blaðið - 13.02.2006, Blaðsíða 12
12 I ÁLIT
MÁNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2006 blaðið
blaðið----
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson.
Ritstjóri: Ásgeir Sverrisson.
Fréttastjórar: Aðalbjörn Sigurðsson og Erna Kaaber.
FORGANGSRÖÐUN í
BANDARÍKJUNUM
Bandaríkin eru heimsveldi í hnattrænu stríði gegn hryðjuverka-
ógninni. Það forystuhlutverk, sem Bandaríkjamenn hafa tekið
að sér á þessu sviði krefst mikilla fórna. Og fórnirnar kalla fram
forgangsröðun, sem er vekur furðu í hugum margra Evrópumanna, hið
minnsta.
George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, hefur nú boðað að hann hyggist
leita eftir samþykki þingheims vestra fyrir því að útgjöld til varnarmála
verði hækkuð um 6,9% þannig að þau verði á ári hverju 439,3 milljarðar
dala eða um 27.600 milljarðar króna. Þá hyggst forsetinn auka framlög
til heimavarna um 3,3% þannig að í þann málaflokk renni 33 milljarðar
dala eða um 2.100 milljarðar króna.
Forsetinn ætlar á hinn bóginn að viðhalda áætlunum, sem miða að því
að draga úr fjárlagahallanum í Bandaríkjunum og hyggst því skera niður
útgjöld ríkisins, einkum á sviði heilbrigðismála. Framlög til Medicare-
kerfisins, sem á að tryggja öldruðum, fátækum og fötluðum aðgang að
heilbrigðisþjónustu, verða skorin niður um 35,9 milljarða dala (2.266
milljarða króna) á næstu fimm árum. Einnig er í ráði að minnka útgjöld
til mennta- og dómsmála.
Tölurnar hér að ofan eru að sönnu óskiljanlegar í stjarnfræðilegum mik-
illeika sínum. I hugum marga Evrópumanna, hið minnsta, er það hins
vegar forgangsröðunin, sem mesta athygli vekur. Hernaðarítök Banda-
ríkjamanna eru vissulega hnattræn og margir eru þeir, sem fagna því
forystuhlutverki, er þeir hafa tekið að sér í baráttunni gegn hryðjuverka-
ógninni. En fullyrða má að hvergi í Evrópu myndu stjórnvöld geta leyft
sér að íhuga að auka framlög til hermála og skera á sama tíma niður út-
gjöld til heilbrigðisþjónustu fötluðum, öldruðum og fátækum til handa.
Fjárlagafrumvarp forsetans, sem fer nú fyrir þingheim, er því fallið til
að leiða mönnum fyrir sjónir þá sérstöðu, sem Bandaríkin njóta nú um
stundir á alþjóðavettvangi. Jafnframt er það til sannindamerkis um
hversu gjörólík öll nálgun Evrópumanna og hægri manna í Bandaríkj-
unum er iðulega þegar um forgangsröðun stjórnvalda ræðir. Síðast en
ekki síst er fjárlagafrumvarpið til marks um að “hnattræna stríðið gegn
hryðjuverkaógninni”, sem Bush forseti lýsti yfir eftir árásina á Banda-
ríkin árið 2001, er tekið að reyna verulega á ríkisfjármálin þar eð stjórn-
völd glíma einnig við gífurlegan fjárlagahalla.
Víst er að margir þingmenn, og það á einnig við um flokksbræður Bush,
munu trauðla geta fellt sig við frumvarpið og áherslur forsetans. Mikill
fjöldi þingmanna mun leita eftir endurkjöri í nóvember og ólíklegt má
því telja að frumvarpið hljóti staðfestingu óbreytt.
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur.
Aðalsími: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711.
Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is.
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur.
..ÍSLAND fi » VHTOA
FjÁRMÁLfl)VIÍí>STÖE)
HtiMSrfilS, uPPD(SrNGS
oG yÁTFKNiSM'FÉLfá.
