blaðið - 28.01.2006, Blaðsíða 40
40 i BaRwAeFni
LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 2006 blaðið
Förum í bíó!
Oliver Tvrist
Núna er verið að sýna skemmti-
lega mynd í bíó. Myndin heitir
Oliver Twist og fjallar hún um
lítinn munaðarlausan strák sem
leiðist út í skipulagða glæpa-
starfsemi undir yfirstjórn hins
illræmda Fagins.
Þetta er gömul saga og sannarlega
ekki í fyrsta sinn sem hún er kvik-
mynduð, en upphaflega var gerð
mynd um Oliver árið 1909 og síðan
hefur sagan verið kvikmynduð
um tuttugu og fimm sinnum. Nú
er um að gera að draga mömmu
og pabba í bíó um helgina því þau
hafa örugglega jafn gaman af þess-
ari mynd og þú.
Sagan er eftir Charles Dickens,
en hann skrifaði margar vinsælar
og góðar bækur í gamla daga.
Oliver Twist á harðaspretti eftir að hafa reynt að hnupla úr vasa aðalsmanns.
ULitaðu
Svampur Sveinsson...
...eða SpongeBob Squarepants er sá alheitasti um þessar mundir. Nú
er upplagt að lita hann. Annað hvort eins og þig langar til í allskonar
skrítnum litum, eða bara alveg eins og hann er í sjónvarpinu:
Sunnudagar eru barnadagar í
aðalsafni Borgarbókasafns
... og næsta sunnudag,
29. janúar kl. 15, les Magga Stína sögur
eftir Astrid Lindgren og Tove Janson í
barnadeildinni á 2. hæð
m
BORGARBOKASAfN
REYKJAVllCUR
Allir velkomnir!
Tryggvagötu 15, Reykjavík
Sími 563 1717 - www.borgarbokasafn.is
■ Heimur dýrana
Dýr vikunnar
Rottur
Þegar við tölum um rottur þá
eigum við oftast við brúnrottuna
svokölluðu, eða Rattus norvegicus,
eins og hún heitir á latínu. Sú er 24-
30 sm löng og halinn 18-20 sm. Hún
er mórauð, mógrá, gulgrá eða
rauðgrá að ofan en ljósgrá að
neðan.
Fólk ruglar oft rottu-
ungum saman við mýs,
en þær þekkjast þó á
öflugri afturfótum
og gildari hala. Brún-
rottan er í híbýlum
manna og mann-
virkjum um allan
heim. Hún er upp-
runnin í Mið-Asíu og
norðanverðri Austur-
Asiu. Þaðan breiddist
hún út á 18. og 19. öld,
landveg til Rússlands og líklega
sjóveg til Suður-Asíu og áfram til
Evrópu. Hún barst til Ameríku 1775
og hingað kom hún um miðja 18. öld.
Útbreiðslu hennar um landið var
lokið seint á 19. öld. Hún er helst á
ferli í ljósaskiptunum og líka að degi
til, þar sem hún er ótrufluð.
Rottur hreiðra um sig alls staðar
sem þær eru óhultar og valda
stundum usla í fuglabyggðum, þar
sem þær éta bæði egg og unga. Þær
eru mikið á ferðinni í holræsum,
fjörum og sorphaugum, þar sem
þær lifa á líf-
rænum
urgangi.
Þær valda 0 f t
miklum skemmdum
og víða erlendis eru þær plága á
ræktarlöndum. Rotta gýtur sjaldan
oftar en 5 sinnum á ári og gengur
með í 21-24 daga. Ungarnir eru fyrst
hárlausir og bTindir og eru á spena
í 3 vikur. Það tekur kvendýrin 11
vikur að verða kynþroska og meðal-
aldur þeirra er eitt ár. Sum staðar í
útlöndum tíðkast það að fólk eigi
rottur sem gæludýr, en þær
eru gáfaðar og vel hægt
að temja þær til að gera
ýmislegt.
margret@bladid.
net