blaðið - 13.02.2006, Blaðsíða 4
4 I XNNLENDAR FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2006 blaAÍÖ
Kaupa flugfélag í Litháen
mbl.is | Sænska lággjaldaflugfélagið
FlyMe, sem íslenska eignarhaldsfé-
lagið Fons á stærstan hlut í, hefur
keypt ráðandi hlut í litháenska flug-
félaginu Lithuanian Airlines. Eig-
endur Fons eru Pálmi Haraldsson
og Jóhannes Kristinsson. Fons er
ennfremur eigandi Iceland Express.
Kaupin eru háð samþykki lithá-
enskra yfirvalda.
Lithuanian Airlines hefur um 40%
hlutdeild á flugmarkaðinum í Litháen
og starfsmenn eru um 580. Félagið á
fimm Boeing 737-500 þotur.
Tölvunám í viðurkenndum skóla
- skráðu þig núna í nám hjá tölvuskóla TV
</>
I MMi
>'
Góð byrjun á tölvunámi
►* Almennt tölvunám
Ef þú hefur litla reynslu af tölvunotkun eða vilt fá ítarlegt námskeið um állt
það helsta sem gert er með tölvum þá er þetta frábæra námskeið fyrir þig.
Helstu kennslugreinar
• Windows, Word og Excel
• PowerPoint, Outlook og Internetið
Lengd: 90 stundir/60 klst. • Verð: 69.990
Tölvuþekking fyrir konur
Námskeið sem hefur slegið í gegn, ætlað þeim konum sem vilja ná færni i
notkun tölva viö margvísleg verkefni hvort sem er i vinnu eða heima.
Helstu kennslugreinan
• Tölvugrunnur, WindowsogWord
• Excel, Internetið og tölvupóstur
Lengd: 60 stnd.MO klst. morgun eða kvöld • Verð: 45.900
► Tölvunám fyrir 50+
Ef þú hefur ekki ennþá lært á tölvu og ert komin(n) yfir fimmtugt er þetta
rétta námskeiðið fyrir þig. Þægilegur hraði, spennandi efni og frábær kennsla
gerir þig að öflugum tölvunotanda.
Helstu kennslugreinan
• Tölvugrunnur, Windows og Word
• Excel, Internetið og tölvupóstur
• Stafræn Ijósmyndun og vinnsla
Lengd: 72 stnd./48 klst. • Verð: 59.900
Tölvunám TV til betri verka
- hringdu núna í síma 520 9000
- og skoðaðu www.tv.is til að fá meiri upplýsingar
TOLVU- OG
VERKFRÆÐIÞJONUSTAN
Grensásvegi 16 • 108 Reykjavík • Sími 520 9000 ■ tv@tv.is • www.tv.is
Miðarnir verða ekki ódýrir
Einar Bárðarson hefur innflutningá erlendum fyrirmennum
„Míkhaíl Gorbatsjov er fyrsti fyr-
irlesarinn af mörgum þekktum
sem við hyggjumst flytja til
landsins,“ segir Einar Bárðarson
athafnamaður. „Fyrsti fyrir-
lesturinn kallast Stefnumót við
leiðtoga en síðan er stefnan að fá
til landsins fólk sem er þekkt og
hefur skarað fram úr í trúarlífi,
viðskiptum, íþróttum og fleiru.“
Míkhaíl Gorbatsjov var
kjörinn aðalritari sovéska
kommúnistaflokksins árið 1985
og gegndi því starfi allt þar til
Sovétríkin liðu undir lok.
Einar segir kostnaðarsamt að fá
menn á borð við Gorbatsjov til Is-
lands en á móti komi að þetta sé ein-
stakt tækifæri fyrir fólk að fræðast
af þessum merkilega leiðtoga. „Ég
geri ráð fyrir að stjórnmálamenn,
ungt fólk sem vill læra af áhrifa-
manni í stjórnmálum og jafnvel fólk
í viðskiptalífinu sýni því áhuga að
hlýða á Gorbatsjov sem er einn merk-
asti leiðtogi okkar tíma.“
Fyrirlestur Gorbatsjovs verður
haldinn í Háskólabíói 10 október
næstkomandi og er tilgangur komu
hans til íslands sá að minnast þess
að í ár eru 20 ár liðin frá því að
leiðtogafundur hans og Ronalds
Reagans Bandarikjaforseta var hald-
inn í Höfða.
Einar segir ekki búið að ákveða
verð miðanna en þeir fara ekki í um-
ferð alveg strax. „Það kostar helling
að fá Gorbatsjov til landsins og mið-
arnir verða ekki ódýrir“, segir Einar
en bætir við að miðaverð verði í sam-
ræmi við aðdráttarafl mannsins. Á
fyrirlestrinum verður tekið við for-
skoðuðum spurningum úr sal.
Bjartsýnn á þátttöku
á fyrirlesturinn
Einar segir svipað að fá menn á
borð við Gorbatsjov til landsins og
að fá hingað óperusöngvara. Einar
vildi ekki ræða nákvæmt verð á fyr-
irlesturinn en sagði ekki fráleitt að
miða það við verð á tónleika sem
getur verið á bilinu 4-20 þúsund
krónur.
„Það er alveg ljóst að Gorbatsjov
hafði áhrif á það hvernig unga kynn-
slóðin hugsar í dag því nú ríkir ekki
lengur sá ótti sem fylgdi kalda stríð-
inu.“ Einar hefur engar áhyggjur
af mætingu á fyrirlesturinn og
er bjartsýnn á að hann heppnist
vel. „Við erum bara búnir að kynna
þetta fjölmiðlum á fslandi en ég tel
ekki útilokað að heimpressan fái
áhuga á rnálinu." Gorbatsjov hefur
hlotið Nóbelsverðlaun og var valinn
maður 9. áratugarins að mati tíma-
ritsins Time.
Hnoða meira blása minna
Nýjar leiðbeiningar við endurlífgun með aukna áherslu á hjartahnoð
www.flugger.is
Nýjar leiðbeiningar hafa verið
gefnar út varðandi endurlífgun
eins og fram kemur á heimasíðu
læknablaðsins. Mun meiri
áhersla er nú á hjartahnoð en
áður.
Ákvörðun um að hefja
endurlífgun er tekin ef
einstaklingur er meðvitundarlaus,
svarar ekki áreiti og andar ekki
eðlilega. Hlutfall milli hjartahnoðs
og blásturs er nú 30 hjartahnoð á
móti tveimur blástrum. Gagnsemi
hjartahnoðs á fyrstu mínútum eftir
hjartastopp er ótvíræður en þáttur
öndunaraðstoðar á fyrstu mínútum
eftir hjartastopp er ekki jafn skýr.
Nýju reglurnar ganga út á að auka
vægi hjartahnoðs verulega á kostnað
öndunaraðstoðar á fyrstu mínútum
eftir hjartastopp. Við hjartahnoð
skiptir máli að þrýsta kröftuglega og
hratt á neðri helming bringubeins.
I nýju leiðbeiningunum er vægi
lyfjagjafar við endurlífgun talsvert
minna en oft áður.
Notkunarreglur hafa nú verið
þýddar á íslensku en í þýðingunni er
stuðst við evrópskar leiðbeiningar.
Þessar nýju áherslur gætu þýtt
endurskoðun á vinnulagi við
endurlífgun utan sjúkrahúss,
sérstaklega ef viðbragðstími
sjúkrabifreiðar er meiri en fimm
mínútur.