vert að kanna
aðstæður vel og vandlega og
spyrja sjálfa/n sig nokkurra
spurninga. Meðal annars:
• Kemst kisa inn og út?
• Er hún heppileg sem innidýr?
(Persakettir una sér til dæmis
vel innan dyra á meðan norskir
skógarkettir verða arfavitlausir
ef þeir þurfa að húka inni).
• Er einhver í fjölskyldunni með
ofnæmi fyrir köttum?
• Hafið þið tíma til að sinna
kisu?
• Má hafa dýr í húsinu?
oftar en ekki í miklu
Hvaða barn langar ekki til að fá gæludýr
í jólagjöf? Það er ekki flókið mál að finna
sætar kisur í Kattholti.
• Ertu með nægilegt pláss fyrir
sandkassa, klóruprik, matar-
dall og þess háttar?
Þegar þú hefur svarað öllum þessum
spurningum og ákvörðunin hefur
verið tekin er bara að drífa sig út
i næstu gæludýrabúð og kaupa
allt sem dýrið þarf. Þessu geturðu
pakkað inn og þegar börnin opna
pakkana vita þau hvað er í vændum.
Svo er bara að fara eftir jólin og velja
nýja fjölskyldumeðliminn.
GÆLUDÝRABÚR 50% AFLÁTTUR
ÖLL FUGLABÚR, HUNDABÚR,
NAGDÝRABÚR, KATTABÚR OG FISKABÚR
MEÐ 50% AFSLÆTTI.
ALLAR AÐRAR VÖRUR MEÐ 30% AFSLÆTTI.
Full búð af nýjum vörum.
TOKYO
gæludýravörur Hjallahraun 4 Hafnarfirði s.565-8444
20% afsláttur
af Profformance hágæða
hunda- og kattafóðri, í
öllum verslunum F og F
PROFORMANCE - dýranna vegna
25% afsláfttur af fiskabúrum
(eingöngu í Bleikargróf)
fulaifiikn-r
Bleikargróf 15 Rvk • Hafnarstræti 17 Rvk
Hfj Skólabraut 37 Akranesi • Hrannargötu 2 ísafirði
Kaupangur Akureyri • Eyrarvegi 35 Selfossi
IPROFormance
PET PRODUCTS INC
Dýrin halda líkajól
Harðfiskur, hunangs-
stangir og hakk í jólamatinn
Það er ekki bara mannfólkið sem
heldur upp á jólin heldur eru
blessuð dýrin ómissandi hluti
þeirra. Flestum þykir það vænt
um dýrin sín að það er gert vel
við þau um jólin, bæði í mat sem
gjöfum. Dýrin belgja sig því út af
mat, nammi og alls kyns góðgæti
en skilja lítið í tilgangi né hátíð-
Ieika. Enn fleiri klæða gæludýrin
upp í spariföt enda um að gera að
ganga alla leið í að gera jólin að
hátíð fyrir dýrin líka.
Kristinn Þorgrímsson, verslunar-
stjóri Dýraríkisins, segir að fólk geri
hiklaust vel við dýrin sín um jólin.
,Ég sé það bara á söluaukningunni
hér. Til dæmis rjúka jólasokkar
handa köttum og hundum hér út en
í þeim er blanda af alls kyns góðgæti.
Maturinn er oftast sá sami en það
eru margir sem lauma blautmat út
á og gefa þeim gotterí. Ég og flestir
hérna kaupum alvöru bein handa
hundunum okkar á jólunum."
Kettir elska hakk
Kristinn segir að það sé margt sem
hægt er að gefa dýrunum að borða
á jólunum og til dæmis fái kettir
stundum rjóma. „En það þarf þá að
vera kaffirjómi því það er meiri fita
í honum. Ef köttur fær venjulegar
mjólkurvörur þá getur það orsakað
fóðurhárlos, fiskurhefur sömu áhrif.
Það er ekki gott að gefa köttum fisk.
