blaðið - 23.12.2005, Síða 32

blaðið - 23.12.2005, Síða 32
FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 2005 blaöiö 32 i Smáauglýsingar 510-3737 Auglýsingadeild 510-3744 blaðiðiÉ Lndur 20.000 eintök af Vetrarborginni Vetrarborgin eftir Arnald Indriða- son endaði í 20.000 prentuðum eintökum sem munu klárast brátt hjá útgefanda en 18.000 eintök voru send út í bókaverslanir að kvöldi stysta dags ársins, 21. desember. Vetr- arborgin lendir þar með í hópi mest seldu bóka íslandssögunnar í jólaver- tíðinni en eins og kunnugt er rauf Kleifarvatn 20.000 eintaka múrinn í fyrra og endaði í 22.000 prentuðum eintökum. Menn voru á því að erfitt yrði að feta í þau spor og áætlanir Eddu gerðu ráð fyrir 15.000 prent- uðum eintökum, en Vetrarborgin náði lengra en svo og er nú ásamt Kleifarvatni mest selda bók Arnalds. Samkvæmt fregnum frá öðrum útgefendum er ljóst að Vetrarborgin er langmest selda bók ársins. Harry Potter virðist hafa verið prent- aður í 16.000 eintökum, ef marka má upplýsingar af vef Bjarts. Þær bækur sem fylgja í kjölfar Vetrarborgarinnar hjá Eddu þetta árið eru allar seldar í um og yfir 5.000 eintökum. Þetta eru Rokland eftir Hallgrím Helgason, Myndin af pabba eftir Gerði Kristnýju, Sól- skinshestur eftir Steinunni Sigurðar- dóttur, Fíasól í Hosiló eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur, Thorsar- arnir eftir Guðmund Magnússon, Súkkulaðibók Nóa-Síríus, Ég elska þig stormur - ævisaga Hannesar Hafstein eftir Guðjón Friðriksson, Heimsmetabók Guiness 2006 og Jónsbók eftir Einar Kárason. maður missi ekki samhengi í sérkenni- legu myndmáli, ljóðrænum lýsingum og mikilli kaldhæðni. Við lestur á bókinni upplifir maður á ótrúlegan hátt leyndardóma bók- menntanna á mörkum ævintýra og raunveruleika." Gagnrýnandi spyr sjálfan sig og lesendur: „Hvernig getur nokkur skrifað svona klassískan en þó svo póstmódernískan prósa?“ Efnisval bókarinnar segir gagnrýn- andi vera hreinustu snilld. Sagan vísi til Halldórs Laxness sem hafi verið verið mjög umdeildur, tekið kaþólska trú og aðhyllst sósíalisma í landi sem á aðild að Nato. Bókin minni á Sjálfstætt fólk eftir Laxness, sem á raunsæjan hátt lýsi fátækum, en sjálfstæðum bónda. Aðalpersóna bókarinnar kafi djúpt inn í listrænan hugarheim og sjái les- andanum fyrir fimm hundruð síðum af þjáningu og gleði frásagnarlistar- innar. „Frásögn Hallgríms Helgasonar líkist eldgosi í jökli, dökkar hliðar mannshugans - bældar tilfmningar brjótast fram sem ofbeldi. Jökullinn bráðnar og myndar flóð sem rýfur vegi og táveru. Hallgrímur breytir óhræddur um sögusvið, tímasvið og sögupersónur." f ritdómnum segir að frásagnarlistin sé íslendingum í blóð borin, Hrólfur klappi kindinni og snari fram ljóði fyrir hana um leið. fslendingar geti enn þann dag í dag lesið íslendingasögur án vandræða vegna þess hve málið hefur að miklu leyti haldist óbreytt. „Hallgrfmur hefur lesið sögu lands síns vel og í bók- inni er sögu tuttugustu aldarinnar gerð frábærlega góð skil. Sögumaður kvartar yfir því að hann hafi verið uppi á erfiðustu öldinni - öld öfganna: Öld sem veitti okkur magafylli, en át sálir okkar. Öld sem tæmdi kirkjur en fyllti ísskápinn. Öld sem dýrkaði kynlíf en fyrirleit börn. öld sem tók Krist niður af krossinum og skipaði honum að góla í mikrófón. ... Öld sem gat af sér Hitler en drap Guð. Er hægt að segja það skýrar," spyr gagnrýnandinn Irma Stenback í lok greinarinnar. Sambland persónuleika og pólitikur Einar K. Guðfinnson EinarK.Guðfinns- son, sjávarútvegs- ráðherra, skrifar á heimasíðu sína um Hugsjónaeld, bókina sem Sól- veig Einarsdóttir ritar um föður sinnEinarOlgeirs- son. Þess má til gamans geta að í bókinni er skemmtileg endursögn Sólveigar úr minningargrein sem móðir Einars K. Guðfinnsonar, María K. Haraldsdóttir, skrifaði