blaðið - 13.01.2006, Page 24
24 I VIÐTAZi
FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2006 blaðiö
Bubbi semur lag um DV
Mannorðsaftaka
Bubbi Morthens er ekki einungis þjóðþekktur tónlistarmaður, hann er líka þekktur fyrir að liggja ekki á skoðunum
sínum. Á fimmtudagsmorgun kom Bubbi fram í þætti ívars Guðmundssonar á Bylgjunni og frumflutti lag sem tekur á
umræðunni um DV sem hefur riðið yfir landann undanfarna daga. En eins og flestir vita framdi maður sjálfsvíg eftir að
mynd af honum birtist á forsíðu, þar sem hann var sakaður um að nauðga ungum drengjum. Bubbi þekkir þjáningu þess
að vera forsíðuefni af eigin raun, enda stendur hann í málaferlum við tímaritið Hér og Nú eftir forsíðufrétt með villandi
fyrirsögn: „Bubbi fallinn." Var þar visað í að Bubbi væri byrjaður að reykja aftur þótt flestir hafi dregið aðra ályktun.
Svanhvít Ljósbjörg Guðmundsdóttir sló á þráðinn til Bubba sem féllst góðfúslega á að svara nokkrum spurningum auk
þess sem Blaðið fékk leyfi til að birta texta lagsins: „Sannleikurinn fer alla leið."
svcmhvit@bladid. net
BlaðiÖ/SteinarHugi
upp með það. Það er margt fínt í DV
og það er ekkert athugavert við gulu
pressuna, svo langt sem það nær. En
menn verða að bera ábyrgð á því
sem þeir segja og gera. Burtséð frá
því hvort þeir séu í einhverjum rétt-
trúnaði gagnvart mönnum sem mis-
nota börn, við erum öll sammála
um að það er ömurlegur hlutur og
það er mjög veikt og sjúkt fólk sem
gerir svona. Samt sem áður er engan
veginn hægt að réttlæta það að það
skuli vera sett mynd af manninum
á forsíðu og hann og hans nánustu
brennimerkt svona ævilangt, áður
en viðkomandi fær að verja sig og
áður en viðkomandi mál fer fyrir
dómstóla.“
Telurðu að lagið: „Sannleikur-
inn fer alla leið" hafi góð áhrif á
umræðuna?
„Ég er ekki einu sinni að hugsa um
það. Ég samdi lagið ekki með það í
huga. Þetta er mín leið til að tjá mig,
svona tjái ég mig. Ég skrifa ekki
pistla í blöðin en ég get sungið um
það sem mér finnst skipta máli. Það
eina sem ég er að gera er að spegla
þessa hluti og þessa umræðu. Þetta
er bara mitt innlegg í umræðuna.“
Hvernig datt þér í hug að skrifa lag
umDV?
„Þó ég noti DV þá er þetta auð-
vitað gömul og ný sannindi að þegar
menn segjast hafa fundið sannleik-
ann og hinn eini rétti sannleikur er í
þeirra höndum þá á að kvikna rautt
ljós hjá öllum hugsandi mönnum.
Það er mjög óhugnanlegt þegar
menn, og sérstaklega fjölmiðill, fer
í svona rétttrúnað. Þetta er auðvitað
einhvers konar angi af spænska
rannsóknarréttinum enda er það
líka alþekkt í gegnum söguna að fjöl-
miðlar hafa verið notaðir til að drepa
fólk. Þar má líta á Stalínismann,
Frankóismann, borgarstyrjaldar-
innar á Spáni og Hitlers. Napóleon
var fyrstur til að beita fjölmiðlum og
prenta sinn eiginn sannleika, hann
er faðir áróðurs i nútímafjölmiðlum.
Síðan tóku Bretar það upp og fylgdu
mjög stíft á eftir. Þeir náðu því það
vel að enn þann dag í dag er álitið að
Napóleon hafi verið mjög lítill sem
hann var ekki.“
Var lagið samið eftir að þú sástfor-
síðu DV á þriðjudag?
„Ég samdi lagið eftir Kastljósið
í fyrradag. Það sem sló mig var að
það skyldi sitja þarna maður og
staðhæfa að hann sé með sannleik-
ann. Það eru milljón útgáfur af
sannleikanum. Hver einasta lifandi
manneskja hefur sinn sannleika.
Það er enginn einn algildur sann-
leikur. DV er farið að gera út á það
að þeir hafa einn algildan sannleika
að leiðarljósi, þess vegna séu þeim
allt leyfilegt. Eg má af því ég get.