Það er algengur misskilningur að
kettir eigi að borða fisk en kettir eru
að upplagi kjötætur. Hefurðu ein-
hvern tímann séð kött í náttúrunni
að veiða fisk? En það væri til dæmis
tilvalið að gefa ketti hakk í jólamat-
inn, þeim finnst það æðislegt “
Opna sjálf pakka með harðfiski
Auk þess segir Kristinn að hamstrar
og páfagaukar fái ýmislegt góðgæti
um jólin. „Þeirra nammi er hun-
angsstangir, hunangshúðuð korn,
grænmeti og steinselja. Flestir páfa-
gaukar elska steinselju. Aðalmálið
er að gefa þessum dýrum nægilega
fjölbreytt fæði. Ef hamstrar og
páfagaukar fá grænmeti nokkrum
sinnum í viku þá er verið að gera
betur við þá en með því að gefa þeim
bara korn.“ Samkvæmt Kristni er
harðfiskur líka mjög vinsæll í jóla-
pakkann handa bæði hundum og
köttum. En hann tekur fram að það
megi ekki gefa þeim mikið af harð-
fisknum. „Það er allt gott í hófi. Það
er svo gott að gefa þeim harðfisk því
lyktin er svo sterk. Þegar ég var með
köttinn minn þá pakkaði ég harð-
fisknum inn í jólapappír og hann
fann hann alltaf og reif upp.“
svanhvit@vbl.is
Hafðu kisufína umjólin
Fer kisa í jólaköttinn?
Kisa verður að vera fín eins og hinir fjölskyldumeðlimirnir yfir
jólin. Tilþess aðgera hanafína, og koma meðþví í vegfyrir að hún
fari í jólaköttinn, þarf að sinna henni sérstaklega eins og hinum
fjölskyldumeðlimunum.
Þessi kisi hefur augljóslega verið vel baðaður og kembdur fyrir jól.
Settu hreint vatn í einn bala og
sápuvatn í hinn.
Notaðu kattasjampó eða venju-
legt barnasjampó, settu það út í
baðvatnið og blandaðu vel.
Láttu renna í án þess að kisa
heyri. Það minnkar stressið.
Hafðu vatnið volgt, alls ekki of
heitt og alls ekki of kalt.
Hafðu plastkönnu tilbúna,
eða hentugt áhald til að ausa
yfir kisu þegar hún kemur úr
sápubaðinu.
Settu fullt af handklæðum ná-
lægt baðkerinu og hafðu þau
útbreidd og tilbúin.
Taktu um kisu miðja
og settu hana ofan
í sápubalann.
Skrúbbaðu
mj úklega
eða þar til
hún löðrar.
Settu hana
svo yfir
í hreina
vatnið og
skolaðu með
könnunni
þar til öll sápan er farin.
Taktu hana svo úr baðinu og
vefðu hratt og örugglega inn
i stórt handklæði.
Þurrkaðu kisu
mjúklega og
leyfðu henni
svo að fara
og vera ein í
friði.
nýtt hálsband á aðfangadagskvöld.
Góða skemmtun!
Á kötturinn þinn eftir að fara
i jólaköttinn?
Kidsan þ(n þarf
nýtt hálsband á jólunum til að fara
ekki í jólaköttinn. Þau fást í ýmsum
gerðum.
Þegar kisa litla
er orðin þurr er
upplagt að kemba
hana í rólegheitum á
meðan þú sötrar kakó
og hlustar á falleg jóla-
lög eða horfir á sjón-
varpið. Svo lýkur þú
snyrtiferlinu með því að gefa kisu
Það er einmitt upplagt að dúlla við
köttinn á Þorláksmessukvöld, eftir
að tréð svignar undan kúlum og pip-
arkökur og negulnegldar appelsínur
hanga i eldhúsgluggum og dreifa
unaðslegum jólailmi um hús þín og
híbýli.
Til að gera kisu fína er um að gera
að byrja á því að baða hana. Hér
eru nokkur góð ráð: