blaðið - 09.03.2006, Blaðsíða 18

blaðið - 09.03.2006, Blaðsíða 18
18 I VIÐTÁL FIMMTUDAGUR 9. MARS 2006 blaðiö Hvernig upplifðir þú Vestmannaeyjagosið? „Ég var rétt að verða níu ára og atburðurinn er greiptur inn í minn- inguna eins og hann hefði gerst í gær. Á þeim tíma sá ég þetta eins og ævintýri. Ég var vakinn upp um miðja nótt og sagt að gos væri hafið. Við bjuggum ekki nema einn og hálfan kílómetra frá sprungunni og ég bar út blöð á bæina sem fóru undirhraunið. í morgunsárið sigldi ég til Reykjavíkur í fiskibát ásamt hópi annarra manna og kvenna sem sum hver ældu eins og múkkar á leiðinni í land. Ég flutti ásamt foreldrum mínum og öðrum ættingjum í kommúnu hjá afa mínum sem átti íbúð í Reykjavík. Við vorum þarna tíu í 140 fermetrum, bjuggum við þröngan húsakost í heilan vetur og þurftum virkilega að láta okkur lynda og styðja hvert við annað. Það var reynsla sem ég hefði ekki viljað vera án.“ Lærdómur í tapi Þú varst á sínum tíma í liðinu sem sigraði á B-heimsmeistara- mótinu í Frakklandi og síðar fyr- irliði liðsins um tíma. Hvernig til- finning er að sigra á slíku móti? „Það er óskaplega góð tilfinning. Með sigri er mönnum skyndilega umbunað fyrir erfiði sitt og þeir átta sig á því að allt streðið var raun- verulega þess virði. Það er vissu- lega gefandi að stunda íþróttir án þess að sigra nokkrum sinnum á stórmóti. En slíkur sigur er sérstök og dramatísk upplifun." Skortir íslenska íþrótttamenn almennt úthald, við vinnum kannski eitt mót og síðan gerist ekkert meir árum saman? „Ég held að það sé tölfræðin sem vinnur á móti okkur fremur en út- haldið. Þjóð sem ætlar sér að eiga iþróttamenn í fremstu röð þarf að byggja á breiðum grunni þar sem ríkir stöðugleiki. Þetta er eins og með fiskistofnana í sjónum. Það koma upp góðir árgangar og síðan árgangar sem eru ekki góðir. Ef það eru nógu margir í góðum árgangi geta þeir náð árangri á heimsmæli- kvarða. Svo eldast árgangarnir og þá er spurning hversu langt er í næsta góða árgang.“ Þú fórst þrisvar á Ólympíuleika sem hlýtur að vera dýrmœt minning. „Hver og einn ungur íþrótta- maður elur með sér þann draum að komast á Ólympíuleika. Þrisvar sinnum upplifði ég þann draum, í Los Angeles 1984, Seul 1988 og Barc- elona 1992. Allir þessir leikar höfðu sinn sjarma. Maður sá stórstjörnur eins og Edwin Moss, Carl Lewis og Steffi Graf. Ég á góðar minningar frá þessum tíma en maður verður að gæta sín á því að gleyma sér ekki í minningunum. En ég var verulega heppinn að upplifa þetta.“ Blaliö/Steinar Hugi Ég reyni að taka mig ekki of hátíðlega og mér leiðist að sjá fólk setja sig í stellingar gagnvart umhverfinu. Hvort sem menn bera titilinn forstjóri eða ekki þá eru þeir einstaklingar sem sinna ákveðnu starfi og hafa sína kosti og galla." Jakob Sigurðsson var á árum áður þekktur handboltakappi, fyrirliði Vals og leikmaður með íslenska landsliðinu um ára- bil og í hópnum sem sigraði á B-heimsmeistaramótinu í París 1989. Hann sneri sér síðan að við- skiptum og er nú forstjóri Alfesca, sem áður hét SÍF. Fyrirtækið framleiðir matvæli sem eru að stærstum hluta tilbúin til neyslu, eins og lax, andaafurðir, rækju og smurrétti. Framleiðslan fer fram í Bretlandi, Frakklandi og á Spáni þar sem eru tólf verk- smiðjur. 3400 manns vinna hjá fyrirtækinu sem veltir 600 millj- ónum evra. Jakob hefur búið erlendis i 13 ár ásamt konu sinni ogþremur börnum, síðustu árin í Þýskalandi. Hann ólst upp í Vestmannaeyjum. Heldurðuaðþaðséréttsemstundum ersagtað Vestmannaeyingar skeri sigfrá öðrum íslendingum? „Vestmannaeyingar myndu aldrei halda öðru fram en að þeir væru sérstök þjóð. Þetta er kraftmikið og lífsglatt fólk sem hefur alist upp í tengslum við náttúruna og mótast af því. Þannig ólst ég upp ásamt fé- lögum mínum. Við vorum sjálfala, lékum okkur úti, höfðum nægt rými og fórum inn þegar við urðum þyrstir og svangir." Stundum er sagt að aðalatriðið sé ekki að vinna keppni heldur að taka þátt. En erþetta rétt, er ekki aðalat- riðið að vinna? „Ef menn vildu ekki vinna þá væru þeir ekki að þessu. Hins vegar dregur maður oft mesta lærdóminn af því að tapa. í þessu sambandi er ágæt regla að stefna að því að vinna en geta tekið tapi og vera um leið viss um að maður hafi gert sitt besta til að ná árangri. Ef menn eru lausir við hugsunina: „Ef ég hefði nú lagt mig betur fram...“ þá geta þeir verið sáttir. Þeir lögðu þeir sig fram og gátu ekki gert betur. Þessi regla á við í viðskiptum jafnt og íþróttum. Þar verða menn Hka að Þjóðarstolt er hollt

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.