blaðið - 22.02.2006, Síða 6
6 I IWWLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006 blaöiö
ALLIR AFANGASTAÐIR I EVROPU
FLUG
Ferðarimabil 20. apríl-30. júní (síðasta heimkoma)
+ Bókaðu á www.icelandair.is
lCELANDAIR
www.icelandair.is
Fallnn fjársjóður!
Þjóðminjasafn íslands á Safnanótt
Föstudaginn 24. febrúar kl. 19 - 24
Kl. 20.00 og 22.30
Leikrænn upplestur úr skemmtilegum og sérstæðum
svörum úr þjóðháttadeild.
Opnunartími:
Alla daga nema
mánudagakl. 11-17
www.thjodminjasafn.is
Suðurgötu 41
101 Reykjavík
Sími: 530 2200
P
Þ)ÓÐMIN)ASAFN tSLANDS
National Museum of íceland
Pólska algeng í
grunnskólum
Alls voru 44.336 nemendur í
grunnskólum á Islandi síðast-
liðið haust samkvæmt samantekt
Hagstofunnar sem birt var í gær.
Nemendum fækkaði um 175 milli
ára og gerir Hagstofan ráð fyrir því
að þeim haldi áfram að fækka næstu
árin. Það skýrist fyrst og fremst af
því að þeir árgangar sem eru að
hefja grunnskólanám eru fámenn-
ari en þeir sem eru að ljúka námi.
Þá voru 1.594 börn í grunnskólum
landsins með annað móðurmál
en íslensku. Pólska er algengasta
erlenda móðurmálið og hefur verið
svo frá haustinu 2002. Árin þar á
undan var það enska sem nú skipar
annað sætið. Þá koma Norðurlanda-
mál og svo loks filippseysk mál.
Fjölmennasti grunnskóli
landsins er Árbæjarskóli í
Reykjavík með 799 nemendur
en fámennastur er Grunnskóli
Mjóafjarðar með 3 nemendur.
Margir hafa sýnt
Ölgeröinni áhuga
Eigendur Ölgerðarinnar og
heildsölunnar Danól hafa
ákveðið að selja bæði fyrirtækin
og allar eigur þeirra. Áætlað er
að sölumeðferðin taki um sex
vikur en um 200 manns starfa
hjá fyrirtækjunum tveimur.
Fimm innlendir aðilar og tveir
erlendir hafa sýnt fyrirtækj-
unum áhuga.
Starfsmenn órólegir
Ölgerðin og Danól eru í eigu fyr-
irtækisins Daníels Ólafssonar ehf.
en samkvæmt tilkynningu frá eig-
endum þess er áætlað að söluferlið
taki um sex vikur. Félögin verða
seld saman eða hvort í sínu lagi af
því gefnu að ásættanlegt kauptil-
boð berist.
Danól er eitt stærsta heildsölu-
fyrirtæki landsins og meðal vöru-
merkja þess eru meðal annars
Merrild, Nestlé, Nescafé og Qua-
lity Street. Um 60 manns vinna
hjá fyrirtækinu en það hefur verið
í eigu sömu fjölskyldunnar frá
því það var stofnað árið 1932. Hjá
Ólgerðinni vinna um 120 manns
en fyrirtækið er eitt þekktasta iðn-
fyrirtæki landsins með nær 600
vörunúmer.
Einar Friðrik Kristinsson hefur
verið framkvæmdastjóri Danól
í 42 ár en hann er einnig eigandi
fyrirtækisins. Hann segir góðar að-
stæður á markaði veraástæðuþess
Leggst gegn breytingum á
árlegri endurnýjun ökuskírteina
Upplýsingafulltrúa Umferðarstofu líst illa á hugmyndir þess efnis að gildistími ökuskír-
teina fólks yfir áttrœðu verði lengdur, en þingmaður hefur lagt fram fyrirspurn þess efnis.
að fyrirtækin eru nú sett á sölu.
„Við byrjuðum að skoða mögulega
sölu í fyrra. Um fimm innlendir
aðilar sýndu strax áhuga og einnig
tveir eríendir aðilar."
Einar segir starfsmenn fýrirtækj-
anna eðlilega vera órólega enda
feli breytingar af þessu tagi alltaf
í sér einhverja óvissuþætti. „Starfs-
menn eru ekki sérstaklega ham-
ingjusamir þessa stundina. Það er
alltaf órói þegar svona kemur upp
en ég á ekíci von á öðru en að það
muni lagast."
BMiö/lngó
Ölgerðin er einn stærsti innflutningsað-
ili landsins á léttvínum.
Jón Gunnarsson, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, hefur lagt fram fyr-
irspurn til dómsmálaráðherra þar
sem hann spyr hvort til greina komi
að ökumenn eldri en 80 ára sem séu
við góða heilsu þurfi að endurnýja
ökuskírteini sín á tveggja ára fresti,
en ekki árlega eins og nú er.
Einari Magnúsi Magnússyni, upp-
lýsingafulltrúa Umferðarstofu, líst
illa á þessar hugmyndir þingmanns-
ins. Hann telur að frekar ætti að
huga að því að herða eftirlit með
heilsufari ökumanna frá því sem nú
er.
Frekar ástæða til þess
að herða eftirlit
„Við teljum fulla ástæðu til þess að
frekar sé hert á eftirliti með heilsu-
fari ökumanna almennt,“ segir
Einar. Hann telur meiri hættu á því,
ekki síst á meðal fólks í þeim ald-
urshópi sem um ræðir, að heilsan
bresti. Því sé ástæða til þess að
fylgjast enn betur með heilsufari
þessara ökumanna. Einar bendir á
að þessi skoðun hans sé ekkert
einsdæmi heldur sé þetta ^
almennt skoðun þeirra /a
sem starfa að umferð- /
aröryggismálum í /A
heiminum í dag.
