blaðið - 13.02.2006, Blaðsíða 24

blaðið - 13.02.2006, Blaðsíða 24
24 I MENNING MÁNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2006 blaöiö Anna Helgadóttir. Byrjaði að búa til galdradúkkur eftir að hún fékk reikning frá innheimtuþjónustu. Biam/tngó Galdradúkkur til gœfu Anna Helgadóttir, skrifstofustjóri, á sér skemmtilegt áhugamál sem er að búa til galdradúkkur. „Ég fékk hugmyndina að galdra- dúkkunum fyrir nokkrum árum >egar ég fékk sent bréf frá innheimtu- jjónustu vegna reiknings sem ég var búin að greiða,“ segir Anna. „Ég varð reið og pirruð og hugsaði með mér af hverju þeir hefðu ekki sent mér litla voodoo dúkku með bréf- inu sem ég gæti skeytt skapi mínu á. Þarna var hugmyndin komin. Ég seldi hana öðru fyrirtæki sem sendi út litlar voodoo dúkkur sem grín en þegar ég var að búa þær til fannst mér þær svo sætar að mig langaði að eiga eina. Sú dúkka varð tölu- vert öðruvísi en þær sem ég seldi fyrirtækinu, meinlausari í útliti og eiginlega bara nokkuð viðkunn- anleg. Mér datt líka í hug að fyrst það á að vera hægt að galdra fram alls kyns hrylling til handa fólki í gegnum svona dúkku væri bara eði- legt að hægt væri að nota hana til að að galdra fólki gæfu svo ég skrif- aði niður nokkra hluti sem ég óska mér, ást, hamingju, heilsu, heppni, peninga og svo framvegis. Ég bjó til nokkrar í viðbót og gaf í jólagjafir og viðbrögðin urðu slík að ég ákvað að byrja að selja þær.“ Úr hverju eru dúkkurnar? „Ég sauma dúkkurnar úr lérefti og fylli þær með mjúku efni svo það sé auðvelt að stinga í þær. Margir halda að þær séu úr leir og bregður jegar þeir koma við þær og finna að )etta eru alvöru dúkkur. Ég nota vír í hárið og textílmálningu til að mála á þær andlit og þessháttar. Ég byrjaði á að selja það sem ég kalla „klassísku galdradúkkuna“ sem er eins og þessi sem ég bjó til fyrir mig í byrjun, en svo áttaði ég mig á því að það var mikil eftir- Nokkrar af galdradúkkum Önnu. spurn eftir hentugu tæki til að hafa stjórn á karlmönnum svo ég bjó til galdrakarlinn. Ég segi stundum í gríni að hann sé fyrir „bitru konuna” og konur sem vilja smá hjálp til að finna þennan eina rétta. Hann er mjög vinsæll. Mér skilst meira að segja að tvær konur hafi galdrað fram draumaprinsinn með honum. Ég hef reyndar ekki reynt að nota hann sjálf enda einhleyp. Ég ætti kannski að reyna! Ég hef reyndar búið til fleiri tegundir, galdrakerl- ingu, draumaprins og draumaprins- essu og svo hefur verið vinsælt hjá fólki að senda mér póst og biðja um áletrun á þær sem það velur sjálft.“ Hvar er hcegt að kaupa þær? Ég byrjaði að selja þær í gegnum netið á www.anna.is/galdur en svo höfðu nornirnar í Nornabúðinni á Vesturgötunni samband við mig og þær eru að selja dúkkurnar í dag ásamt öðru fallegu galdradóti. Þetta er yndisleg búð og akkúrat rétti stað- urinn fyrir Galdradúkkurnar. Ég mæli sérstaklega með fávitafælunni sem þær eru að selja. Hún virkar! Salan gengur mjög vel en ég reikna nú ekki með því að verða moldrík af þessu strax, ég hef alveg undan að búa dúkkurnar til ennþá þó það fari oft ansi mörg kvöld fyrir framan sjónvarpið í að sauma, mála og snúa vír. Ég veit um allt sem er að gerast í Desperate Housewives þótt ég viti ekki hvernig leikkonurnar líta út. Þegar mest er þá slást börnin mín í lið með mér og við búum til litla framleiðslulínu í stofunni. Það getur oft orðið mjög gaman og út úr því fáum við eitt af því sem ég hef alltaf einn prjóninn festan við á minni dúkku: Hamingju." kolbrun@bladid.net T09SU DOKU talnaþrautir Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Gáta dagsins 5 3 6 1 8 3 1 9 7 5 2 5 8 2 6 9 5 7 9 6 5 5 2 1 3 3 6 2 8 Lausn síðustu gátna 2 3 7 1 9 5 6 8 4 8 5 1 4 2 6 9 3 7 9 4 6 7 8 3 1 2 5 3 6 4 2 5 9 7 1 8 5 1 8 6 4 7 2 9 3 7 9 2 8 3 1 5 4 6 4 8 5 9 7 2 3 6 1 6 2 3 5 1 4 8 7 9 1 7 9 3 6 8 4 5 2 6 4 1 8 2 3 9 7 5 8 5 7 9 4 1 3 2 6 2 3 9 6 5 7 8 4 1 1 7 3 5 8 2 6 9 4 5 8 6 4 3 9 2 1 7 9 2 4 7 1 6 5 8 3 3 6 8 2 7 4 1 5 9 7 9 5 1 6 8 4 3 2 4 1 2 3 9 5 7 6 8 5 2 6 8 9 7 3 4 1 1 9 7 2 4 3 8 6 5 3 4 8 5 6 1 2 7 9 8 5 2 9 1 6 7 3 4 9 6 4 7 3 8 5 1 2 7 3 1 4 2 5 9 8 6 2 8 5 1 7 4 6 9 3 4 7 3 6 5 9 1 2 8 6 1 9 3 8 2 4 5 7 5 '7 9 3 4 6 8 2 1 3 1 2 8 7 9 5 4 6 4 6 8 2 1 5 7 3 9 9 5 6 7 8 4 2 1 3 1 2 7 5 9 3 6 8 4 8 3 4 1 6 2 9 5 7 2 9 5 6 3 1 4 7 8 6 8 1 4 2 7 3 9 5 7 4 3 9 5 8 1 6 2 6 1 4 8 3 2 7 9 5 8 5 7 1 9 6 4 2 3 9 2 3 7 5 4 6 8 1 3 9 5 2 8 7 1 4 6 2 7 1 4 6 5 8 3 9 4 8 6 9 1 3 2 5 7 7 6 8 3 4 9 5 1 2 1 3 2 5 7 8 9 6 4 5 4 9 6 2 1 3 7 8

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.