blaðið - 22.02.2006, Blaðsíða 12
12 I ÝMISLEGT
MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006 blaöiö
Sonur Ladda er líka fyndinn
Þórhallur Þórhallsson fetar í fótspor föður stns oger tekinn til við að skemmta landanum.
ALLIR AFANGASTAÐIR I EVROPU
FLUG
Ferðatímabil 20. apríl-30. júní (síðasta heimkoma)
Bókaðu á www.icelandair.is
ÍCELANDAIR
www.icelandair.is
Um miðjan febrúar fór fram uppi-
stand á Nasa þar sem fram komu
nokkrir skemmtikraftar. Einn
þeirra lék á alls oddi og var með
áberandi öðruvísi grín en hinir.
Hann gantaðist með orð og slettist
um sviðið eins og liðamótalaus
dúkka.
Það kom skemmtilega á óvart að
þessi ungi maður skyldi vera sonur
okkar ástsæla grínista, Ladda.
Margrét Hugrún Gústavsdóttir tók
þennan framtíðargrínista tali í
Iðuhúsinu við Lækjargötu.
Þórhallur ætlaði sér aldrei að feta
í fótspor föður síns eins og algengt
er með unga menn, en á endanum
komst hann ekki hjá því að eigin sögn.
Grínið knúði að dyrum.
Fyrsta uppistand hans var árið
2003 á árshátið vöruflutningamið-
stöðvarinnar Flytjanda þar sem hann
starfaði um skeið.
„Ég var plataður út í þetta og það
gekk bara nokkuð vel þarna á árshá-
tíðinni, en ég fór samt ekkert að spá
meira í þetta fyrr en fyrir svona einu
til einu og hálfu ári,“ segir Þórhallur
og hallar sér fram á borðið. „Þá byrj-
aði ég að skemmta aðeins á árshá-
tíðum og í menntaskólum og svona.
Fyrir ekki svo löngu hafði síðan
samband við mig maður sem heitir
Eyvindur Karlsson, umsjónarmaður
vefsins uppistand.net, en hann var
að leita að fólki sem vildi koma sér á
framfæri með uppistandi. Ég sló til og
tróð upp á þessu kvöldi á NASA og er
mjög ánægður að hafa fengið það tæki-
færi. Þetta var mjög gaman. Sá sem
skipulagði kvöldið hafði bara séð við-
tal við mig og ákvað að taka „sénsinn"
án þess að hafa séð mig skemmta"
Vildi ekki feta í fótspor föður síns
Þú segist ekki hafa átt þér æsku-
drauma um að verða grínisti eins og
pabbi þinn?
„Nei, það voru allir að spyrja mig að
þessu þegar fólk frétti hver væri faðir
minn, hvort ég ætlaði mér nú ekki
að verða grínisti eins og hann, og ég
ætlaði mér vissulega aldrei að fara út í
þetta en svo réði ég bara ekki við mig.
Gat ekki hamið mig. Þetta er bara eitt-
hvað sem maður verður að gera.“
Afhverju vildirðu ekki verða eins og
hann?
„Ég veit það eiginlega ekki. Það var
ekki af því að ég skammaðist mín
fyrir hann eða þætti þetta eitthvað
asnalegt. Ég bara fann ekki þessa þörf
til þess að koma fram og grínast. Að
minnsta kosti ekki fyrir framan ein-
hvern fjölda af fólki. Ég hafði samt
alltaf verið með einhver skrípalæti í
kringum vinnufélaga og fjölskyldu.“
Hvernig var að alast upp með hinum
landsfræga Ladda?
„Það var náttúrlega svolitið skrítið
stundum, en ég þekki samt ekkert
annað. Þetta gat verið voða fínt þegar
strákarnir voru að metast um hvaða
pabbi væri flottastur. Þeir sögðu
kannski að þeirra pabbar væru sterk-
ari en minn, en ég gat komið með það
á móti að pabbi minn gæti gert grín
að pabba þeirra. Það er miklu sterk-
ara. Ég gat líka hótað því að pabbi
myndi gera grín að þeim ef þeir gerðu
mér eitthvað."