um Einar Olgeirsson, þegar hann lagði á ráðin og hvatti hana til þess að ganga í Heimdall, til þess að greiða fyrir því að hún kæmist til Banda- ríkjanna til náms og starfa, en það var á McCarthy tímanum. Einar K. segir meðal annars um bókina á heimasíðu sinni: „Sólveigu tekst að draga upp þá mynd af Einari sem blasti við í mínum kolli, eftir kynnin af honum. Við erum nefnilega frændur; María móðir mín og hann eru systkina- börn og hann var mikill uppáhalds- frændi. Þess vegna heimsóttum við alltaf þau Sigríði þegar við fórum til Reykjavíkur og því keyptum við alltaf Rétt, blaðið sem Einar frændi gaf út af miklum móð. Mér var síðan af því mikill heiður að vera treyst fyrir brjóstmynd af Einari sem Alþingi á. Brjóstmyndinni var komið fyrir á skrifstofu minni á Alþingi og er nú á skrifstofu Hall- dórs Blöndal. Þar fer örugglega vel um hann enda Lárus faðir Halldórs einn af stofnendum Kommúnista- flokksins ásamt Einari og kemur við sögu í bók Sólveigar (eins og raunar Halldór) Einar var hlýr maður og fátt þótti mér jafn gaman á unglingsárunum og síðar og að sitja með honum og hlýða á frásagnir hans. Hjá Einari bar Nýsköpunarstjórnin hátt og augljóst að þar urðu til og styrktust bönd vináttu sem héldu æ síðan. Ég held að pólitískur styrkur Einars hafi á margan hátt skýrst af karakternum. Því þó að hann væri harðskeyttur á víg- vellinum, þá hafði hann til að bera eðliskosti sem sneru í aðra átt. Hann naut þess mjög að kenna. Sagan var honum ástríða. Hann var róm- antískur (sem Sólveig segir raunar vel frá, með því að gefa okkur lesendum til kynna hugsan- legar gamlar ástir hans) sbr. líka dálæti hans á Jónasi Hallgrímssyni og málverk af honum eftir Kjarval prýddi besta stað heimilisins. Og honum var líka í blóð borin og eðlis- læg umhyggjusemi. Praktíkin í pól- itík hans, sem bar hinar marxísku kreddur ofurliði oft á tíðum hygg ég einnig að skýra megi með persónuleika hans. Þegar maður les síðan umfjöllun af Einari að starfi í hinni sósíalísku hreyfingu, þá birtist glöggt þessi sérkennilega blanda. Annars vegar myndin af hinum harðskey tta sósíal- ista með marxískar rætur ogsíðanpersónuleikanum semvið kunnum svo vel að metá, sem vorum þeir lukk- unnaf pamfílar að kynnast honum vel og þykja vænt um hann. Kannski var það einmitt þetta einstæða sam- bland persónuleikans og pólitíkur- innar, sem gerir myndina af Einari Olgeirssyni svo skýra sem raun ber vitni um í sögulegu ljósi og kallar jafnframt fram væntumþykjuna." Arnaldur Indriðaon. Söluhæstur um þessi jól. Höfundur íslands eftir Hallgrím Helgason komin út í Finnlandi: „Leitun að jafn litrikri frásagnarlist,n segir stœrsta dagblað Finnlands Finnskir fjölmiðlar lofa mjög Höf- und íslands eftir Hallgrím Helga- son en bókin kom út í Finnlandi fyrir nokkrum dögum í þýðingu Juha Peura. Stærsta dagblað lands- ins, Helsingin Sanomat, birti í vikunni dóm um verkið og segir að leitun sé að jafn litríkri frásagnar- list og birtist í þessari skáldsögu. I ritdómnum segir að saga Hall- gríms sé fullkomlega sjálfstætt verk þótt sumir kollega hans sigli á lík mið. „Ferðalag aðalsöguhetjunnar um lönd bókmenntanna er ævintýri líkast og þýðing Juha Peura frábær. Á köflum verður að staldra við lesturinn svo \ \ 7? Ómissandi fyrir allt áhugafólk um knatt- /7* 'T'—^ spyrnu Eldrí bœkur á rílboöijí^'-.. Leiðbeiningar Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum írá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem uþþ eru gefnar. 1 5 8 4 9 6 4 3 1 7 8 9 3 5 9 7 9 2 6 3 4 9 2 5 6 3 8 8 Lausn á siðustu þraut 4 9 2 3 8 7 5 6 1 8 7 1 5 2 6 4 9 3 3 6 5 9 1 4 8 2 7 2 4 7 6 5 3 9 1 8 5 1 6 8 9 2 7 3 4 9 3 8 4 7 1 2 5 6 1 8 3 2 4 9 6 7 5 7 2 4 1 6 5 3 8 9 6 5 9 7 3 8 1 4 2 109 SU DOKU talnaþrautir

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.