blaðið - 22.02.2006, Blaðsíða 22

blaðið - 22.02.2006, Blaðsíða 22
26 I KVIKMYWDIR MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006 blaöiö / / /" I BIO ÁLfABAKKA r&saa. %. CASANOVA KL 3:45-5:45-8-10:20 CASANOVA VIP 10.5:45-8-10:20 smfinn^Bíó UNDERWORLD kl. 5.45,8 og 10.20 B.L 16 Ara ZATHURA m/istensku tafi kl. 3.40 og 5.50 auoÁRA ZATHURA m/ensku taii I 'ol ‘•ÚO tyBingar kl. 5.45 og 8 bi.ioAra WALKTHE UNE kl. 5,8 og 10.45 B.1.12ARA WALKTHE UNEÍLÚXUS kl. 5,8og10.45BJ. 12ÁRA FUN WITH DICK AND JANE kl. 3.40,8 og 10.10 BROKEBACK MOUNTAIN kl. 10.15 b.i. 12 Ara CHEAPER BYTED0ZEN2 kl. 3.45 REGÍIBOGinn TRANSAMERICA kl. 5.45,8 og 10.15 aL 16ÁRA MRS. HENDERSON kl. 5.45,8 og 10.15 WAU( THE UNE kl.6og9 b.i. 12ÁRA BROKEBACK MOUNTAIN kl. 6og9 B112ÁRA FINAL DESTINATION 3 Kl. 6,8og10RI.16ÁRA GOOD NIGHT, AND GOOD LUCK k1.6,8og10 ZATHURA m/ístensku taU kl. 6B.I10ÁRA FUN WITH DICK AND JANE W.8 MEMOIRS OF GEISHA W.10 hiurífi"rli/n\ UNDERWORLD W.8og 10B.L16ÁRA ZATHURA W.6 B.I.10ÁRA FINAL DESTINATION W. 8og 10B116ÁRA WALKTHEUNE W. 5.40B112ÁRA Spennandi plötur á árinu Árið 2006 stefnir í að verða gjöfult í tónlistarútgáfu. Fyrir utan alla nýju tónlistarmenn- ina sem við vitum ekki um og eiga eftir að koma okkur í opna skjöldu, eins og til dœmis Wolf Parade gerði ífyrra, munu gamlir meistarar skjóta upp kollinum með nýjar plötur. Blaðið leit áfimm væntanlegar plötur sem spennandi verður að heyra á árinu. Tríóið Yeah Yeah Yeahs frá New York gefur út plötuna Show Your Bones þann 28. mars næstkomandi. Sveitin lofar rafmagnaðri plötu og segja á heimasíðu sinni að Show Your Bones sé það sem gerist þegar maður stingur putta í innstungu - hvað sem það þýðir. Hljómsveitin var hluti af „New York bylgjunni“ sem tröllreið tónlist- arbransanum fyrir nokkrum árum þegar sveitir á borð við Interpol og The Strokes stigu fram á sjónar- sviðið. Forvitnilegt verður að heyra hvort þau nái að standast væntingar sem eru orðnar ansi háar þar sem þrjú ár eru liðin frá þeirra fyrstu breiðskifu, Fever to Tell. Morrissey samkvæmur sjálfur sér Breski tónlistarmaðurinn Morrissey, sem söng með The Smiths um árið, gefur út plötuna Ringleader of the Tormentors þann 3. april í ár. Platan fylgir eftir hinni frábæru You Are The Quarry sem kom út árið 2004 og hlaut mikið lof gagnrýnenda. Mor- rissey hefur lofað þéttari og rokkað- ari plötu í þetta skiptið en sú síðasta þótti poppuð og frekar ljúf. Morrissey verður samkvæmur sjálfum sér á Ringleader of the Tor- mentors og syngur um ástina og dauðann á sinn angurværa hátt. Platan var tekin upp í Róm og visar hann í borgina í nokkrum lögum á plötunni og fékk meira að segja með sér ítalskan barnakór í fjölmörg lög. Undirritaður hefur aldrei misst sig yfir hljómsveitinni Metallica. 1 þessari grein er þó meiningin að benda á spennandi plötur á árinu sem nýja plata taugaveikluðu þunga- rokkaranna einmitt er. Hljómsveitin hefur fengið í lið með sér upptöku- stjórann Rick Rubin sem tók upp Morrissey tímamótaplötur á borð við Reign in Blood með Slayer, Blood Sugar Sex Magik með Red Hot Chili Peppers og fyrstu plötu System of a Down sem var samnefnd hljómsveitinni. Ekki er komið nafn á plötuna en ljóst er að ef hún verður eins slök og seinni hluti ferils Metallica er sveitin gjörsamlega búin að vera og ætti að henda í „Best-of“ plötu og lokatónleikaferðalag á stundinni. ísland líka með Hljómsveitin Reykjavík! hefur unnið hörðum höndum að sinni fyrstu breiðskífu undanfarin misseri og ætti platan að koma út einhvern tím- ann á næstu mánuðum. Sveitin er þekktust fyrir villta sviðsframkomu sem endar yfirleitt með blóðugu einvígi Bóasar, söngv- ara, og Hauks, gítarleikara. Einvígið endar yfirleitt með sigri Hauks enda hann vopnaður gítar. Sveitin sendi frá sér lagið 7 9 13 fyrir nokkrum mánuðum og lagið gefur góð fyrirheit fyrir komandi plötu sem ekki hefur hlotið nafn. Okkar Arctic Monkeys Það er ekki hægt að leggja í upptaln- ingu eins og þessa og sleppa því að tala um spútnik hljómsveit landsins. Strákarnir í Jakobínarína ætla að senda frá sér sína fyrstu breiðskífu í sumar samkvæmt heimildum Blaðs- ins