blaðið - 28.01.2006, Qupperneq 18
18 I VIÐTAL
LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 2006 blaðið
Pólitíkin ekki
ósvipuð lœknisstaríinu
Dagur B. Eggertsson gefur kost
á sér til þess að leiða Samfylk-
inguna í borgarstjórnarkosn-
ingunum í vor, en þau eru þrjú
um að keppa um oddvitasætið.
Andrés Magnússon hitti Dag á
Hressingarskálanum til þess að
ræða prófkjörið, pólitíkina og
framtíð Reykjavíkur.
Þið eruð þrjú að sækjast eftir leið-
togasæti Samfylkingarinnar. Um
hvað eru menn að kjósa?
„Það er verið að kjósa um áherslur,
en það er líka verið að leggja mat á
einstaklinga. Það, sem ég held að
mestu skipti þó, er fyrir hvaða verk
við stöndum þegar litið er til þeirra
stjórnmálastarfa, sem við höfum
innt af hendi. Ein höfuðástæða
þess, að ég ákvað að gefa kost á mér
í þetta, er að mér fannst Sjálfstæðis-
flokkurinn hafa tekist að nýta það
tómarúm, sem varð til þegar ljóst
var að Reykjavíkurlistinn byði ekki
fram að nýju. En ég get ekki hugsað
mér að sjálfstæðismenn vinni óverð-
skuldaðan sigur í vor og ég bauð
mig fram til þess að koma í veg
fyrir það. Sú ákvörðun beinist ekki
gegn meðframbjóðendum mínum.
Á endanum snýst það kannski um
hvert sé mest sannfærandi svarið
við Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, odd-
vita sjálfstæðismanna. Við erum að
fást við uppbyggingu hinnar nýju
Reykjavíkur, en sjálfstæðismenn
hafa ekkert nýtt að bjóða til þess.“
Það er stuttur tími til stefnufyrir
þig, þú ert glœnýr Samfylkingar-
maður og býður þigfram tilfor-
ystu í prófkjöri.
„Ég held að það sé ofmetið hvað
menn geti sáð mörgum fræjum
á lokaspretti kosningabaráttu og
held að prófkjörið sé fremur próf-
raun á það hvort það sé uppskera
fyrir hendi. En þetta er vissulega
tækifæri til þess að ydda áhersl-
urnar og skerpa sýnina. Ég er auð-
vitað nýjastur af okkur þremur,
sem sækjumst eftir efsta sætinu, og
gekk alveg út frá því að ég þyrfti að
kynna mig fyrir stórum hópi Sam-
fylkingarfólks og annarra, sem
geta hugsað sér að taka þátt í próf-
kjörinu. En slík kynning er líka
mikilvæg fyrir framboðið í heild,
því ég held að það séu gríðarleg
sóknarfæri fyrir Samfylkinguna í
vor.“
Var óflokksbundinn, ekki óháður
Hvernig hefur þér verið tekið í
Samfylkingunni eftir að hafa verið
óháður í samstarfi R-listans?
„Ég hef aldrei sagst vera óháður,
heldur óflokksbundinn. Það tók
mig einfaldlega tíma að finna
minn farveg. Eg held að það hafi
verið styrkur Reykjavíkurlistans
að vinna með fólki óháð flokks-
línum og ég held að í samfélaginu
sé ákveðin krafa um málefnalega
málsmeðferð og fagmennsku, sem
kallar á það að það er eitt helsta
verkefni stjórnmálanna að reyna
að ná í fólk, hvar sem það er, ef það
getur orðið að gagni í stefnumótun,
ákvarðanatöku eða framkvæmd
verkefnanna. Reykjavíkurborg,
stofnanir þess og stjórnmálamenn-
irnir þar eru ekki upphaf og endir
alls samfélagsins. Þó ég hafi fundið
minn bás, vegna þess að ég tel Sam-
fylkinguna eiga langbrýnast erindi
við samtímann af flokkunum á
sviðinu, þá veit ég að það eru mjög
margir, sem eru í sömu stöðu og ég
var. Hafa ekki alveg fundið sinn
farveg, en vilja samt láta gott af sér
leiða fyrir borgina eða samfélagið í
heild og þurfa að gera það."
BlaM/Frikki
Finna þarf framtíðarlausn um skipulag Vatnsmýrarinnar segir Dagur B. Eggertsson
aðeins
einn samgönguás í borginni, þar
sem Miklabraut klýfur borgina
niður. Það þurfum við að laga og
þá eru Sundabraut og Öskjuhlíðar-
göng augljósir kostir. Ég held líka
Þú sagðir að þú hefðir þurft tíma
tilþess að finna fjölina, Hefur þú
breyst?
„Já, ég hugsa það. Ég hef bæði lært
mjög margt og dýpkað þá sýn, sem
ég kom með í farteskinu. Ég held
að öll reynsla liti þá nálgun, sem
maður hefur. Minn bakgrunnur
er úr læknisfræðinni og maður fær
óneitanlega innsýn í ólíka samfé-
lagshópa við að vinna á bráða-
móttöku. Þar leiðir ástand
fólks það á fund læknis
frekar en eitthvert val
Þá er óhjákvæmilegt að
maður setur sig inn í
alls konar aðstæður."
Eigum að virkja
kraft borgaranna
Þetta er sumsé
ekki ósvipað
læknisstarfinu?
„Já, furðumikið.
En þetta snýst ekki
aðeins um hvað hið
opinbera gerir eða
læknirninn leggur
til. Ég held að við
náum mestum árangri
ef við náum að undir-
strika ábyrgðina hjá einstak-
lingum, fjölskyldum, íþróttafé-
lögum eða hverjum öðrum, sem
að koma.“
Hvað með skipulagsmálin? Þau eru
augljóslega brýn úrlausnarefni, en
hafa nú gengið soldið brösuglega hjá
ykkur í R-listanum.
