blaðið - 13.02.2006, Blaðsíða 19
blaðiö MÁNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2006
MATUR I 19
Humarinn
er sívinsœll
Meira lagt í matreiðslu áfiski nú en áður
ir
Bmto/Mmar Hugt
Ottó Magnússon kokkur á Humarhúsinu segir mikilvægt að kenna ungu fólki að borða fisk því að hann er meinhollur.
„Humarinn stendur alltaf fyrir sínu
og þótt ég sé búinn að vinna hér í
átta ár er ég enn ekki búinn að fá
leið á honum“, segir Ottó Magnús-
son kokkur á Humarhúsinu. Eins
og nafnið bendir til sérhæfir Hum-
arhúsið sig i matreiðslu á humri en
býður líka upp á aðra fiskrétti eins
og risotto og fiskisúpu ásamt kjöt-
réttum. Ottó segir alltaf mikið að
gera á Humarhúsinu og að það brey t-
ist ekkert. „Svo virðist sem fólk hafi
meira á milli handanna núna og
geri sér dagamun með því að fara út
að borða. Það er ekki mikið af bak-
pokaútlendingum sem kemur til
okkar en þó er hægt að fá fína fisk-
rétti á góðu verði í hádeginu sem
kosta ekki meira en hamborgari og
meðlæti.
Þegar Humarinn er matreiddur
er hann yfirleitt gratineraður eða
grillaður en það er líka hægt að
hjúpa hann i kryddi eða setja hann
í rúllur og við erum alltaf að prófa
nýjar matreiðsluaðferðir á honum.
Humarhúsið býður upp á rétt sem
kallast fimm sinum humar en þar
eru nokkrar mismunandi eldunar-
aðferðir notaðar á humarinn og út-
koman er ljúffeng og fjölbrey tileg.“
Hráefnið skiptir miklu máli
Ottó segir fiskneyslu Islendinga
hafi breyst mikið og að fagmenn
séu óhræddir að prófa sig áfram
með ýmsar matreiðsluaðferðir hans.
„Það þarf að kenna ungu fólki að
borða fisk en það er einmitt hægt
að gera með góðri matreiðslu á
fiskinum. Humarhúsið býður upp
á fyrsta flokks hráefni og við fáum
nýjan fisk daglega.
I hádeginu er hægt að fá hum-
arsúpu á 1550 krónur og fiskrétti
á 1790 krónur á Humarhúsinu. Á
kvöldin er hægt að fá 300 gömm af
grilluðum humri á 4750 krónur.“
Ottó segir nokkuð um að fólk
hringi í hann til að fá uppskriftir
af fiski og reynir hann að koma til
móts við það. Fólk er farið að vanda
sig meira við að elda fisk og hætt
að mauksjóða hann eins og áður
tíðkaðist.”
Bragðmikil vín með humrinum
„Ég mæli með Clay Station hvítvíni
með Humrinum", segir Brandur Sig-
fússon þjónn á Humarhúsinu. Þetta
vín er með ávaxtabragði (bragð af
aprikósum og perum) og einnig
má finna hunangskeim af víninu.
Clay Station hentar vel með humri
sem er grillaður í smjöri og með
feitum fiski eins og lúðu og skötusel.
Torres Marimar frá Chardonnay
hentar líka vel með humri en það
er bragðmikið og ber keim af bön-
unum, eplum, ananas og eik. Þetta
vín er kryddað og er með löngu eft-
irbragði. Marimar hentar m.a. vel
með humri í rjómasósum en það
fer líka eftir meðlætinu hvaða vín
hentar hverju sinni.“
hugrun@bladid.net
• •
vorur,
íann
...<k) fú
' r að
tum
vísum!
Dalvegi 4 • Sími 564 4700
Opið: Mánud.-föstud. 06:00 - 18:00, laug. 06:00 -17:00, sunn. 07:00-17:00
Hamraborg 14 • Sími 554 4200
Opið: Mánud-laugard. 08:00 -18:00, laug. 08:00-16:00, sunn. 09:00-16:00
Rákat
wwl CdI Wm*
Reydir-'
Bákári
-rI