Það var ekki búið að dæma mann-
inn, málið er ekki einu sinni komið
í þann farveg að það sé verið að taka
það fyrir. Maðurinn var tekinn af
lífi þarna, þetta er ofsalega einfalt.
Og þeir hafa tekið fólk af lífi. Það
sem er grátlegast við þetta er að þar
sem ein manneskja er eru oftast að
minnsta kosti aðrar tíu manneskjur
sem verða fyrir högginu. Það er ekki
vottur af siðviti heldur er allt keyrt
áfram i nafni hins eina sannleika.
Maður getur bara ekki setið þegj-
andi lengur og sagt að sér komi þetta
ekki við. Ég er ekki að fara fram á að
DV verði brennt. Ég er ekki að fara
fram á að DV verði lagt niður. En
ég er að fara fram á að ritstjórarnir
verði látnir sæta ábyrgð. Þetta er jafn
mikið kaupendunum að kenna, jafn
mikið þeim sem auglýsa í blaðinu
að kenna og þetta er eigendunum að
kenna. Það er grátlegt að það skuli
þurfa að enda svona, að einhver
maður svipti sig lífi. Það kemur mál-
inu ekki við hver er sekur eða sak-
laus. Það kemur málinu heldur ekki
við, eins og Jónas Kristjánsson sagði
í Kastljósinu, að þarna væru fórnar-
lömb. Við erum með dómskerfi sem
tekur á svona málum, það dæmir
menn og við erum með fangelsi til
þess að refsa þeim. Að lenda á forsíð-
unni á DV með svona ávirðingar
er bara aftaka, mannorðsaftaka. 1
þessu tilvikinu endar það með því
að viðkomandi sviptir sig lífi. Það er
auðvitað hægt að segja: „Ekki benda
á mig, hann gerði þetta. Ekki gerði
ég þetta“. Ég á góðan DVD disk af
Nurnberg réttarhöldunum þar sem
menn svöruðu dómurum nákvæm-
lega á þessa vegu.“
Vonastu til að sjá afleiðingar þess-
arar umræðu?
„Burt með þessa ritstjóra. Eigend-
urnir hljóta Iíka að bera einhverja
ábyrgð. Það getur enginn horft fram-
hjá þessum hlutum. Þetta getur ekki
viðgengist svona endalaust að þeir
setji upp svona forsíður og komist
P.
oiano
Þorsteins Gauta
Ármúli38 /viðSelmúla
s: 5516751 6916980
pianoskolinn.is
pianoskolinn@pianaoskolinn.is
Kynningarnámskeið á vorönn.
13 vikur kr. 29.500
Börn og fullorðnir
fflMst ta í BbIb Hltrisrsu
EINHENTUR
Sannleik-
urinn fer
alla leið
Tökum þennan kauða
Dæmum hann til dauða
Forsiðuna auða
Viljum ekki í dag
Ekki benda á mig
Segir ritstjórinn
Ég skrifa bara sannleikann
Það er það eina sem ég kann
Ekki benda á mig
Hvíslar sá nafnlausi
Á lyklaborðið slær svo létt
Þetta var jú sölufrétt
Ekki benda á mig
Hrópareigandinn
Ég skipti mér aldrei af
Þessa skipun ég aldrei gaf
Tökum svona kauða
Dæmum hann til dauða
Forsíðuna auða
Viljum ekki í dag
Ekki benda á mig
Hrópar staffið allt
Sannleikann verðum að segja
Sorrý, hann skyldi deyja
Ekki benda á mig
Stamar sá sem auglýsir
[ blaðið dótið sitt
Það er þeirra hvernig
þeir selja sitt
Ekki benda á mig
Vælirkaupandinn
Röddinfölskog rám
Ég les aldrei svona klám
Tökum svona kauða
Dæmum hann til dauða
Forsíðuna auða
Viljum ekki í dag
Ekki benda á mig
Segirsá siðblindi
Og glottir í linsuna breitt
Fyrir þetta ég fæ víst greitt
Ekki benda á mig
Segir hræsnin og krossar sig
Ég veit hver sannleikurinn er
Og það hentar alveg mér
Tökum svona kauða
Dæmum hanntildauða
Forsiðuna auða
Viljum ekki í dag
Hvað er sannleikur, spyr ég
í öllum litum, svara ég
Sannleikurinn er meira
en hið prentaða mál
Sannleikurinn getur aldrei
Sannleikurinn getur aldrei
Réttlætt vinuraldrei
Aðeins nafnið sem
mönnum varpað á bál
Tökum svona kauða
Dæmum hann til dauða
Forsíðuna auða
Viljum ekki í dag
Tökum svona kauða
dæmum hann til dauða
forsíðuna auða
viljum ekki í dag