blaðið - 09.03.2006, Blaðsíða 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 9. MARS 2006 MaAÍð
Berlusconi
veitir fátækum
heilræði
Silvio Berlusconi, forsaetisráð-
herra Ítalíu hefur komið auga á
lausn fátækra ítala: vinna meira
og og afla meiri tekna.
Forsætisráðherrann var spurður
að því í sjónvarpsviðtali í vikunni
hvort að ríkisstjórn hans hygðist
koma til móts við þá ítali sem eru
með minna en íoo þúsund krónur
á mánuði í tekjur. Ekki stóð á svari
Berlusconis, sem er ríkasti maður
Italíu, en hann sagði að svar ríkis-
stjórnarinnar væri að hvetja hina fá-
tæku til þess að leggja harðar að sér
í lífsbaráttunni. 1 framhaldi af því
lýsti Berlusconi því hvernig hann
hefði efnast með því að taka að sér
öll þau störf sem buðust og hvatti
aðra að fara að fordæmi sínu.
Þingkosningar verða á Ítalíu í
apríl. Vinsældir forsætisráðherrans
eru á niðurleið og er það meðal ann-
ars rakið til efnahagssamdráttar í
landinu. Skoðanakannanir sýna að
bandalag miðju- og vinstri flokka
undir forystu Romano Prodi muni
sigra í kosningunum.
Finnar aldrei óánægðari
en nú með ESB-aðild
MBL.IS | Finnar hafa aldrei verið
eins ósáttir og nú með aðild sína að
Evrópusambandinu, ef marka má
nýja skoðanakönnun. Finnar gengu
í sambandið árið 1995 en nú vill
einn af hverjum fjórum Finnum
segja sig úr því. 1.200 voru spurðir
um afstöðu þeirra til ESB á tímabil-
inu 29. nóvember til 25. janúar. 31%
sagði afstöðuna neikvæða en fyrir
ári voru 23% óánægð.
Niðurstöður nýjustu könnunar-
innar leiða í Ijós, að 70% Finna eru
ósáttir við fjárframlög landsins
til ESB og finnst þau of há miðað
við hvað landið fær á móti. Álíka
mörgum finnst Finnar ekki nógu at-
kvæðamiklir í sambandinu. Fannst
nánast öllum þátttakendum stærstu
ríkin ráða of miklu og að eiginhags-
munastefna aðildarríkjanna réði
ferð og lítið færi fyrir lýðræðinu.
Þá sögðu 44% að þeir hefðu orðið
fyrir vonbrigðum með evruna og
kenna upptöku hennar árið 2002
um verðhækkanir í landinu, en 39%
sögðust ánægðir með gjaldmiðils-
skiptin. Finnar taka við formennsku
íESB þanm.júli nk.
Fundir og ráðstefnur
á Hótel Örk
Nýtið daginn vel, í ró og næði!
7 funda- og ráðstefnusalir
Einungis 45 km frá miðbæ Reykjavíkur
Tveir nýjir fundarsalir, Stjórnargerði
og Ráðagerði, voru teknir í notkun
1. október 2005
Þráðlaust netsamband og fullkominn
tækjabúnaður í öllum fundasölum
Úrvals veitingaþjónusta
Sundlaug, jarðgufubað og 2 heitir pottar
Leitið tilboða í síma 4834700
eða meetings@hotel-ork.is
Hótel Örk * www.hotel-ork.is * info@hotel-ork.is
Viðbúnaður á Indlandi
aukinn í kjölfar árásar
jl .
dStHffök^T
a* »•31}
Reuters
Indverskir öryggissveitar rannsaka farangur í Srinagar í gær, miðvikudag. Aukinn viðbúnaður er við helgistaði hindúa
Indverskar öryggissveitir voru
ræstar út í gær, miðvikudag, til þess
að gæta helstu helgistaða hindúa á
Indlandi í kjölfar þess að á þriðja
tug manna féllu í þremur sprengju-
árásum í hinni helgu borg, Varan-
asi, á þriðjudag. Mikill viðbúnaður
er í landinu og hefur vegatálmum
og eftirlitsstöðvum verið komið
fyrir víðsvegar um indverska hluta
Kasmír-héraðsins. Indverjar hafa
gegnum tíðina sakað íslamska að-
skilnaðarsinna í Kasmír um árásir á
helgistaði hindúa i landinu.
Árásirnar voru gerðar við upp-
haf einnar helgustu hátíðar hindúa
og skotmörkin voru fjölsótt hof og
járnbrautarstöð borgarinnar. Sextíu
manns liggja særðir á sjúkrahúsi
borgarinnar, þar af 35 alvarlega.
Manmohan Siungh, forsætisráð-
herra Indlands, hefur ásamt leið-
togum fjölda trúarhópa hvatt lands-
menn að sýna stillingu og ekki leita
hefnda.
fslamskir aðskilnaðar-
sinnargrunaðir
Þrátt fyrir að engin hryðjuverkasam-
tök hafi lýst tilræðinu á hendur sér
liggja íslamskir aðskilnaðarsinnar
í Kasmír undir grun. Indverska lög-
reglan lýsti því yfir í gær að hún
hefði fellt tvo meinta hryðjuverka-
menn sem eru grunaðir um tengsl
við hryðjuverkasamtökin Lahker-e-
Taiba sem berjast gegn indverskum
yfirráðum í Kasmír. Annar mað-
urinn, sem var felldur í borginni
Lucknow, er samkvæmt fréttastofu
breska ríkisútvarpsins talinn viðr-
iðinn hryðjuverkaárás í Nýju-Dehlí
í október, en þar létust 60 menn og
210 særðust.
Mikil spenna er á Indlandi vegna
árásanna og er talin hætta á að
spenna magnist upp á milli hindúa
og múslima í kjölfar árásanna. Sann-
ist það að hryðjuverkin séu runnin
undan rifjum aðskilnaðarsinna í
Kasmír er það talið geta leitt til versn-
andi samskipta á milli Indlands og
Pakistans en indversk stjórnvöld
hafa gegnum tíðina gagnrýnt Pakist-
ani fyrir að hafa ekki fullnægjandi
eftirlit með ferðum hryðjuverka-
manna yfir landamæri ríkjanna.
Smáauglýsingar
510-3737
Auglýsingadeild
510-3744
2
1
v # V
Gleraugnaverslun
Reykavíkurvegur 22
220 Hafnarfirði
565-5970
Líklega hlýlegasta
gleraugnaverslunin
norðan Alpafjalla
Þar sem gæðagleraugu kosta minna
w w w . s j o n a r h o l / . i s
blaðiðu