en sjaldan hefur fyrstu plötu íslenskrar hljómsveitar verið beðið með jafn mikilli eftirvæntingu. Þeir eru okkar Arctic Monkeys, eini munurinn er að Jakobínarína eru ekta. Tónleikar með sveitinni eru alltaf skemmtileg upplifun og er skoðun undirritaðs að Sigurður trommari sveitarinnar ætti að vera í forgrunni við hlið Gunnars söngvara. Þetta eru aðeins fimm af ótrúlega mörgum spennandi plötum sem koma út á árinu. Hljómsveitirnar Tool, Slayer, Muse og Keane hafa einnig lofað plötu. Þá gefur Placebo út plötuna Meds í mars og gamli karlinn Ian Brown, Ástralarnir í The Vines og ofurgrúppan Audio- slave láta ekki sitt eftir liggja Hkt og íslensku sveitirnar Mammút og Mínus sem báðar vinna nú hörðum höndum í hljóðveri. Jakobfnarína BlaM/Frikki atli@bladid.net Depecheá Thorvaldsen I tilefni 25 ára afmælis fyrstu breiðskífu Depeche Mode verður haldin hátíð tileinkuð hljómsveitinni í Bertelsstofu á Thorvaldsen bar í kvöld klukkan 21.00-01.00. Sýnt verður frá tónleikum sveitar- innar á risaskjá og aðdáendum sveitarinnar gefst tækifæri á að hittast og spjalla. Tilboð verða á barnum og frítt inn. Bond á nýjum bil Besti leyniþjónustumaður heims, James Bond 007, mun aka um á nýrri gerð Aston Martin í næstu mynd sinni, Casino Royale. ÖÚum smáatriðum um nýja bílinn er haldið leyndum en þó hefiir fengist staðfest að hann mun heita Aston Martin DBS. Hinn sígildi Aston Martin DB5 mun einnig sjást i Bond mynd í fyrsta skipti i langan tíma. Dallas til Flórída Fyrirhuguð kvikmynd eftir hinni lífsseigu sápuóperu Dallas verður hugsanlega kvikmynduð í Flórída, ráðamönnum í Texas til mikillar gremju en þar gerast þættirnir. John Travolta, Brad Pitt, Matthew McConaughey og Catherine Zeta-Jones eru meðal þeirra sem orðuð hafa verið við hlutverk í stórmyndinni um Ewing-fjölskylduna. Ástæðan fyrir því að Flórída er ofar á óskalista framleiðendanna er fjárhagsleg, það er ódýrara að mynda þar en í Texas. SÆKTU LAGIÐ! Suds and Soda með dEUS Þótt þú kannist ekkert við dEUS þá þekkir þú þetta lag. Stórgott og sígilt rokklag, kröft- ugt og melódískt í senn. Fullkomin leið til að búa sig undir tónleika sveitarinnar í apríl. Blaólð treystir þvíaó lesendur sínir kunni íkil ó lögum um höfundarrétt. Sýnt á NASA viö Austurvöll Föstudagur 24. febrúar- Úrté sæti laus Laugardagur 25. febrúar - Örfá sæti laus Föstudagur 3. mars - Örfá sæú laus Föstudagur 10. mars- Laussæti Föstudagur 17. mars- i.aussæti Miðasala í sfma 575 1550, verslunum Skífunnar og www.midi.is Rokk-Belgar á Nasa Belgíska rokksveitin dEUS heldur tónleika í Reykjavík þann 6. apríl næstkomandi á Nasa við Austurvöll. Tónleikarnir eru liður í tónleikaferð sveitarinnar sem farin er kjölfarið á útgáfu fjórðu breiðskífu dEUS, Poc- ket Revolution og er það Hr. Örlygur sem stendur fyrir tónleikunum. For- sala aðgöngumiða hefst á morgun og er verðið 2.500 krónur auk 200 króna miðagjalds. Miðasala fer fram í verslunum Skífunnar og á midi.is. Frumkvöðlar dEUS var stofnuð í Antwerpen í Belgíu árið 1991. Eftir að hafa gefið út nokkrar smáskífur og EP plötur í heimalandi sínu fékk dEUS samn- ing hjá Island Records - og varð þar með fyrsta belgiska indi bandið til að fá samning hjá alþjóðlegri plötu- útgáfu. Fyrsta smáskífulag sveitar- innar hjá Island, Suds and Soda, fór sem hvirfilbylur um útvarpsstöðvar Evrópu og háskólastöðvar vestan- hafs. Ferskur jazz/þjóðlagaskotinn pönk-popp hljómur sveitarinnar vakti þegar athygli og gagnrýn- endur kepptust við að lofa fyrstu breiðskífu sveitarinnar, Worst Case Scenario, sem fylgdi í kjölfarið á vin- sældum lagsins. Vasabyltingin í lok síðasta árs snéri þessi frumlega sveit aftur með miklum látum og breiðskífunni Pocket Revolution. Fyrsta smáskífulag plötunnar, 7 Days, 7 Weeks, náði þegar miklum vinsældum á rokkstöðvum í Evrópu og Bandaríkjunum og komst m.a. hátt á vinsældarlistum hérlendis. Næsta smáskífa, What We Talk About (When We Talk About Love), er væntanleg 6. mars. Hvaðerað gerast? Blaðið vill endilega fjalla um atburði Ifðandi stundar. Sendu okkur llnu á gerast@bladid.net.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.