Niðurrifsstefna
Borgarstjórn hefur heimilað niður-
rif á 24 húsum við Laugaveg og 8
húsa á baklóðum við Laugaveg bíða
sömu örlög. Þannig falla alls 37 hús
við Laugaveg vestan Snorrabrautar
af um sjötíu húsum sem reist voru
fyrir 1918, undir niðurrifsáform
R-listans. Því er ljóst að meirihluti
gamalla húsa við Laugaveg á að víkja.
Þessu hefur F-listinn í borgarstjórn
einn flokka mótmælt harðlega og
varar við því að götumynd miðborg-
arinnar sé í stórhættu og að á henni
verði unninn óbætanlegur skaði.
Austurbæjarbíói forðað
Austurbæjarbíó er vissulega miklu
yngra en húsin við Laugaveg, rúm-
lega hálfrar aldar gamalt, en hefur
í gegnum tíðina ýmist gegnt hlut-
verki kvikmyndahúss, tónleikahúss
eða ráðstefnu- og fundastaðar. Bygg-
ingin var reist af stórhug á sínum
tíma og telst til sögulegra menn-
ingarminja borgarinnar enda varð-
veitir hún merkan þátt íslenskrar
menningarsögu. Byggingin er lítið
breytt frá upprunalegri mynd og í
góðu ásigkomulagi. Hún er einkenn-
andi fyrir tíðaranda fúnkis-stílsins
og hluti heildstæðrar götumyndar
Snorrabrautarinnar og gatnanna í
kring.
Sumarið 2003 hafði borgarstjórn
lýst skýrum vilja til að heimila nið-
urrif hússins og hugðist reisa 5 hæða
fjölbýlishús þar sem Austurbæjar-
bíó stendur. Þá lagði borgarfulltrúi
F-listans, Ólafur F. Magnússon
fram tillögu, þar sem lýst var and-
stöðu við hugmyndir um niðurrif
Austurbæjarbíós og lögð áhersla á
varðveislu hússins í samræmi við
menningarsögulegt gildi þess. Jafn-
framt var lagt til að Reykjavíkurþorg
yrði falið að stuðla að áframhald-
andi starfsemi í húsinu sem tryggði
varðveislu þess. Rétt er að ítreka að
andstaða við niðurrif hússins innan
borgarstjórnar kom eingöngu frá F-
listanum. Um sama leyti bárust svo
ályktanir frá ýmsum velunnurum
hússins, m.a. Bandalagi íslenskra
Margrét Sverrisdóttir
listamanna og Arkitektafélagi ís-
lands. Loks fór það svo að borgar-
stjórn lét undan þessum þrýstingi
og hvarf frá fyrirætlunum sínum
um niðurrif Austurbæjarbíós.
Heilsuverndarstöðinni fórnað
Síðastliðið vor ákváðu borgaryfir-
völd svo að selja Heilsuverndarstöð-
ina við Barónsstíg á almennum
markaði. Á Heilsuverndarstöðinni
var ýmsum greinum forvarna og
heilsugæslu sinnt, auk ungbarna-
og mæðraverndar. Stofnunin var
afar mikilvæg miðstöð heilsugæslu
í borginni. Nú hefur Heilsuvernd-
arstöðin verið seld á almennum
markaði og fyrirsjáanlegt að starf-
semin tvístrist og er ljóst að það
veikir heilsugæsluna í borginni. Að
mati F-listans var það skylda borg-
aryfirvalda, sem meirihlutaeiganda
Heilsuverndarstöðvarinnar að selja
hana ekki nema að tryggt væri að
það heilsugæslu- og heilsuverndar-
starf sem hún var reist til að hýsa,
yrði þar áfram. Við lögðum fram til-
lögur þar að lútandi og F-listinn var
eina stjórnmálaaflið í borgarstjórn
sem lagðist eindregið gegn sölu
Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur.
