blaðið - 09.03.2006, Blaðsíða 2

blaðið - 09.03.2006, Blaðsíða 2
2 I INNLENDAR FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 9. MARS 2006 blaðiö blaðid== Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur Sími: 510 3700 • www.vbl.is FRÉTTASÍMI: 510 3799 netfang: frettir@ bladid.net AUGLÝSINGADEILD: 510 3744 netfang: auglysingar@bladid.net Góð afkoma hjá íslandspósti Rekstrarhagnaður Islandspósts á síðasta ári nam um 237 milljónum króna eftir skatta samkvæmt ársuppgjöri félagsins sem birt var í gær. Heildartekjur íslandspósts á síðasta ári námu tæpum 5 millj- örðum króna og jukust um 400 milljónir á milli ára. Þá var eigið fé í árslok um 2,3 milljarður. Afkoma félagsins er nokkuð framar þeim væntingum sem gerðar höfðu verið og skýrist góð rekstrarafkoma einkum af hagnaði af reglulegri starfsemi. Þá hefur fjárhagsleg staða félagsins batnað til mikilla muna á undanförnum árum og greiddi félagið um 250 milljón króna arð til ríkissjóðs á síðasta ári. Bakarar mótmæla Hækkun á raforkuverði mun óhjákvæmilega skila sér í hærra mat- vöruverði að mati Landssambands bakarameistara (LB).Á aðalfundi sambandsins i gær mótmæltu bakarar harðlega þeirri miklu hækkun sem hefur orðið á raforku- verði til bakaría frá því ný orkulög tóku gildi um síðustu áramót. I yfirlýsingu sem LB sendi frá sér í gær kemur fram að eftir að ný raforkulög tóku gildi hefur rafmagnsverð til bakaría hækkað um allt að 50%. Að mati bakara- meistara er óhjákvæmilegt að þessi hækkun skili sér í hærra vöruverði sem er í fullu ósamræmi við vilja stjórnvalda til að lækka matarverð. Hvetja þeir orkusala til að koma til móts við óskir bakara um að leita leiða til að lækka orkuverð. A „Neikvæðar skýrslur geta haft slæm langtímaáhrif' / nýútkominni skýrslu alþjóðlegs verðbréfafyrirtœkis eru íslenskir bankar taldir vera við- kvœmir fyrir áföllum áfjármálamörkuðum. Gengi krónunnar féll um tœp 4% ígœr. Stöðugt fleiri neikvæðar skýrslur um íslenskt hagkerfi geta haft slæm áhrif til langs tíma, að mati Tryggva Þórs Herbertssonar, prófessors í hagfræði. í nýrri skýrslu greiningardeildar alþjóðlega verðbréfafyrirtækisins Merrill Lynch segir að íslenskir bankar taki of mikla áhættu í fjár- festingum sínum. Orvalsvísitalan féll um rúm 3% í gær í kjölfar skýrsl- unnar og þá veiktist krónan um tæp 4%. Hlutabréf féllu Skýrsla greiningardeildar Merrill Lynch um islensku viðskiptabank- ana var birt á þriðjudag en fyrirtækið er eitt stærsta verðbréfafyrirtæki heims. Að mati skýrsluhöfunda ríkir óvissa um það hvort íslenskt hagkerfi muni lenda mjúklega þegar þenslutímabilinu lýkur. Þá efast þeir um getu íslenskra banka til að standa af sér áföll m.a. vegna þess hversu Tryggvi Þór Herbertsson. mikið af skuldum þeirra séu í formi skammtímalána. I skýrslunni eru íslenskir bankar taldir taka of mikla áhættuífjár- festingum sínum og séu að því leyti líkari bönkum í ný- markaðslöndum heldur en bönkum í Evrópu sem einkennast af meiri stöðugleika og minni áhættu. Þá telja skýrsluhöfundar að eigna- tengsl íslensku bankanna og stærri fyrirtækja á Islandi sé áhyggjuefni og veiki stoðir fjármálamarkaðarins til lengri tíma. Viðbrögð við skýrslu Lynch létu ekki bíða eftir sér í Kauphöllinni gær en fyrir hádegi hafði úrvalsvísi- talan fallið um rúm 2%. Hlutbréf í viðskiptabönkunum féllu töluvert og hafði krónan veikst um tæp 4% við lokun markaðar í gær. Fyrir rétt rúmum þremur vikum breytti alþjóðlega matsfýrirtækið Fitch Ratings horfum varðandi láns- hæfismat ríkissjóðs og er því skýrsla Lynch önnur neikvæða umsögnin um íslenskt hagkerfi og fjármála- markað á afar stuttum tíma. Ekki sanngjarn samanburður Tryggvi Þór Herbertsson, prófessor í hagfræði við Háskóla íslands, telur að skýrsla Lynch muni ekki hafa skoðanamyndandi áhrif á íslenskan fjármálamarkað en segir að stöðugt fleiri neikvæðar umsagnir geti haft langtímaáhrif. „Ég held að lang- tímaáhrif vegna skýrslu Lynch verði engin. Hitt er aftur á móti annað mál að stöðugt fleiri neikvæðar umsagnir um íslenska fjármálamarkað getur haft slæm áhrif til langs tíma.