blaðið - 13.02.2006, Blaðsíða 14

blaðið - 13.02.2006, Blaðsíða 14
MÁNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2006 blaöiö 14 I MATUR Sushi er sælgæti fyrir augu og munn Sushi aðdáendur fagna nú allir sem einn því í Reykjavík hefur opnað nýr og skemmtilegur sushi staður í Iðuhúsinu í Lœkjargötu. Staðurinn heitir Ósushi og að baki honum standa eigendur Humarhússins. Síðan staðurinn opnaði þann 2 desember 2005 hefur alltaf verið mikið að gera á Ósushi. Líka í hádeginu, en hér má sjá gesti gæða sér á sushi við færibandið góða. Diskarnir eru verðmerktir með lítum og þegar máltíð líkur fer maður með diskastaflann sinn og gerir upp. t 99.......................................... „Bragðlaukarnir fara afstað þegar maður sér sushi bitann, það er þá einskonar forleikur, en svo setur maður hann ímunninn og þá uppfyllist draumurinn" RETTUR DAGSINS fiskur eða kjöt alla virka daga komdu og smakkaðu! opið virka daga 10.00-19.00 laugardaga 10.00-18.00 CAFÉADESSO 2. hæð í Smáralind v/Vetrargarðinn sunnudaga 11.30-18.00 sími 544 2332 www.adesso.is Pví er svipað farið með sushi og ólívur og gráðaost. Ef maður kemst einu sinni upp á lagið með að borða þennan fræga japanska skyndirétt, þá verður ekki aftur snúið. Fyrir utan það að vera undursamlega gött, er sushi líka fádæma fallegur matur sem skemmtilegt er að borða og nú er það orðið enn skemmtilegra þar sem Ósushi er ekki veitingastaður samkvæmt því sem maður á að venjast: Diskarnir koma til gestanna eftir svörtu færibandi og svo stjórnar hver og einn því sjálfur hversu mikið hann borðar og borgar. Fallegt á færibandi Fyrirkomulagið á Ósushi er mjög skemmtilegt. Sérhver sushi biti er settur á disk og diskurinn er síðan verð -og litamerktur. Þetta þýðir að gulir diskar kosta 350 kr, hvítir 100 kr os.frv. Þegar máltíðinni er lokið tekur maður diskastaflann sinn og gerir upp við þjóninn. Þetta er hentugt fyrirkomulag að mörgu leyti. Með þessu er hægt að ráða hvort maður fær sér bara lítinn bita eða borðar sig saddann og borgar eftir því, en á sama tíma verður þörfin fyrir borðþjónustu minni og þannig sparast líka tíminn sem fer í að „bíða eftir sósunni á meðan maturinn kólnar", ástand sem stundum skapast þegar mikið álag er á þjónum veitingahúsa. Hvernig smakkast þetta svo? Blaðamaður, sem er vel sigldur og mikill sushi aðdáandi, fullyrðir að sushið á Ósushi sé það besta sem hann hefur smakkað hér á landi. Ástæðan fyrir því er eflaust sú að það et ferskt en ekki búið til um morgunninn og síðan sett inn í kæli. Sushi á alltaf að vera ferskt og það má aldrei kæla grjónin niður, en því miður hefur þetta oftar en ekki verið vaninn með sushi staði hérlendis. Fjölbreytni færibandsins var góð en best er þó eflaust að gefa sér góðan tíma á staðnum til að vera viss um að fá að bragða á bestu bitunum. Staðurinn hefur gengið vel síðan hann opnaði annan desember 2005 og eigandinn Kristján Þorsteinsson er hæstánægður með þær góðu viðtökur sem hann hefur fengið. Kristján er alvanur veitingahúsa- rekstri, en hann er einn af fjórum eigendum Humarhússins sem hefur staðið við Bernhöftstorfu undanfarin ellefu ár. „Það hafði verið draumur minn í fimm eða sex ár að opna færibanda sushi stað,“ segir Kristján í samtali við Blaðið. “Ég kynntist þessu upphaflega i Ástralíu en þar eru svona staðir mjög vinsælir og margir. Ósushi á sér enga fyrirmynd annarsstaðar frá. Nafnið kom frá mér og mér fannst það bæði hljóma íslenskt og alþjóðlegt í senn. Svo hannaði ég staðinn líka sjálfur í samvinnu við Guðrúnu Atladóttur arkitekt. Við lögðum mikið upp úr því að hreinlætið væri alltaf í fyrirrúmi og til að undirstrika þetta notuðum við mikið svart granít og gler, en það eru mjög ákjósanleg efni því það sést auðveldlega á því.“ Hvaðfinnst þér skipta mestu máli í sambandi viðframreiðslu sushi? „Hreinleiki er númer eitt, tvö og þrjú sem og það að notast alltaf við topp hráefni. Svo er mjög mikilvægt að það sé vel gert, fallegt og höfði til fagurkerans í manni. Maður byrjar nefinlega að borða sushi löngu áður en bitinn fer upp í munn. Bragðlaukarnir fara af stað þegar maður sér sushi bitann, það er þá einskonar forleikur, en svo setur maður hann í munninn og þá uppfyllist draumurinn," segir „sushimaðurinn" Kristján Þorsteinsson að lokum. margret@bladid.net Lækjargötu hádeginu

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.