blaðið - 22.02.2006, Blaðsíða 16

blaðið - 22.02.2006, Blaðsíða 16
20 I HEIMILI MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006 blaöiö Draumastaður til að dreyma á Með smávœgilegum breytingum oglitlum tilkostnaði má umbreyta svefnherberginu oggera það að heimilislegum oghuggulegum stað. Svefnherbergið er mikilvægt og sumir myndu segja að það væri mikilvægasta herbergið á hverju heimili. Ekki einungis eyðir mannskepnan um þriðjungi ævi sinnar sofandi heldur er svefnher- bergið það herbergi sem helst þarf að vera notalegt útlits og þægilegt. Það þarf ekkert endilega að vera dýrt að breyta til í svefnherberg- inu heldur þarf oft nokkrar litlar breytingar sem gera svefnher- bergið þitt að draumastað til að dreyma á. • Notaðu efni eins og silki, flís og mjúka ull til að gera herbergið hlýtt og vinalegt. Góð flísteppi koma sér vel í rúmið þegar fer að kólna auk þess sem gott er að kúra með þau. • Ef þú ert með flísar eða parket á gólfum þá getur verið nota- legt að hafa hlýtt og gott teppi við rúmið. Hægt er að gera svefnherbergi sérstaklega heillandi með birt- unni einni saman. Hafðu fal- lega vegglampa og borðlampa í svefnherberginu. Þú getur sett gula peru í lampastæðin og með því færðu gyllta fallega birtu. Auk þess er sérstaklega fallegt ef þú getur stjórnað lýs- ingunni í herberginu og með því lagt áherslu á sumt en dregið úr áherslunni á annað. Svo má náttúrlega ekki gleyma blessuðum kertunum en með því að setja mörg kerti á bakka og hafa við rúmstokkinn skapast einkar skemmtileg og hugguleg stemning. Stórir og fallegir speglar eru orðnir töluvert ódýrari en þeir Elsta steinsteypta hús Kópavogs til sölu Fjöldi samtaka í líknar- og menningarmálum hefur lýstyfir áhuga sínum á að nýta Kópavogshœlið Beint á móti Arnarnesinu við Kópa- voginn stendur fallegt hús teiknað af Guðjóni Samúelssyni. Bygginu þessa húss var lokið 1926 og síðan þá hefur verið rekin þar margvísleg starfsemi en síðan 1985 hefur húsið staðið autt. „Upphaflega var þetta holdsveikra- spítali en svo var barnaspítali Hrings- ins með starfsemi í húsinu,“ segir Gunnar I. Birgisson, bæjarstóri í Kópavogi. Eru komin tilboð íKópavogshœlið? ,Nei en það er búið að ákveða að setja það á sölu. í fyrsta lagi er lögð áhersla á að láta gera húsið upp í upprunalegri mynd og við erum að láta Benjamín Magnússon, arkitekt, vinna að þeirri lýsingu.“ Þess má geta að Benjamín á einnig heiðurinn af teikningu Gerð- arsafns, Digraneskirkju, Menntaskól- ans í Kópavogi og Hamraborgarinnar svo eitthvað sé nefnt. Gunnar segir að Kópavogshæli verði ekki rifið og að farið verði yfir þá sem gera tilboð í húsið og hvað þeir hyggist gera við það. „I fram- haldinu verður tekin ákvörðun í bæj- arráði um það hver fái að kaupa það. Fjöldi samtaka í líknar- og menning- armálum hafa haft samband við mig og önnur yfirvöld í Kópavogi og lýst yfir áhuga á að nýta húsið. Ég er mjög ánægður með þann mikla áhuga sem hugsanlegir kaupendur hafa sýnt hús- inu. Við höfum mikinn metnað fyrir því að húsið verði sem næst uppruna- legri mynd og verði glæsilegur minn- isvarði um elsta steinsteypta hús í Kópavogi og arkitektúr Guðjóns Samúelssonar." Ágreiningur í bæjarstjórn vegna sölunnar Samfylkingin í Kópavogi lagðist gegn afgreiðslu málsins þar sem engin frekari gögn hafi legið frammi önnur en tillaga bæjarlögmanns um söluna sem bæjarráð fól honum að vinna. Samfylkingin gerir athugasemd við að ekkert verðmætamat liggi fyrir og engar hugmyndir um hvað gera skuli við húsið. „Ágreiningur okkar og minnihlutans snýst um að við viljum leyfa einkaframtakinu að reyna fyrir sér en þeir vilja eins og venjulega láta hið opinbera gera alla hluti,“ segir Gunnar bæjarstjóri. Þess má geta að hlutar úr mynd- inni Sódóma Reykjavík voru teknir upp á Kópavogshæli. Það þarf ekkert endilega að vera dýrt að breyta til í svefnherberginu heldur þarf oft aðeins nokkrar litlar breytingar sem gera svefnherbergið þitt að draumastað til að dreyma á. voru og því er tiltölulega lít- ill kostnaður fólginn í því að koma sér upp fallegum spegli. Spegillinn endurspeglar birtu og skapar gott andrúmsloft. Ef 99....................... Spegillinn endurspeglar birtu og