Nú ert þú af annari „grínkynslóð“ en
pabbi þinn. Hann gaf út frábærar
plötur eins og Hlunkur er þetta og
fleiri góðar, enfólk grínast samt vissu-
lega öðruvísi í dag en áður og finnst
aðrir hlutir fyndnir. Hvað telur þú
að hafi mótað kímnigáfu þína efsvo
mætti að orði komast?
„Pabbi hefur vissulega haft mikil
áhrif á mig þar sem ég ólst upp í
kringum hann og hans grín. Það varð
bara partur af mínu lifi og hlýtur þá
að hafa haft einhver áhrif hvort sem
ég vildi það eða ekki. Ég held að grín
hafi kannski ekki breyst það mikið í
megindráttum þó að manni finnist ef-
laust eitthvað fyndið í dag sem hefði
ekki þótt það fyrir einhverjum árum.
Ég horfði alltaf á Fóstbræður þegar
ég var yngri, svo horfi ég á Svínasúp-
una og Strákana og finnst þeir mjög
skemmtilegir. Mér finnst Óskar Jónas-
sonmjöggóður.
Það er bara þannig að það sem er
fyndið er bara fyndið, sama hversu
gamalt það er.“
Þórhallur Þórhallsson er 22 ára en segist vita aö hann líti út fyrir að vera miklu eldri.
Hamingjusamlega þunglyndur
Eru ekki til margirflokkar afgríni?
„Jú, það er svartur húmor, kald-
hæðnishúmor, þunglyndis-
húmor... hann er mikið í
tísku núna í grínheimum.
Þunglyndi og svartsýni.
Ég er samt ekki mikið
fyrir þunglyndis-
húmor. Ég er frekar
hamingjusamlega
mnglyndur. Tek
junglyndinu með
opnum örmum
og er vinur þess,“
segir Þórhallur og
brosir.
„Fólk getur líka
endalaust velt sér
upp úr samskiptum
kynjanna. Muninum
á körlum og konum.
Það væri ágætt ef einhver
kæmi með nýjan vinkil en
þetta virðist alltaf ganga út á
það sama. Að konur kunni ekki
að bakka og karlar séu alltaf eins og
asnar. Geti ekki gert nema eitt í einu
og skilji ekki neitt.“
Hvernig finnst þér íslenskur húmor
verafrábrugðinn öðrum?
„Mér finnst hann oft vera svolítið
svartur og þunglyndislegur. Við
lifum jú allan þennan tíma í myrkri
og þá eru allir þunglyndir og í vondu
skapi. Mér finnst þetta skina svolítið
ígegn."
Nú er stundum talað um að grínistar
séu þunglyndir, en efþeir erufarnir að
geragrín að því líka...?
„Það er náttúrlega alltaf talað um
trúðinn með tárið og ég held að það sé
mikið til í því. Flestir þessara ffægu
grínista áttu einhverja ömurlega
æsku og erfitt líf að baki. Kannski er
grínið þeirra aðferð að sigrast á erfið-
leikum. Reyndar átti ég samt ekkert
erfiða æsku þannig að það er ekki
mín afsökun. Jú, kannski... Pabbi
sagði alltaf við mig að hann væri fífl
og fengi borgað fyrir það en ég væri
bara fffl. Nú er minn tími kominn
til að afsanna þetta og vinna mér inn
peninga með því að grínast.“
Kann ekki að syngja
Áttu þér einhverjar fyrirmyndir aðrar
en pabba þinn?
„Já, Monty Python. Það grín er mér
að skapi. Ég hef séð Holy Grail marg-
oft. Þetta er yndislegt rugl. Svona súrt
grín finnst mér mjög gott. Mér finnst
Jim Carrey líka alveg frábær. Hann
er svo góður í þessu líkamlega gríni.
Það er að segja í að nota llkama sinn
til að grínast með. Mörgum finnst
hann reyndar ofleika en málið er að
hann ofleikur vel og það er ekki á
allra valdi.“
Rúsinur í bleyti!
Þú spyrð kannski af hverju?