„Ég held að færsla Hringbrautar-
að tenging út á Álftanes kunni að
verða tímabær innan skamms."
Alþjóðleg skipulagssam-
keppni um Vatnsmýri
En er ekki Vatnsmýrin stóra sárið?
„Hún hefur lengi verið það, en
það er byrjað að laga það. Ég á
sæti í nefnd, sem ásamt Sam-
gönguráðuneytinu hefur
það hlutverk að taka
út Vatnsmýrarsvæðið
og finna nýtt flug-
vallarstæði á höf-
uðborgarsvæð-
inu. Ég held
að flestir hags-
munaaðilar
séu farnir að
átta sig á því
að við þurfum
að finna
lausnir, bæði
vegna þarfa
borgarbúa og
flugsins."
Og hvað verður?
„Við erum að
fara í alþjóðlega hug-
myndasamkeppni
um heildarskipulag
Vatnsmýrarinnar, bæði
vegna þess að það er stór
hópur borgarbúa og raunar
landsmanna, sem viðurkennir að
það eru rök bæði með og móti flug-
vellinum, en vill fá að vita hvað
kæmi í staðinn. Ábyrgð okkar er
mikil og það skiptir öllu að vanda
til verka. Við höfum fengið einstak-
innar hafi verið skynsamleg, en hitt
er annað mál að útfærslan er vissu-
lega umhugsunarefni. Ég hef þess
vegna sett af stað róttæka skoðun
á samgöngukerfi borgarinnar, ekki
bara þarna heldur á borginni i
heild. Vandinn er í hnotskurn sá
að við
(jrisaveisla "
e num qrænum
lega færa dómnefndarmenn til þess
að meta tillögur fyrir Vatnsmýrina.
Það eru Spánverjinn Joan Busquets,
sem var yfirmaður skipulagsmála
í Barcelona í aðdraganda Ólympíu-
leikanna, en þar heppnaðist einstak-
lega vel að flétta nýtt svæði inn í
gamla borg. Hann hefur líka komið
að skipulagi flugvallarsvæða um
allan heim og er prófessor við Har-
vard. Hildebrand Machleit, sem er
Þjóðverji, skipulagði og stýrði upp-
byggingu og skipulagningu á flug-
vallarsvæði í Berlín, og Kees Kahn,
sem er nýstirni í hollenskum arki-
tektúr. Kannski meiri húsa-arkti-
tekt en hinir, en afar framsækinn og
spennandi. Síðan er Steve Christer
fulltrúi íslenskra arktitekta. Þetta
er dómnefnd, sem verður kynnt
á næstunni og hefur alla burði til
þess að vekja alþjóðlega athygli á
verkefninu og laða að sterka hópa
til þátttöku. Þetta er auðvitað ein-
stakt skipulagsverkefni, því við
höfum í raun aldrei klárað að skipu-
leggja Miðbæinn eða höfuðborgina
sem slíka. Það er verðugt verkefni
reykvískra stjórnmálamanna."
Borgarstjóri úr Árbænum?
En þú hefur væntanlega persónu-
legan metnað líka?
„Jú, ekki ætla ég að neita því. Ef
hann væri ekki til staðar væri
maður tæpast tilbúinn til þess að
leggja á sig þá vinnu sem þarf til
þess að ná árangri. Það er bara
eins og um öll störf. Ég er raunar
þeirrar skoðunar að með mikilli og
markvissri vinnu sé allt hægt.“
Nú hefur maður heyrt gagnrýni á
þig um að þú sért innmúraður í 101
og horfir ekki nægilega til annarra
hverfa.
„Það er engan veginn rétt. Ég er
uppalinn í Árbænum og hef raunar
setið í hverfisstjórn þar. Ég er ekki
í nokkrum vafa um að sá uppruni
hefur nýst mér afar vel. Árbær, sem
eitt elsta úthverfið, felur nefnilega
í sér margvíslega lærdóma um nær-
samfélagið. Það er skynsamlegt út
frá öllum sjónarhornum að byggja
á hverfiseiningum og hverfisvit-
und, því fólk er einfaldlega tilbúið
til þess að leggja meira á sig fyrir
sitt nánasta umhverfi, börnin í göt-
unni eða börnin í hverfinu.“
Er Reykjavík kannski að verða of
stór?
„1 vissum skilningi. Við þurfum
að hugsa um Reykjavík í hverfis-
einingum hvað þjónustuna varðar.
Auðvitað eigum við að nýta okkur
stærð borgarinnar og byggja hana
upp sem höfuðborg, en við þurfum
að leggja áherslu á hverfin sem
grunneiningar hennar og horfast
í augu við það að fólk er ekki allt
eins. Þess vegna er ekki nóg að hafa
aðeins eina tegund byggðar í borg-
inni, heldur eigum við þvert á móti
að fóstra fjölbreytnina. Við höfum
vissulega verið að þétta byggðina í
miðborginni, en það er vegna þess
að við höfum vanrækt hana á undan-
förnum áratugum. En í því felst ekki
sú skoðun aðþað sé ekki gott að búa
í Árbænum. Eg veit það bara sjálfur
að þar er gott að búa. En við þurfum
að svara kröfum nýrra kynslóða, sem
vilja búa í mannlífsiðunni miðri. En
allt þarf þetta auðvitað að vera í góðu
jafnvægi. Ég má svo til með að skjóta
því að, sem harður stuðningsmaður
minn í Grafarvogi benti mér á, að
ef ég fæ umboð til þess að leiða Sam-
fylkinguna í kosningum, verður það
í fyrsta skipti sem Reykvíkingar eiga
þess kost að velja sér forystumann,
sem er uppalinn austan Elliðaáa."