skapar gott andrúmsloft. Efsvefn- herbergið erlítið þá hefur spegill á réttum stað þau áhrifað her- bergið virðist stærra. svefnherbergið er lítið þá hefur spegill á réttum stað þau áhrif að herbergið virðist stærra. Kauptu alls kyns fallega púða sem passa inn í herbergið. Settu þá á rúmið en þá er sem herbergið bjóði hvern sem er velkominn. Hafðu púðana mismunandi að stærð og gerð. Þetta er fallegt en þetta er líka þægilegt enda púðar sérstak- lega heimilislegir. Ef þú vilt breyta svefnherberg- inu heilmikið án þess að kosta miklu til þá má mála það upp á nýtt. Rauðir og gylltir tónar eru álitnir hlýir en bláir og grænir litir eru róandi og afslappandi. Litur getur gert heilmikið fyrir herbergi en passaðu þig á að hafa litinn ekki of æpandi. • Umkringdu þig hlutum sem þér þykir vænt um. Hafðu fjölskyldumyndir til staðar, listaverk barnanna og svo fram- vegis. Svo má finna kertastjaka og koma þeim á hillur og borð auk þess sem bækur eru mjög heimilislegar. svanhvit@bladid. net Gluggaþvottur er hluti af viðhaldi eignar Margir líta á þrif á gluggum sem leiðindaverk sem má alveg sleppa enda er þetta nú bara smá drulla. Staðreyndin er sú að með því að þrífa glugga reglulega er líka verið að viðhalda húsinu enda minnka þrifin líkur á að skipta þurfi um gler snemma. Baldur Sigurðsson hjá Vönum mönnum ehf., eða Glugga-Baldur eins og hann er kallaður, leggur mikla áherslu á að nauðsynlegt sé að þrífa glugga reglulega, svo ekki sé minnst á álklæðningar sem eyðileggjast fljótt séu þær ekki þrifnar. Þrátt fyrir að gluggaþvottur sé mjög mikilvægur fyrir viðhald eignar segir Baldur að það sé ekki mjög stór markaður fyrir gluggaþvott á íslandi. „Það er einhvern veginn þannig að menn vilja ekki láta þvo gluggana því það þarf að þvo þá svo fljótt aftur. Margir vilja því frekar hafa gluggana drulluga eða þrífa 99........................ Salt virkar þannig að þegarþað þornar þá verður það að litlum kristölium. Þetta er fullt aflitlum stækkun- arglerjum og þegar sól skín í gegnum stækk- unargler þá myndast brennipunktur og það koma því göt í álið. Staðreyndin er sú aö meö því að þrífa glugga reglulega er líka verið að viðhalda gluggunum enda minnka þrifin líkur á að sklpta þurfi um gler snemma. þá sjálfir því það sér fram á mikinn kostnað. Það eru einna helst stofn- anir og fyrirtæki sem láta þrífa glugg- ana reglulega. Einnig er algengt að húsfélög láti þrífa fjölbýlishúsin. Ein- staklingar láta frekar þrífa gluggana við hátíðlegri tækifæri eins og ferm- ingar eða þess háttar en auðvitað er til fólk sem hringir reglulega til að láta þrífa hjá sér. En það er ekki mikið um það.“ Þrífa glugga þrisvar á ári Baldur segir að oft verði meira úr verkinu heldur en bara gluggaþrif. „Ég þríf glugga að innan og utan og miklu meira en það því þessu fylgja náttúrlega miklu meiri þrif. Til dæmis þegar verktakar eru að byggja þá förum við inn og þrífum aílt. Þetta vindur alltaf upp á sig. Ég er mjög sveigjanlegur að taka annað en giuggaþvott að mér og hef aldrei hafnað verki,“ segir Baldur og hlær. „Ég myndi segja að það þyrfti að þrífa glugga þrisvar á ári, ef þeir eiga að vera þokkalega hreinir megnið af ár- inu. Þá er miðað við apríl, ágúst og nóvember." Kasta krónu en spara aurinn Baldur leggur áherslu á að glugga- þvottur sé hluti af viðhaldi hús- eignar. „Það kemur vitanlega kísill og steinefni á glerið og ef gluggarnir eru þrifnir reglulega þá kemur minna af kísil og glerið endist lengur. En þeir sem þrífa ekki geta lent í því að þurfa að skipta um gler eftir einhvern tíma og það er miklu dýrara en að þrífa annars lagið. Þeir hafa því kastað krónunni en sparað aurinn. Til að mynda er mjög nauð- synlegt að þrífa álklæðningar á húsi á hverju vori en við gerum það líka. Salt virkar þannig að þegar það þornar þá verður það að litlum krist- öllum. Þetta er fullt af litlum stækk- unarglerjum og þegar sól skín í gegnum stækkunargler þá myndast brennipunktur og það koma því göt í álið. Það þarf að skola álhúsin en ef það er ekki gert getur kostað tugi milljóna að skipta um ál. Þrifnaður hefur því mikið að segja.“ svanhvit@bladid. net

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.