Heilsa fólks mun / J
betri í dag j j,
Reglugerðin
hljómaráþann
veg að gildis-
tími ökuskír-
teina minnkar
þegar fólk
kemst á efri ár.
Þeir sem eru \T
80 ára og eldri V1
þurfa í öllum til- \ _
fellum að sækja
um ökuskírteini
á hverju ári „með \
tilheyrandi kostnaði
og fyrirhöfn,“ segir þing-
maðurinn Jón Gunnarsson. \
Hann segir því ekki saman að
jafna hvernig 80 ára einstaklingar
séu til heilsunnar í dag og hvernig
heilsa sama hóps var fyrir nokkrum
áratugum. Jón vill því athuga hvort
vilji sé hjá ráðherra að tvöfalda
þennan gildistíma hjá þeim sem eru
í „fullu fjöri", eins og hann orðar
það, þannig að hann verði sá sami
og hjá þeim sem eru á aldrinum 72-
80 ára.
Fólk yfir áttræðu þarf að endurnýja öku-
skírteini sitt á hverju ári.
Tvö ár of skammur tími?
Einnig telur Jón að því
megi velta fyrir sér
hvort tvö ár séu ekki of
skammur tími fyrir 72
ára einstakling. „Þeir
eldri borgarar sem
hafa rætt þessi mál
við mig telja sumir
aðþettaséniðurlægj-
andi að þurfa að end-
urnýja skírteinið
með þetta skömmu
millibili.“ Jón ítrekar
að það sé ekki verið
að tala um að fólk sem
eigi við heilsufarsvanda-
mál að stríða og getur
ekki vegna heilsu stjórnað
ökutæki haldi sínu skírteini
þetta lengi, heldur eigi þetta
við um heilsuhraust fólk. „Það
eru ráð í reglugerðinni sem geta
tekið sérstaklega á þeim tilfellum."
Bílakaup Baugsmanna
brotin til mergjar í gær
Jón Gerald Sullenberger bar vitni
fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær-
morgun, en þar fór fram aðalmeðferð
Baugsmálsins. Sakborningarnir og
feðginin Jóhannes Jónsson í Bónus
og Kristín Jóhannesdóttir voru við-
stödd réttarhaldið ogleyndist engum
að afar köldu andaði milli Jóhannesar
og Jóns Geralds þó svo engin orð féllu
milli þeirra.
Það voru fyrst og fremst meint
tollasvik Baugsmanna, sem voru
til umfjöllunar í dómsal í gær, en
Jón Gerald keypti á sínum tima 6-7
glæsibíla fyrir forsvarsmenn Baugs
og skyldulið á Flórída og telur ákæru-
valdið að hann hafi að fyrirmælum
þeirra útbúið lægri reikninga en rétt
var til þess að greiða lægri innflutn-
ingsgjöld en ella.
Þau Jóhannes Jónsson, Jón Ásgeir
Jóhannesson og Kristín Jóhannes-
dóttir eru ákærð fyrir að gefa rangar
upplýsingar á aðflutningsskýrslum
vegna fjögurra bíla og leggja fram
tilhæfulausa vörureikninga sem Jón
Gerald útbjó að ósk þeirra.
Jón Gerald sagði við vitnaleiðsl-
urnar að hann hefði upphaflega
ekki leitt hugann sérstaklega að því
hvernig hann var beðinn að haga
reikningshaldi sínu vegna bílanna,
en síðar hafi hann áttað sig á því að
með þessu væri verið að brjóta tolla-
lög og misnota almenningshlutafélag.
„Ég áttaði mig á því að það þurfti að
stöðva þessa menn,“ sagði Jón Gerald.
Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar, spurði hvort honum
hafi ekki þótt neitt skrýtið við þessa
tilhögun. „Jú, það var margt skrýtið,
sem þessir menn báðu mig um.“
Aflamark í
loðnu aukið
Sjávarútvegsráðherra hefúr
aukið aflamark í loðnu um 20
þúsund lestir samkvæmt frétt
frá Fiskistofú. Eftir aukning-
una verður heildaraflamark
íslenskra skipa í loðnu á þessu
veiðitímabili 193.972 lestir.
Loðnuvertíðin hefur gengið afar
illa í ár og hefur aðeins náðst
að landa rúmlega 90 þúsund
tonnum af heildarkvóta.
Ekki bestir
í fiski
Neytendastofa hefur gert Nóa-
túni ehf. að greiða 500 þúsund
króna stjórnvaldssekt fyrir að
nota fúllyrðinguna „bestir í
fiski“ í auglýsingum sínum.
Auglýsingar fyrirtækisins með
þessari fullyrðingu voru birtar
margoff í fslenskum fjölmiðlum,
fyrst undir lok síðasta árs. Hafði
Neytendastofa ítrekað óskað
effir því að Nóatún upplýsti
stofnunina um þau gögn sem
fullyrðingin byggði á, fymt með
bréfi til fyrirtækisins 19. des-
ember 2005. Nóatún varð hins
vegar aldrei við þeirri beiðni
og var því dæmt til greiðslu
áðurnefndrar stjórnvaldssektar.
Jón Gerald Sullenberger kemur úr dómstól í gær, en fyrir innan sjást verjendur ráðgast við
dómara. Þar á bak við hefur verið komið fyrir sérstökum skjalaskáp undir málsskjölin öll.