“ Þá segir Tryggvi ekki sanngjarnt að bera saman íslenska og evrópska viðskiptabanka. Hér á landi séu við- skiptabankar einnig í mikilli fjár- festingastarfsemi sem tíðkast ekki erlendis og það þýði oftast meiri áhættu. „Það er oft verið að bera ís- lensku bankana saman við eitthvað sem er ekki sanngjarnt að bera þá saman við. íslenskir bankar búa við mjög góða áhættustýringu. Eigið fé þeirra er mikið og þeir geta tekið á sig þó nokkuð mikil áföll.“ Að mati Tryggva eru eignatengsl á íslenskum markaði ekki það mikil að þau veiki hann né skapi hættu á allherjar hruni. Bendir hann á rann- sókn sem Landsbankinn stóð að vegna krosseignatengsla á fjármála- markaði. „Kenningin er sú að stórt fall á hlutabréfamarkaði reki sig i gegnum kerfið og að lokum verði fallið miklu meira. En samkvæmt þessu líkani sem Landsbankinn lét gera yrði það alls ekki mikið.“ íp ti n n n n k~í S s' n ,13 • ** f Mótmæltu styttingu náms til stúdentsprófs Nokkur hundruð framhaldsskólanemar komu saman á Austurvelli í gærmorgun til að mótmæla fyrirhugaðri styttingu náms til stúdentsprófs. Sögðu fulltrúar nemenda að fyr- irhuguð stytting væri „hræðileg aðför að menntakerfinu á fslandi". Það var Hagsmuna- ráð íslenskra framhaldsskólanema sem stóð fyrir mótmælunum. Báru nemendur skilti með slagorðum þar sem breytingunni var mótmælt og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra var hvött til að falla frá áformum sfnum. Amnipníak lak úf Pétri Jóns^ni Flytja þurfti tuttugu manns á spítala þegar ammoníakleka varð vart um borð í íslenska rækjuveiðiskipinu Pétri Jónssyni þar sem það lá við bryggju í St.Johns á Nýfundnalandi. Frá þessu er greint i dagblað- inu „The Telegram“ en atvikið átti sér stað á þriðjudag. I frétt blaðsins segir, að nokkrir hafnarverkamenn sem staddir voru um borð í skipinu hafi fallið í yfirlið og þurfti að flytja tuttugu manns á spítala þar sem þeim var veitt viðeigandi meðferð. Nítján þeirra var leyff að fara heim að rannsókn lokinni, en einn þurfti að dveljast áfram á spítalanum. Hann mun þó ekki hafa verið í lífshættu. Einn viðmælandi blaðsins sagðist aldrei hafa orðið vitni að öðru eins á sinum þrjátíu ára ferli í hafnarvinnu. Ekki kemur fram í frétt blaðsins hvort einhverjir fslendingar hafi verið á meðal þeirra sem kenndu sér meins. Allar Teknos vörur eru framleiddar skv. IS0 9001 gæðastaðli ^TEKNOS mmxm Innimálning Gljástig 3,7,20 y'' Verð frá kr. 298 pr.ltr. y/ Gæða málning á frábæru verði / Útimálning / Viðarvörn •/ Lakkmálning / Þakmálning Gólfmálning Gluggamálning “ÍSLANDS MÁLNING Sætúni 4/Sími 5171500 (3 Heiðskírt (3 Léttskýjaö ^ Skýjað £ Alskýjað ✓ ^ Rigning, lltilsháttar ✓ // Rigning 9 9 Súld ^ Snjókoma * • Slydda ^7 Snjóél Skúr Amsterdam Barcelona Berlín Chicago Frankfurt Hamborg Helsinki Kaupmannahöfn London Madrid Mallorka Montreal New York Orlando Osló París Stokkhólmur Þórshöfn Vín Algarve Dublin Glasgow 06 16 02 13 07 0 -08 0 09 15 16 -05 04 12 -05 10 -06 06 02 14 08 07 "© * 4° ✓ / * ^2° *© Veðurhorfur í dag kl: 15.00 Veðursíminn 902 0600 Byggt ó upplýsingum frá Veðurstofu íslands * •V Á morgun *í

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.