blaðið - 09.03.2006, Blaðsíða 24
FIMMTUDAGUR 9. MARS 2006 blaðið
24 I sfí
Erjur vegna heimiUsþrUa algengar
Flestir sem eru í sambúð kannast við erjur vegna heimilisþrifa enda virðist það vera algengasta vandamálið hjápörum.
ÍL
!
Allir þeir sem hafa einhvern tím-
ann verið í sambúð kannast við
eilífar erjur vegna þrifa. Það er
alltaf einhver sem stendur uppi
óánægður því einstaklingar hafa
oftar en ekki mismunandi þol
gagnvart drasli. Margir telja að
það sé verk konunnar að þrífa en
í nútímasamfélagi vinnur konan
jafnmikið ef ekki meira en karl-
maðurinn þannig að þau rök eru
einskis nýt. Getur verið að rifrildi
vegna þrifa snúist raunverulega
um eitthvað allt annað?
Heimilisverk eru algengasta orsök
rifrilda. Þrátt fyrir að heimilisverk
flokkist undir smáatriði eru sum
pör tilbúin að borga stórfé fyrir ráð-
gjöf til að leysa úr þessu hvimleiða
vandamáli. Hreinlæti, rétt eins og
fegurð, er persónubundið. Hvert og
eitt okkar er alið upp við mismun-
andi skoðanir á því hvað er ásætt-
anlegt og hvað ekki. Ef þú ólst upp
á heimili þar sem var ryksugað og
þurrkað af daglega þá er líklegt að
þú viljir hafa hreint í kringum þig.
Ef þú varst alin/n upp við þá hug-
ðurlandsbraut
'simnet.is • www.coqi
virka daga • Lau: 11-17
Allir þeir sem hafa einhvern tímann verið í sambúð kannast við eilífar erjur vegna þrifa.
mynd að smá drasl væri heimilislegt
þá er þér sama þótt það sé töluvert af
drasli í kringum þig. Það eru engar
gullnar reglur til um hvað mikið af
drasli sé of mikið og því er ekkert
rétt og rangt í því sambandi. En af
hverju höldum við þá svona fast í
okkar skoðanir?
Skömm og viðbjóður
Sem barn var þér kannski sagt ít-
rekað að herbergið þitt væri skítugt
og þú spurð/ur hvernig í ósköpunum
þú gætir búið í þessari svínastíu.
Þess háttar ummælum fylgdu oftar
en ekki skammarlegt augnaráð.
Skömmin er valdamikið vopn sem
foreldrar nota til að fá börn sín til
að halda heimilinu hreinu. Með því
getur hreinlæti orðið að ákveðinni
tegund af siðgæði. Margir eru aldir
upp við þá hugmynd að heimili end-
urspegli persónuleika okkar og við
viljum ekki að fólk álíti að við séum
sóðar eða löt. Það eru þessar tilfinn-
ingar, skömm og viðbjóður, sem ýta
undir rifrildi vegna heimilisþrifa.
Sameiginlegt vandamái
Ást og virðing er nauð-
synleg í sambandi
og stundum verða
heimiliþrifin að orrustu-
velli þar sem slegist
er um þessar þarfir.
•••••••••••••••••••••••••
Venjulega er okkur kennt að heimil-
isþrif sé þjónustustarf sem er jafnvel
niðurlægjandi á einhvern hátt. Enda
horfum við oft upp á að ríkt fólk ráði
Hvernig er best að forðast
erjur vegna heimilisþrifa?
Gefið ykkur tíma til að setjast niður og ræða um hvernig þrifum var
háttað á ykkar bernskuheimili. Ræðið um hvernig það hefur myndað
viðhorf ykkar
Hafið þið jafn mikla þolinmæði fyrir drasli? Ef ekki þá er best að setjast
niður og finna út ákveðin mörk sem þið sættið ykkur bæði við.
Horfið á núverandi aðstæður. Hver er það sem þrífur aðallega? Er skipt-
ingin jöfn? Er skiptingin sanngjörn? Ef ekki þá skuluð þið komast að
samkomulagi um verkaskiptingu sem þið eruð bæði sátt við.
Veltið því fyrir ykkur hvort rifrildi ykkar vegna þrifa gætu raunverulega
verið vegna einhvers annars? Ef svo er reynið að vinna úr því og hver veit
nema önnur rifrildi gufi upp í kjölfarið.
starfsmenn til að þrífa upp eftir sig.
Sumum finnst einfaldast að setja upp
þrifnaðarstundaskrá til að koma í
veg fyrir rifrildi vegna heimilisþrifa.
Þegar hægt er að setjast niður í róleg-
heitunum og skipuleggja þau verk
sem þarf að gera þá er vandamálið
horfið. Því miður gerist það of oft
að stundaskráin er skrifuð af einum
aðila og hinum aðilanum er þröngv-
að til að fylgja henni eftir. Ef þú vilt
að stundaskráin virki þá verður hún
að vera samin í samvinnu við aðra á
heimilinu.
Flótti frá raunverulegu vandamáli
Heimilisþrifin eru oft tilfinninga-
þrungin því okkur er kennt að hluti
af því að elska einhvern sé að upp-
fylla líkamlegar þarfir þeirra. Flestir
voru það heppnir sem börn að slíkar
þarfir voru uppfylltar, maturinn var
eldaður, nestið var tekið til og fötin
voru þrifin og straujuð. Börn vita að
þau eru elskuð, ekki einungis vegna
þess að þau fá að heyra það heldur
líka vegna þess að það er hugsað um
þau. Þegar pör rífast vegna heimilis-
þrifa þá er stundum undirliggjandi
ótti að þau séu ekki elskuð eða virt.
Ást og virðing er nauðsynleg í sam-
bandi og stundum verða heimili-
þrifin að orrustuvelli þar sem slegist
er um þessar þarfir. Rifrildi vegna
heimilisþrifa getur því verið flótti
frá raunverulegu vandamáli. Það
getur verið erfitt að taka frá tíma
til að ræða þessi vandamál en þegar
búið er að uppfylla þessar tilteknu
þarfir, ást og virðingu, þá má búast
við því að erjurnar um heimlisþrifin
gufi upp.
svanhvit@bladid.is
Síðumúlct 3, sírrn: 553 7355
Opið virka dogo kl: 11 - 18, laugardago kl: 11 -15
Undirföt
Bíkini - Tankini - Sundbolir - í skálastærðum. fl/B, C/D, DD/C, F/FFF
Full búð of nýjum vörum
Sundföt