Stöndum vörð um Laugaveginn
Ábyrg framganga F-listans varðandi
varðveislu eldri bygginga í borginni
hefur vakið jákvæða athygli. Sömu
rök eru nú notuð gegn gömlu hús-
unum við Laugaveg og voru notuð
gegn Bernhöftstorfunni á sínum
tíma, þ.e.a.s. að þetta séu illa farin
og niðurnídd hús. Sem betur fer
tóku menn sig til og endurbættu
og lagfærðu Torfuna í stað þess að
rífa hana umhugsunarlaust. Fyrir
vikið erum við Islendingar ríkari
þjóð en ella í menningarlegum
skilningi. Því sem hefur einu sinni
verið fargað verður ekki bjargað.
Borgarbúar sem láta sér annt um
menningarsögu borgarinnar þurfa
að slá skjaldborg um gömlu húsin
við Laugaveg og styðja F-listann til
áhrifa í borginni svo að bjarga megi
elstu byggðinni við Laugaveg frá
þeim örlögum sem R- og D-listi ætla
þeim.
Höfundur er varaborgarfulltrúi
F-listans íReykjavík.
Klippt & skoríð
kUpptogskorid@vbl.is
Ogmundur Jón-
asson, þing-
maður Vinstri
grænna, gerir álstefnu
Framsóknarflokksins og
ríkisstjórnarinnar að um-
talsefni í pistli á vefsíðu
sinni. Segir hann frá umræðum á alþingi og
kveður það hafa vakið athygii sína að Geir H.
Haarde, formaðurSjálfstæðisflokksins, hafði
opinberaði ýmsa fyrirvara við álstefnuna. ðg-
mundur segir: „En síðan er hitt, að Geir hafði
mikla fyrirvara í máli sínu. Reyndar svo mikla
að jaðraði við afneitun á stefnu þeirra Hall-
dórs Ásgrímssonar og Valgerðar Sverris-
dóttur. Auðvitað á að halda áfram að álvæða,
sagði Geir en bætti svo við: Þá og því aðeins...
Fyrirvararnir ætluðu aldrei enda að taka...
Þá og því aðeins, var margendurtekið, með
skírskotun til efnahagslegra þátta, umhverfis
og annarra þátta sem Framsóknarflokkurinn
blæs á. Ég furðaði mig á því að fjölmiðlar
skyldu ekki hafa gert fyrirvara formanns Sjálf-
stæðisflokksins að þungamiðju fréttarinnar.
Fyrirvarar Geirs H. Haarde við stóriðjustefnuna
voru að mínu mati hið fréttnæma við utandag-
skrárumræðuna á Alþingi í dag."
Pað vekur athygli
þegar vefsíður
stjórnmálamanna
eru skoðaðar hversu mis-
duglegir þeir eru að tjá sig
um mál líðandi stundar
og opinbera pólitíska afstööu sfna. Athygli
vekur einnig hversu margir yngri þingmenn
á alþingi kjósa einfaldlega
að leiða þessa tækni og
möguleika hennar hjá sér.
Einhver hefði kannski haldið
að hinum yngri væri tamara
að nýta sér hana. Ágúst
Ólafur Ágústsson heldur
úti vefsíðu og hið sama gera þau Katrín Júlí-
usdóttir, Dagný Jónsdóttir, og Björgvin G.
Sigurðsson. Ungir sjálfstæðismenn hafa hins
vegar Iftinn áhuga á þessum miðli. Þeir Guð-
laugur Þór Þórðarson, Birgir Ármanns-
son, Sigurður Kári Kristjánsson reka enga
útgáfustarfsemi á Netinu og það gerir fram-
sóknarmaðurinn kornungi Birkir J. Jónsson
ekki heldur. Sennilega eru fundirnir með kjós-
endum (kjördæmunu svo stffir að enginn tími
gefst til að halda uppi umræðu á Netinu.