Það er góð ástæða fyrir því. Það er eins með
rúsínur í vatni eins og suma sem liggja í dásam-
legu baðkari.Þær verða mun sætari og mýkri.
Náttúrulega sætan úr rúsínunum kemur fram á
yfirborðið og verða þær það sætar að ekki er
nauðsynlegt að nota sykur eða önnur sætuefni til
að sæta með. Rúsínurnar eru tilbúnar eftir 8 tiM 2
klst í vatni og geymast í ca 1 viku í kæli, þannig að
þú getur notað þær eftir þörfum.
Hvernig notar þú þær?
Jú, settu þær í salatið t.d. í gulrótarsalatið, eða
notaðu þær sem sætuna í salsasósuna,t.d.súr-
sæta Salsa. Þær eru frábærar í ávaxtasalat
- setjið fullt af ferskum ávöxtum í skál, vanilluduft,
kanelduft, rúslnurnar og svo með þeyttan rjóma
eða soyarjóma. Þær eru einnig kjörnar til að nota
sem snakk með hnetum og möndlum. Ekki henda
vatninu af þeim. Það er líka orðið sætt og kjörið að
nota sem auka sætuefni í bakstur og því um Ifkt.
1 hluti rúsfnur helst lífrænar
2-3 hlutarvatn
Leggið rúsfnurnar í bleyti í vatn í glerkrukku með
loki og geymið í kæli.Munið að nota hreina skeið
þegar þið veiðið rúsínurnar upp úr krukkunni.
BlaÖiO/Steinar Hugi
Hefur þig einhvern tímann langað í
leiklistarskólann?
Já, ég var að spá í að sækja um
en hætti við þegar ég frétti
að maður þyrfti að syngja.
Ég er ömurlegur söngv-
ari. Get ekki sungið
fyrir mitt litla líf. Svo
var ég að frétta að
maður þarf að hafa
stúdentspróf og ég
er ekki einu sinni
með það. Pabbi
fór reyndar aldrei
f nám, fyrir utan
eina önn í UCLA
í Kaliforníu. Mér
skilst að hann hafi
bara langað til að
prófa. Kannski fer
ég einhvern tímann
í margmiðlun eða eitt-
hvað f þeim dúr.“
Langar að vera með
„sketsa" í sjónvarpinu
Talið berst að hinum fjölmörgu
karakterum sem Laddi hefur leikið
{gegnum tíðina. Karakterar sem oft
urðu svo raunverulegir að þeir öðluð-
ustsjálfstættlíflíktogSilvíaNótthefur
gert meðgóðum árangri.
„Pabbi bara fór í þessi gervi og svo
varð hann sú persóna sem hann var
að leika. Hann bara varð Eiríkur
Fjalar og skildi sjálfan sig eftir ein-
hvers staðar. Ég man að bróðir minn
þurfti einhvern tímann að verja Eirík
fyrir mömmu vinar síns. Hún var að
tala um hvað þessi Eiríkur væri leið-
inlegur og þreytandi og þá útskýrði
bróðir minn það fyrir henni að þetta
væri pabbi f gervi. Þetta er svipað
með Silvíu. Flestir vita nú að það er
leikkona á bak við þetta en allir tala
samt um Silvíu eins og manneskju.
Nú er fólk að tala um hvað kærast-
inn hennar sé leiðinlegur við hana
og að hún ætti nú bara að hætta með
honum!“
Þú ert ekki sjálfur búinn að setja þig í
hlutverk?
Nei, ég er að hugsa um að prófa að
vera aðeins öðruvísi til að byrja með.
Mig langar voðalega mikið til þess að
gera sjónvarpsþætti sem eru Syggðir
upp á svokölluðum „sketsum". Það er
minn draumur. Ég er þegar búinn að
skrifa fullt af efni og gæti þess vegna
byrjað bara strax, mig vantar bara
mannskapinn og miðilinn.“
Ertu í einhverrifastri vinnufyrir utan
grínið?
„Nei, tæpast. Ég er reyndar með út-
varpsþátt á Kiss FM á laugardögum
og uppistand þess á milli en ég stefni
að því fullum fetum að verða launað
fffl," segir Þórhallur að lokum.